Fréttablaðið - 12.12.2005, Side 29
MÁNUDAGUR 12. desember 2005 3
Hvað fær okkur til að finnast hlutir
hengdir upp á réttan hátt? Sumir
segja það ómeðvitaðan hæfileika
okkar að beita reglu gullinsniðsins,
sem rædd er í skáldsögunni Da Vinci
lykillinn og er talin koma ítrekað fyrir
í náttúrunni.
Það má vel vera að sumir lista-
menn hafi fylgt reglunni ómeðvitað
en hún hefur einnig verið notuð
meðvitað til að ná fram ákjósanlegri
samsetningu fyrir málverk eða sam-
hverfu í byggingarlist. Í eina tíð var
reglan talin guðdómleg og ekki mátti
brjóta gegn henni án þess að verk
missti fagurfræðilegt gildi.
Til eru innanhússhönnuðir sem
vilja láta gullinsniðið ákvarða innrét-
tingar húsa, sérstaklega við uppstil-
lingu innanstokksmuna. Til dæmis á
ekki hengja málverk á miðjan vegg,
frekar eilítið til hliðar. Sé maður í
vafa má reikna út hvar á að negla.
Út kemur talan 1,618 ef maður notar
reglu gullinsniðs. Engu máli skiptir
hversu veggurinn er stór. Reiknire-
glan er um hlutföll hliðarlengda í
rétthyrningi, veggsins í þessu tilfelli.
Formúlan er 1/2 + ?(5)/2 : 1, en það
er u.þ.b. 1,618. Stærðfræði verður því
aðferð til að reikna út „fegurð“.
Í ljós hefur komið að margt
sem talið var í hlutföllum gullin-
sniðs reyndist ekki vera svo við
nánari mælingar, eins og forngríska
byggingin Parþenon. Þrátt fyrir
fullyrðingar um annað er margt í
náttúrunni ekki gullinsnið. Leonardo
da Vinci teiknaði hins vegar myndir
af mannslíkamanum í gullinsniði. Í
raun eru mörg hlutföll í líkamanum
langt frá því og hlutföll einstaklinga
eru mjög mismunandi. Þetta snið er
því hvorki meðfæddur smekkur né
náttúrulögmál.
Nú er aftur á móti kominn tími til
að hengja jólakransinn á útihurðina.
En hvernig? Hvort sem ákveðið er að
nota Feng Shui, gullinsnið eða aðra
aðferð, þá get ég sannað fyrir ykkur
að þið munuð alltaf hengja hann
í andlitshæð sama hvar þið setjið
hann á hurðina. Það eru 100% líkur
á að til sé andlit – einhvers (kannski
hundsins á heimilinu) sem er í sömu
hæð og kransinn.
Ráð vikunnar: Munið að stærð-
fræði er hugvísindi.
Stærðfræðileg „henging“
Margir lýsa upp garða og
gangstíga með útikertum yfir
hátíðarnar.
Fallegt útikerti fyrir framan húsið
lýsir upp nánasta umhverfi og
veitir því jólalegan blæ. Útikertin
eru jafn mörg og þau eru breytileg
og má fá þau í kerum, í skreyttum
stjökum eða sem falleg standljós
sem má stinga ofan í jörð.
Kertaglaðir ættu þó að hafa
í huga að hafa kertin á öruggum
stað. Passa að þau séu í hæfilegri
fjarlægð frá húsi, gróðri og öðru
sem gæti kviknað í. Einnig skal
passa að kertunum sé ekki raðað
of innarlega á göngustíga þar sem
eldurinn gæti auðveldlega teygt
sig í flíkur barna og annarra
vegfarenda. Snjói eða rigni ofan
í bráðið vaxið getur vatnið sem
þar safnast náð ótrúlegum hita.
Þegar vatnsdropinn ryður sér leið
upp á yfirborð vaxins getur hann
sprungið og sjóðheitt vatn bland-
að vaxi spýtist í allar áttir. Þetta á
líka við þegar kertavaxið þornar
blandað vatni.
Aldrei er of varlega farið og
óþarfi að valda stórskaða af einu
litlu kerti sem boða á gleði og
frið.
Örugg meðferð
á útikertum
Allar dúnsængur og dúnkoddar
frá Gæði & Mýkt eru merktar
og viðurkenndar af danska
astma og ofnæmisfélaginu.
Flestar dúnsængur frá Gæði &
Mýkt eru með 15 ára ábyrgð.
Dúnsængur og dúnkoddar frá
Gæði & Mýkt má þvo.
Allar dúnsængur og dúnkoddar
frá Gæði & Mýkt eru með dún
og fiðurheldu bómullaráklæði.
Opnunartími: Virka daga 11-18 • Fimmtudaga 11-21 • Laugardaga 13-16 Grensásvegur 12, sími 568 1919
- í svefninn þinn
Aloe Vera gæsdúnsæng
135x205 kr. 18.900-
Aloe Vera gæsdúnkoddi
50x70 kr. 7.900-
Frábært jólatilboð
SKIPHOLTI 21 (NÓATÚNSMEGIN)
SÍMI 561 0847
TEXTÍLGALLERY
Útikerti við útidyrahurðina taka með hlýju á móti gestum og gangandi en varúð skal ætíð
höfð í nærveru elds.
RÁÐ frá Rakel
RAKEL ÁRNADÓTTIR FJALLAR UM GULLINSNIÐ