Fréttablaðið - 12.12.2005, Page 62
12. desember 2005 MÁNUDAGUR36
SELDAR EIGNIR Á
HÖFUÐBORGARSVÆÐINU*
*þinglýstir kaupsamningar, heimild Fasteignamat ríkisisins.
300
250
200
150
100
50
0
FJÖLDI
11/11-
17/11
180
18/11-
24/11
150
25/11-
1/12
167
21/10-
27/10
194
28/10-
3/11
168
4/11-
10/11
166
Guðjón Friðriksson, sagnfræðingur og rithöfundur, á sér eftir-
lætishús við Vesturgötuna þar sem hann gæti alveg hugsað sér
að eyða meiri tíma.
„Uppáhaldshúsið mitt þessa dagana er pínulítið timburhús
á Vesturgötu 16b. Þetta er bakhús sem sést ekki frá götunni
og þar átti Benedikt Gröndal skáld heima síðustu tuttugu ár
ævi sinnar. Þetta hús er í svolítilli vanhirðu en það er eins og
Benedikt hafi bara gengið út úr því í gær. Engu hefur verið
breytt og það er eins og að stíga inn í horfna veröld að koma
þar inn. Mér skilst að það eigi að flytja það upp í Árbæjar-
safn, sem mér líst frekar illa á og myndi taka fyrir ef ég mætti
ráða.“ Guðjón er þekktur fyrir ævisögur sínar en ekki síður fyrir
rannsóknir á Reykjavík fyrri tíma sem komið hafa út á bókum.
Hann er því mjög kunnugur Reykjavík og veit þar um fjölda
áhugaverðra húsa þó þetta sé í uppáhaldi.
„Hús með mikla sögu hafa alltaf höfðað til mín en það er
ekki þar með sagt að ég hafi ekki gaman af nýjum húsum og
flottum arkítektúr.“
Nýjasti ritsigur Guðjóns er ævisaga Hannesar Hafstein. Þeir
Benedikt Gröndal hafa örugglega drukkið kaffi saman í
bakhúsinu við Vesturgötu 16b og rökrætt um skáldskap og
Guðjón hefði örugglega þegið molasopa í þeim félagsskap.
DRAUMAHÚSIÐ
Heimili Benedikts Gröndal
Arkitektar Varmárskóla eru ýmsir enda skólinn byggður í nokkrum áföngum.
Helst ber að nefna Hörð Bjarnason, Guðmund Guðjónsson, Þorvald Krist-
mundsson og Vilhjálm Hjálmarsson en hann teiknaði viðbætur sem teknar
voru í nokun 1982 og 1997.
VARMÁRSKÓLI
Greiningardeild Íslandsbanka
spáir hækkun á húsnæði til
skamms tíma.
Fjölbýli í Reykjavík virðist hafa
hækkað um 2,9% í nóvember, sem
er nokkuð umfram meðaltals-
hækkanir síðustu mánuði. Sérbýli
hækkaði um 5,1% á sama tíma og
það er líka talsvert umfram það
sem verið hefur undanfarið. Þó
ber þess að geta að ekki voru allar
sölutölur komnar fram þegar þetta
yfirlit var gert en þær eru vænt-
anlegar um miðjan mánuðinn.
Greiningardeildin gerir frem-
ur ráð fyrir að kaupendur íbúðar-
húsnæðis reyni að fjárfesta áður
en hækkun á vöxtum íbúðarlána
gengur að fullu í garð en Íbúða-
lánasjóður og bankarnir hækkuðu
flestir vextina fyrir skemmstu. Af
þeim sökum býst greiningardeild-
in við verðhækkun til skamms
tíma á íbúðarhúsnæði.
Hækkun til
skamms tíma
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI
Guðjón Friðriksson hefur dálæti á húsum sem hafa sögu þó
hann kunni líka að meta nýjan arkítektúr.
Enn hækkar húsnæðið.