Fréttablaðið - 12.12.2005, Qupperneq 63
MÁNUDAGUR 12. desember 2005 27
„Lífið sjálft er kraftaverk en það
er margt sem þarf að takast á við
og til þess þarf maður að koma
sér upp safni af góðum venjum
og samskiptaleikni. Til þess þarf
gott sjálfstraust sem er kjarninn
í okkar fræðum,“ segir sálfræð-
ingurinn Jóhann Ingi Gunnarsson
sem nýlega gaf út bókina Með lífið
að láni, ásamt samstarfsfélaga
sínum til margra ára, Sæmundi
Hafsteinssyni.
Jóhann og Sæmundur hafa
lengi staðið fyrir námskeiðum í
lífsleikni og öllu sem því tilheyrir
og vaknaði hjá þeim sú hugmynd
að setja hugmyndir þeirra niður
á blað. Vildu þeir skrifa nokkurs
konar leiðarvísi þar sem fólk gæti
gripið hvar sem er inn í bókina og
fengið þar bæði sjálfstyrkingu og
hvatningu til góðra verka.
„Okkur fannst spennandi
að koma fyrir í einni bók ansi
mörgu frá vöggu til grafar en
fjalla ekki bara um einn flokk.
Fólk vantar að hafa bók þar sem
það getur flett upp ansi mörgu,
allt frá barnauppeldi, sambúð og
hjónabandi til gullnu áranna.“
Þeir félagar vildu hafa bókina á
mannamáli, einfalda í uppsetn-
ingu með stuttum texta.
Áður hafa Jóhann og Sæmund-
ur gefið út bækurnar Sjálfsstjórn
og heilsa, Lengi muna börnin og
Lífsleikni: sjálfstraust, sjálfsagi
og samkennd, handbók fyrir
kennara og foreldra.
Með leiðarvísi að lífinu
LÍFIÐ AÐ LÁNI Bókin á að þjóna sem
leiðarvísir sem hægt er að grípa í á öllum
aldri til að fá svör við algengum spurning-
um um lífið.
SÁLFRÆÐINGAR Jóhann Ingi og Sæmundur hafa starfað saman í ríflega tuttugu ár og
haldið vinsæl námskeið.
SPÝR ELDI Indverskir þjóðdansarar dansa
Diddhi Dhamal-dansinn á menningarhátíð
í Allahabad á Indlandi. AP/REUTERS
FÆDDUST ÞENNAN DAG
1915 Frank Sinatra söngvari.
1884 Örn Arnarson (Magnús Stefánsson)
skáld.
1863 Edward Munch list-
málari.
1821 Gustave Flaubert
rithöfundur.
1711 Skúli Magnússon landfógeti.
Systurnar Magdalena Ósk og Vikt-
oría Rós Bjarnþórsdætur, héldu
tombólu til styrktar Rauða krossi
Íslands fyrir utan verslunina 10-11
í Hjallahverfi í Kópavogi. Á tom-
bólunni, sem haldin var í nokkur
skipti, söfnuðust alls 3.625 krónur.
Bróðir þeirra, Alexander Már níu
mánaða, fékk að koma með þeim í
sjálfboðamiðstöð Kópavogsdeild-
ar þegar systur hans afhentu söfn-
unarféð.
Systratombóla
MEÐ BRÓSA Systurnar Viktoría Rós og Magda-
lena Ósk með bróður sinn Valdimar Má.