Fréttablaðið - 12.12.2005, Page 70
Eigendur Frú fiðrildis og Pjúra
héldu jólakvöld á fimmtudaginn
þar sem í boði var rauðvín og
piparkökur ásamt dýrindis jóla-
legum harmonikkuleik. „Við höld-
um alltaf dömukvöld reglulega
en í þetta sinn var það jólakvöld
þar sem bæði kyn voru velkom-
in,“ segir Ingibjörg Grétarsdóttir
eigandi Frúar fiðrildis en versl-
unin á einmitt eins árs afmæli um
þessar mundir og því gott tilefni
til að fagna. Hún segir jafnframt
að stemningin hafi verið öðruvísi
en á hinum reglulegu dömukvöld-
um. „Á þeim kvöldum bjóðum við
dömurnar velkomnar og á boðstól-
um er eitthvað gott eins og jarð-
arberjafreyðivín, ostapinnar eða
jarðarber með súkkulaði. Þetta
gerum við þegar útsala er að byrja
eða eitthvað sérstakt er í gangi.
Það er voðalega næs að hittast
svona á kvöldin og viðskiptavin-
irnir kunna því vel að eiga þess
kost að skoða útsöluvörur í róleg-
heitum með vínglas í hönd.“
„Þetta er líklega stærsta hlut-
verk mitt hingað til,“ segir Vigdís
Hrefna Pálsdóttir leikkona, sem
brátt mun stíga á svið á Akureyri
sem Auður í Litlu hryllingsbúð-
inni. „Það eru átta leikarar í sýn-
ingunni. Andrea Gylfadóttir leik-
ur plöntuna og Jóhannes Haukur
og Guðjón Davíð (Jói og Gói) leika
tannlækninn og Baldur, eiganda
plöntunnar. Og svo eru þrjú kven-
hlutverk sem virka eins og grísk-
ur kór, en hann manna Álfrún Örn-
ólfsdóttir og Esther Talía Casey.
Og til viðbótar er einn maður sem
stjórnar plöntunni.“
Flestir þekkja söguþráð söng-
leiksins, en færri vita kannski
hver hin raunverulega merking
þess er.
„Litla hryllingsbúðin er ádeila
á kapítalískt þjóðfélag þar sem
græðgin étur allt og alla. Plantan
er holdgervingur græðginnar. Það
er skemmtilegt við söngleikja-
formið að það er hægt að koma
ádeilu til skila án þess að verkið
verði í predikunartóni. Það á við
um Túskildingsóperu Brechts og
Weill og það á líka við um þetta
verk.“
En hvað hefur Vigdís verið að
gera hingað til?
„Ég hef verið að leika í Þjóð-
leikhúsinu síðan ég útskrifaðist úr
leiklistarskólanum fyrir þremur
árum. Síðasta vetur lék ég í Mýr-
arljósi, Norðri og Edith Piaf. En
það er líka fínt að prófa eitthvað
nýtt.“ Þegar hún svarar í símann
er hún að vaska upp og ganga frá
eftir skírn, en dóttir hennar var
skírð Úlfhildur Ragna daginn
áður. „Hún er skírð Ragna í höfuð-
ið á móður minni.“
„Ég þekki lögin vel því að pabbi
setti verkið upp fyrir 20 árum í
Gamla bíói og ég sá það alloft þá.“
Faðir Vigdísar er Páll Baldvin Bald-
vinsson, menningarritstjóri DV.
Vigdís hefur verið í barns-
burðarleyfi í haust, en hún bjó á
Seyðisfirði í sumar. „Seyðisfjörð-
ur er frábær bær og það er ótrú-
lega mikið um að vera þar. Ég
vann í indverskri búð sem nefnist
Draumhús og selur allt frá skart-
gripum upp í húsgögn.“ Nú er hún
að búa sig undir að flytja norður
ásamt fjölskyldunni, en maður
hennar er Örn Úlfar Höskuldsson
þýðandi. „Hann verður í feðraor-
lofi fyrstu tvo mánuðina, en kost-
urinn við vinnu hans er að hann
getur unnið hana hvar sem er.“
Annars leggjast flutningarnir vel
í Vigdísi.
„Ég hlakka til að fara norður
og komast á skíði.“
Átta leikarar og planta
VIGDÍS HREFNA PÁLSDÓTTIR
PJÚRA Kolbrún Ýr Gunnarsdóttir og Íris
Eggertsdóttir voru á jólakvöldinu.
Verslað með vínglas í hönd
KÁTAR Elín Gunnarsdóttir, Sigrún Kristín og Alexandra Jóný voru kátar í veislunni.
KÓSÍ Grétar Kjartansson og Steinunn Þor-
steinsdóttir með jólarauðvín í hönd.
JÓLAKVÖLD Ingibjörg Grétarsdóttir og Helga Hjálmtýsdóttir áttu góðar stundir á jólakvöldinu.
Söngleikurinn Litla hryllingsbúðin var
fyrst settur upp í London árið 1983
og færðist bráðlega yfir á Broadway.
Hér var hann frumsýndur í janúar
árið 1985 í Gamla bíói en umsjón-
armenn og leikstjórar voru Sigurjón
Sighvatsson og Páll Baldvin Bald-
vinsson. Verkið naut fádæma vin-
sælda og sáu yfir 50.000 manns það.
Leikfélag Reykjavíkur setti það upp
árið 1999, og verður það sett upp
í þriðja sinn hérlendis á næsta ári
af Leikfélagi Akureyrar. Einnig hafa
áhugamannaleikfélög í Garðabæ og
Mosfellsbæ sett verkið upp. Söng-
leikurinn er byggður á hryllingsmynd
eftir Roger Corman frá 1960, sem var
tekin á aðeins tveimur dögum, og fór
Jack Nicholson með hlutverk sjúk-
lingsins með sjálfspyntingarhvötina.
Hryllingsbúðin var endurgerð sem
kvikmynd árið 1986 með þeim Rick
Moranis, Ellen Greene, Steve Martin
og Bill Murray. Leikendur í íslensku
uppsetningunum eru eftirfarandi:
1985
Leikhópurinn Hitt
Baldur: Leifur Hauksson.
Auður: Edda Heiðrún Bachman.
Rödd Auðar II (plöntunnar):
Björgvin Halldórsson. Tannlæknir-
inn: Þórhallur Sigurðsson (Laddi)
1999
Leikfélag Reykjavíkur
Baldur: Valur Freyr Einarsson.
Auður: Þórunn Lárusdóttir.
Rödd Auðar II: Bubbi Morthens.
Tannlæknirinn: Stefan Karl Stef-
ánsson
2006
Leikfélag Akureyrar
Baldur: Jóhannes Haukur Jóhannes-
son (Jói).
Auður: Vigdís Hrefna Pálsdóttir.
Rödd Auðar II: Andrea Gylfadóttir.
Tannlæknirinn: Guðjón Davíð.
Stjörnum prýdd plöntusýning
NÓG ÚRVAL Það sakaði ekki að hafa eitt
rauðvínsglas við hendina þegar úrvalið var
skoðað.
RÉTTA STEMNINGIN Harmónikkurnar voru dregnar fram til að skapa rétta andrúmsloftið í
Frú Fiðrildi og Pjúra.
12. desember 2005 MÁNUDAGUR34