Fréttablaðið - 12.12.2005, Síða 75
Síðasti öruggi skiladagur
á jólapökkum til landa utan Evrópu
er mánudagurinn
á jólapökkum til Evrópu
er þriðjudagurinn
á jólapökkum innanlands
er miðvikudagurinn
5.12.
13.12.
21.12.
www.postur.isFinndu pósthúsið næst þér á
Komdu tímanlega
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
E
H
F.
/S
IA
.I
S
-
IS
P
28
41
9
1
2/
20
04
með jólapakkana
Breska ofurfyrir-
sætan Kate Moss
hefur gengið frá
auglýsingasamn-
ingi við fyrirtæk-
ið Virgin, aðeins
þremur mánuðum
eftir að kókaín-
hneyksli gekk
næstum af ferli hennar dauðum.
Þó nokkur fyrirtæki riftu samn-
ingum sínum við fyrirsætuna eftir
að ljósmyndir birtust af henni í
dagblaði að sniffa kókaín. Skömmu
síðar fór Moss í meðferð og virð-
ist vera komin á beinu brautina á
nýjan leik.
„Kate Moss er goðsögn í tísku-
bransanum,“ sagði stjórnandi Virg-
in Mobile. „Við erum mjög ánægð-
ir með að hún ætli að koma fram í
næstu auglýsingu okkar.“
Auglýsingin verður birt í bresku
sjónvarpi í fyrsta sinn á aðfanga-
dagskvöld. Í henni mun Moss segja
nokkur orð sem hefur ekki gerst
oft á hennar fyrirsætuferli.
Moss samdi við
Virginútgáfuna
KATE MOSS
Leikarinn og vandræðabelgurinn
David Arquette er nú kominn í
hann krappan. Nú hefur komið í
ljós að hann átti vingott við dans-
mey um það bil einu ári eftir að
hann byrjaði samband sitt við eig-
inkonu sína, Courtney Cox. Dans-
mærin, sem heitir Erika Keith,
hefur selt frásögn sína til slúður-
tímaritsins The National Enquirer
fyrir fúlgur fjár.
Blaðið heldur því fram að Erika
segi satt þar sem hún hafi bæði
myndir þessu til staðfestingar,
ásamt því sem hún stóðst svokall-
að lygapróf. Að sögn hennar sá hún
Arquette inni á nektarklúbbnum
sem hún vann á. Varð hún strax
hrifin af leikaranum og bauðst til
þess að dansa fyrir hann einka-
dans allsnakin, boð sem hann þáði
með þökkum. Seinna um kvöldið
lét dansmærin hann hafa síma-
númerið sitt og hringdi hann í
hana daginn eftir. Samkvæmt
frásögn dansarans hittust þau þá
um kvöldið og við tók kvöld sem
einkenndist af áfengisdrykkju
og kynlífi. Í greininni koma fram
myndir af leikaranum kyssa barm
nektardansmeyjarinnar þetta
kvöld.
Talsmenn leikarans neita þess-
um sögusögnum og ásaka dans-
meyna um ósannindi. Ljóst er að
ef satt reynist verður Courtney
ekkert allt of sátt við kallinn.
Arquette í vondum málum
DAVID ARQUETTE LEIKARI
Í nýjasta hefti
breska Elle er grein
um nýja tegund
kvenmanns sem
blaðamaður kallar
„The Don‘t Care
Date“ og útleggst
sem stefnumóta-
stúlkan sem kærir
sig kollótta. Nán-
ari útskýring á því
fyrirbæri er sem
sagt kona með nógu
mikið sjálfsálit til
þess að plana ekki
stefnumótin, heldur
mætir hún bara án
nokkurs undirbún-
ings. Hún er ekki
eins og stöllurnar
í Beðmálum í borg-
inni sem eru búnar
að bóka brasílískt vax, andlitsbað
og strípur vikuna fyrir stefnu-
mótið, og kaupa nýtt dress til að
heilla væntanlega bráð. Fyrir-
mynd þessarar nýju
stefnumótastúlku
er leikkonan Angel-
ina Jolie sem er svo
mikill töffari að hún
þarf varla að raka á
sér fótleggina. Eins
og Angelina sagði í
blaðaviðtali áður en
hún varð frú Pitt:
„Ég á marga vini,
og hitti suma þeirra
í hótelherbergjum.
En ég er ekkert endi-
lega að sækjast eftir
meira sambandi.“
Eins og haldið er
fram í Elle myndi
slík kona aldrei hafa
áhyggjur af ósvör-
uðum sms-skilaboð-
um eða ófullkominni
andlitsmálningu. Hún er ekki í
örvæntingu að reyna að krækja
sér í karlmann, henni er bara
alveg sama.
Stefnumótastúlkunni
sem er sama