Fréttablaðið - 12.12.2005, Blaðsíða 76
KA tapaði fyrir Steaua Búkarest í Rúm-
eníu í gær 30-21 og er því úr leik í áskor-
endakeppni Evrópu í handknattleik með
samtals átta marka tap úr báðum leikj-
unum. „Við byrjuðum alveg skelfilega og
vorum eiginlega að klóra í bakkann nær
allan leikinn. Við fengum tækifæri til að
minnka muninn í eitt mark í stöðunni
19-17 en fengum dæmdan á okkur
ruðning í hraðaupphlaupi. Þeir náðu þá
að skora og Jonni fékk rautt spjald og þá
gáfust menn eiginlega upp. Við spiluð-
um ágætlega á köflum en áttum fjórtán
sóknir sem við enduðum ekki með
skoti og það er alveg hrikalega mikið,“
sagði Reynir Stefánsson, þjálfari KA.
Hann segir að Jónatan Magnússon hafi
verið besti leikmaður liðsins í gær og
þá hafi Hreiðar Guðmundsson, Hörður
Fannar Sigþórsson og Rögnvaldur
Johnsen átt ágætis leik en aðrir
áttu dapran dag.
„Þetta lið er ekkert mikið betra í
handbolta en við, það má segja
að við höfum klúðrað þessu í
heimaleiknum. Þar vorum við
komnir með fjögurra marka for-
skot sem við missum niður.“
Ferðalag KA til Rúmeníu var
langt og erfitt en liðið lenti í
Rúmeníu um hádegi á föstu-
dag. „Það var engin loftkæling
í rútunni sem tók á móti okkur
en hún var síðan 1928, það
var ægilegt að lenda í því. Svo
var farið með okkur á hót-
elið sem var eins og gamla
ÍSÍ-hótelið. Það eru gormar
upp úr öllum dýnum og maturinn
var vondur. Það fyrsta sem við
fengum að borða var kjúklingur,
það eina sem við vildum ekki
borða enda er fuglaflensa að
ganga í Rúmeníu. Um kvöld-
ið var síðan kjúklinga-
súpa og leggur með, við
afþökkuðum máltíðina
á laugardagskvöldið
og fengum síðan aftur
kjúkling eftir leikinn!
Botninum var náð
þegar Ragnar Njáls-
son fann ánamaðk í
súpunni sinni,“ sagði
Reynir í gær en þá voru
flestir liðsmenn KA á
leiðinni á McDonald´s.
ÆVINTÝRI HJÁ HANDBOLTALIÐI KA: FJÖRUG FERÐ TIL BÚKAREST
Fengu ánamaðk með kjúklingasúpunni
TENNIS Rússneska kynbomban
Anna Kournikova íhugar þessa
dagana hvort hún eigi að taka
spaðann almennilega úr hillunni
og fara að keppa sem atvinnu-
maður. Anna hefur ekki leikið sem
atvinnumaður síðan 2003.
Anna lék sýningarleik um helg-
ina gegn Martinu Hingis í Brasilíu
en þær stöllur unnu tvíliðaleikinn
á opna ástralska mótinu í tvígang
á sínum tíma. Hingis ætlar að
byrja að keppa á ný en Anna er
enn að hugsa málið. - hbg
Anna Kournikova:
Útilokar ekki
endurkomu
ANNA KOURNIKOVA Yrði vinsælt ef hún
myndi byrja að keppa aftur.
FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY IMAGES
KÖRFUBOLTI Ungstirnið LeBron
James heldur áfram að fara á
kostum í NBA-deildinni en þessi
tvítugi gutti skoraði 52 stig þegar
Cleveland tapaði fyrir Milwaukee,
111-106. Þetta var hæsta stigaskor
leikmanns í vetur.
James hitti 19 af 29 skotum
sínum utan af velli og þar af 5 af
9 skotum sínum fyrir utan þriggja
stiga línuna. Þetta var í annað
sinn á ferlinum sem James skorar
yfir 50 stig. Síðast skoraði hann
56 stig en í bæði skiptin sem hann
hefur skoraði yfir 50 stig hefur
Cleveland tapað. - hbg
LeBron James sjóðheitur:
Skoraði 52 stig
í tapleik
LEBRON JAMES Verður betri með hverjum
leik. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY IMAGES
FÓTBOLTI Framtíð Daníels Hjalta-
sonar hjá Víkingi er enn í mikilli
óvissu. Magnús Gylfason, þjálfari
Víkinga, mun ræða við Daníel í
vikunni en hann vill halda leik-
manninum hjá félaginu. „Ég er enn
ákveðinn í því að reyna að komast
eitthvert annað enda búinn að vera
hérna ansi lengi. Ég var búinn að
fá munnlegt leyfi fyrir því að fá að
fara en málið er núna hjá Magga
þjálfara. Við erum að fara að ræða
þetta mál en það er ekkert komið
á hreint.“ - egm
Daníels Hjaltason:
Fer úr Víkinni
FÓTBOLTI Michael Essien, leikmað-
ur Chelsea, er ekki vinsælasti
knattspyrnumaðurinn á Bret-
landseyjum þessa dagana. Hann
hefur í tvígang brotið skelfilega
af sér í vetur og er að fá stimpil
sem ruddi.
„Ég er alls ekki grófur leik-
maður. Ef fólk lítur yfir minn feril
þá sést það svart á hvítu,“ sagði
Essien. „Ég var að reyna að fara
í boltann gegn Hamann og þetta
var alls ekki viljandi. Ég er ekki
leikmaður sem reynir að fótbrjóta
andstæðinginn.“ - hbg
Michael Essien:
Ég er ekki gróf-
ur leikmaður
MICHAEL ESSIEN Á undir högg að sækja
þessa dagana.
> Við hrósum...
... handknattleiksdeild KA, sem heldur
án nokkurs vafa úti
bestu heimasíðu
allra handboltaliða
á Íslandi í dag. Vef-
urinn er uppfærður
daglega með lifandi
og skemmtileg-
um fréttum og
KA-menn buðu
síðan upp á
úrvals þjónustu
í gær
þegar
þeir
voru
með lifandi
uppfærslur af Evrópu-
leiknum. Önnur lið
mega svo sannar-
lega taka KA sér til
fyrirmyndar. Meira
svona KA-menn.
40 12. desember 2005 MÁNUDAGUR
sport@frettabladid.is
Óbreytt staða
Ekki er enn ljóst hvort að miðjumað-
urinn Hólmar Örn Rúnarsson hjá
Keflavík geri samning við sænska liðið
Trelleborg. „Samningaviðræður standa
yfir en þær mjakast hægt áfram. Þetta
tekur allt sinn tíma en ég býst við að
niðurstaða fáist í þessari viku,“ sagði
Rúnar Arnarsson, faðir Hólmars og
stjórnarmaður hjá Keflavík.
HANDBOLTI Garðbæingurinn Vil-
hjálmur Halldórsson er hrakfalla-
bálkur sem á fáa sína líka. Hann
hefur meiðst mun oftar en eðlilegt
getur talist og hann varð fyrir enn
einu áfallinu í gær. Þá var hann að
keppa með liði sínu, Skjern, í Evr-
ópukeppninni og fljótlega í fyrri
hálfleik lenti Vilhjálmur í slæmu
samstuði. Hann lá eftir óvígur og
steinrotaður.
„Þetta var svakalegt högg. Ég
man bara eftir að hafa hoppað upp
og svo rankaði ég við mér síðar
á gólfinu,“ sagði Vilhjálmur við
Fréttablaðið í gær, en talsverð
hræðsla greip um sig á meðal
forráðamanna Skjern þar sem
Vilhjálmur var steinrotaður og
svo byrjaði fljótlega að blæða úr
munninum á honum.
„Það stíflaðist á mér nefið og
því fór blóðið niður í kokið á mér.
Ég hóstaði því síðan út. Ég er
rosalega bólginn á nefinu og það
er ekkert hægt að sjá fyrr en eftir
svona þrjá daga þegar bólgan
hjaðnar. Læknarnir telja nokkuð
víst að ég sé brotinn. Vonandi er
ekkert meira brotið en erfitt að
segja um það í dag,“ sagði Vil-
hjálmur.
Skjern sigraði leikinn, 30-26,
og er því komið áfram í Evrópu-
keppninni. Þess má geta að Vil-
hjálmur meiddist einnig í fyrri
leik liðanna en hann var búinn
að jafna sig af þeim meiðslum í
gær. En er Vilhjálmur óheppnasti
handboltamaður heims?
„Ég veit það ekki. Ætli ég sé
samt ekki sá vitlausasti því ég
kem alltaf aftur,“ sagði Vilhjálm-
ur og hló dátt þótt hann væri enn
nokkuð kvalinn. Alltaf stutt í
grínið hjá þessum jákvæða strák
sem hefur ósjaldan séð það svart,
en hann hefur meðal annars misst
tennur í handboltaleik. Hann
lætur meiðslin ekki stöðva sig?
„Það er leikur um næstu helgi
og ég ætla að vera með. Annars er
ég að verða ansi vígalegur svona
tannlaus með hanakamb og vænt-
anlega með grímu út af nefinu.
Það er ekki hægt að verða víga-
legri,“ sagði Vilhjálmur.
Vilhjálmur rotaðist og er
sennilega nefbrotinn
Seinheppni handboltakappinn Vilhjálmur Halldórsson varð fyrir enn einu
áfallinu í gær þegar hann rotaðist í Evrópuleik með félagi sínu, Skjern.
ÆTLAR AÐ SPILA UM NÆSTU HELGI Vilhjálmur lætur rothöggið í gær ekki stöðva sig og
stefnir á að spila um næstu helgi og að komast í landsliðshópinn fyrir EM í Sviss.
FRÉTTABLAÐIÐ/AFP