Fréttablaðið - 04.01.2006, Side 4

Fréttablaðið - 04.01.2006, Side 4
4 4. janúar 2006 MIÐVIKUDAGUR Afsögn ráðherra Fjármálaráðherra Póllands, Andrzej Mikosz, hefur sagt af sér vegna ásakana um að hann hafi verið viðriðinn fjármálamisferli. Forsæt- isráðherrann, Kazimierz Marcinkiewicz, greindi frá þessu í gær. PÓLLAND Eldur í borpalli Rúmlega eitt hundrað menn þurftu að yfirgefa norska olíuborpallinn Snorra B undan ströndum Noregs vegna eldsvoða í fyrrinótt. Eldurinn kom upp í rafmagnstöflu og var öllum starfsmönnum umsvifalaust skipað að fara um borð í björgunarbáta. Ekki kom til þess að þyrfti að sjósetja bátana því öryggisvörðum tókst að ráða niðurlögum eldsins á skömmum tíma. NOREGUR BANDARÍKIN Enda þótt uppbygg- ingin í Írak sé skammt á veg komin ætlar Bandaríkjastjórn ekki að fara fram á frekari fjár- veitingar til hennar. Helming- ur þess fjárs sem ætlað var til uppbyggingar fór í baráttuna við uppreisnarmenn og réttarhöldin yfir Saddam Hussein. Þegar fjárlög næsta árs verða rædd á bandaríska þinginu í febrúar ætlar ríkisstjórn George W. Bush ekki að fara fram á neitt fé til viðbótar við þá 18,4 millj- arða dala, eða 1.158 milljarða íslenskra króna, sem þegar hefur verið úthlutað til uppbyggingar- starfs í Írak. Að því er stórblaðið Washington Post hermir á enn eftir að ráðstafa fimmtungi þess fjár en búist er við að það klárist í lok þessa árs. Bandarískir emb- ættismenn í Bagdad segja að þá verði írösk yfirvöld, í samvinnu við erlendar ríkisstjórnir, að sjá um þá uppbyggingu sem eftir er. „Bandaríkin ætluðu aldrei að reisa Írak algerlega upp úr rústum sínum,“ sagði William McCoy, undirhershöfðingi og umsjónarmaður uppbyggingar- innar í landinu, á blaðamanna- fundi á dögunum. Þessi ummæli eru reyndar í mótsögn við orð Bush forseta frá því í ágúst 2003 þegar hann sagðist ætla að gera innviði íraska samfélagsins að þeim traustustu í Mið-Austur- löndum, en þá var uppreisnin í landinu varla hafin. Síðan uppbyggingin hófst eftir innrásina 2003 hafa hundruð milljarða króna sem átti að verja til endurbóta á úr sér gengnu veitukerfi landsins, svo og á skól- um, sjúkrahúsum og opinberum byggingum, verið sett í staðinn í verkefni sem tengjast löggæslu og hernaðarmálum, til dæmis uppbyggingu öryggissveita og fangelsa. Auk þess hefur drjúgur skildingur runnið til rannsóknar á máli Saddams Hussein og rétt- arhaldanna yfir honum. Fyrir þá peninga sem eftir eru á að reisa 900 skóla, 160 heilsugæslustöðvar og lagfæra götur og vegi um allt land. Aftur á móti er talið að það muni kosta tugi milljarða Bandaríkjadala að koma innviðum Íraks í eðlilegt horf en þeir voru nánast í molum eftir þrjú stríð og tólf ára við- skiptaþvinganir. Olíuframleiðsla er enn víða minni en hún var fyrir innrásina og að meðaltali njóta íbúar Bagdad rafmagns í einungis sex klukkustundir á sólarhring. Í annarri grein Washington Post frá því í gær er svo greint frá því að bandarísk stjórnvöld hyggist á árinu draga verulega úr umsvifum sínum í Afganist- an. Mestu munar þar um fækkun um 2.500 manns í herliði Banda- ríkjamanna í suðurhluta lands- ins þar sem uppreisnin gegn her- setunni hefur verið hvað mest. Áformað er að hermenn á vegum Atlantshafsbandalagsins komi í stað þeirra. Afganskir embættismenn sem blaðið ræddi við hafa af því áhyggjur að brottflutning- ur bandarísku hermannanna sé ótímabær og ákvörðunin ráðist frekar af pólitískum þrýstingi heima fyrir en aðstæðum á vett- vangi. Lið NATO hefur eink- um séð um friðargæslu á þeim svæðum þar sem rósturnar hafa verið minni og því er ekki víst að það sé í stakk búið til að eiga í átökum við talibana og aðra hópa uppreisnarmanna sem þar hafast við. Því eru ríki á borð við Holland sögð vera að velta því alvarlega fyrir sér hvort þau eigi að senda hermenn sína í svo hættuleg verkefni. sveinng@frettabladid.is FYRIRBOÐI Írakskur hermaður horfir á eftir bandarískri herþyrlu í bænum Baqouba. FRÉTTABLAÐIÐ/AP Fjárveitingum til Íraks hætt Bandaríkjastjórn ætlar ekki að fara fram á frekari fjárveitingar frá þinginu til uppbyggingarstarfs í Írak. Þá ætla Bandaríkjamenn einnig að rifa seglin í Afganistan og láta Atlantshafsbandalagið taka að sér fleiri verkefni. 104,6979 Gengisvísitala krónunnar Bandaríkjadalur 62,64 62,94 Sterlingspund 108,34 108,86 Evra 74,43 74,85 Dönsk króna 9,973 10,031 Norsk króna 9,333 9,387 Sænsk króna 7,935 7,981 Japanskt jen 0,5342 0,5374 SDR 89,87 90,41 HEIMILD: Seðlabanki Íslands KAUP GENGIÐ GENGI GJALDMIÐLA 03.01.2005 PARÍS, AP Ríkisstjórn Frakklands ákvað í gær að aflýsa neyðar- ástandi sem lýst var yfir eftir að óeirðir brutust út í hverfum inn- flytjenda víðs vegar um landið í haust. Upphaflega var áætlað að neyðarlögin giltu til febrúarloka en að sögn Jacques Chirac forseta hefur ástandið batnað svo mikið að ástæðulaust væri að halda lög- unum til streitu. Neyðarlögin heimiluðu yfir- völdum að setja á útgöngubann og gera umfangsmiklar húsleitir en fá sveitarfélög nýttu sér þær heimildir. ■ Franska stjórnin: Neyðarlögin numin úr gildi VAKTIN STAÐIN Franska lögreglan hafði í nógu að snúast í haust þegar reið ungmenni brutu allt og brömluðu. FRÉTTABLAÐIÐ/AP LÖGREGLA Við húsleit í Vestmann- aeyjum á mánudagskvöld fann lög- regla rúmt kíló af hassi. Leitin var hluti af rannsókn fíkniefnamáls sem upp kom á gamlársdag. Einn situr í gæsluvarðhaldi og kona hefur játað umfangsmikla fíkniefnasölu. Að sögn lögreglu hefur verið leitað í fjölmörgum húsum í bænum með fíkniefnahundi. Nýjasti fundurinn var í húsnæði tengdu manninum sem situr í gæsluvarðhaldi. Síðan á gamlársdag hafa fundist um 1,3 kíló af hassi og 20 grömm af amf- etamíni. Maðurinn hefur kært gæslu- varðhaldsúrskurðinn til Hæst- aréttar. - óká Lögreglan í Vestmannaeyjum: Fann kíló af hassi í viðbót KJARAMÁL „Okkar afstaða til félaga og fjárfestinga kemur fram í aðgerðum á markaði,“ segir Ari Edwald, formaður stórnar Gildis lífeyrissjóðs, sem er einn af tíu stærstu hluthöfunum í FL Group. Sjóðurinn á um 1,6 prósenta hlut í félaginu. Fjöldi þingmanna og forystu- menn samtaka launafólks hafa for- dæmt ofurlaun og hundruð millj- óna króna starfslokasamninga við Sigurð Helgason og Ragnhildi Geirsdóttur fyrrverandi forstjóra FL-group og Icelandair. „Við einbeitum okkur aðeins að ávöxtunarmöguleikum. Um 20 prósent af eignum sjóðsins er til ávöxtunar erlendis og við höfum ekki farið út á þá braut að hafa afskipti af þessum hlutum,“ segir Ari. Haft var eftir Helga Laxdal varaformanni stjórnar Gildis í kvöldfréttum Ríkisútvarpsins í gær að umræddir starfsloka- samningar væru út úr öllu korti. „Hinir betur launuðu gefa skít í samhljóminn og skynsemina,“ segir í ályktun sem stjórn Verkalýðsfélagsins Vöku á Siglufirði hefur sent frá sér vegna málsins. „Bilið eykst stöðugt milli þeirra sem vinna á umsömdum launatöxtum og hinna sem taka laun eftir ákvörðunum stjórna fyrirtækja eða fá laun sín ákvörðuð eftir öðrum leiðum,“ segir einnig í ályktuninni. - jh Ari Edwald, stjórnarformaður lífeyrissjóðs í hópi hluthafa FL Group: Aðeins horft á ávöxtunina ÞEGAR ALLT LÉK Í LYNDI Hannes Smárason, Jón Karl Ólafsson, Ragnhildur Geirsdóttir og Sigurður Helgason þegar breytingarnar á forystu flugfélagsins voru tilkynntar í fyrra.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.