Fréttablaðið - 04.01.2006, Side 20

Fréttablaðið - 04.01.2006, Side 20
 4. janúar 2006 MIÐVIKUDAGUR4 Í Námsflokkum Hafnafjarðar er hægt að læra kínversku. Það er ekki það eina sem kín- verskt er því Geir Sigurðsson ætla að fræða nemendur um kínverska samtímamenningu og Magnús Björnsson kynnir viðskiptahætti Kínverja. Kínverska efnahagsundrið er hvergi nærri hætt að vaxa og margir telja að þar séu mestu og bestu sóknarfærin sem. Íslendingar virðast hafa áttað sig á þessu. Til að mynda fór herra Ólafur Ragnar Grímsson forseti ásamt fríðu föruneyti til Kína að efla og stuðla að auknum viðskiptum milli landanna. Þessa ferð gerði hann einnig að umfjöllunarefni í áramótaávarpi sínu og fullyrti að smæð okkar gæfi okkur yfirhöndina gagnvart alþjóðlegum stórfyrirtækjum í viðskiptum. Námsflokkar Hafnarfjarðar bjóða í ár upp á námskeið sem kallast Viðskipti í Kína. Magnús Björnsson hefur umsjón með námskeiðinu en auk hans halda nokkrir einstaklingar með beina reynslu af viðskiptum í Kína fyrirlestra. Einkum er tekið á hagnýtum úrlausnarefnum eins og hvers ber að gæta, hverjar áhætturnar séu og hvers kyns hegðun er líklegust til árangurs. Það þykir gott að þekkja þann menningarheim sem stunda á viðskipti í og því er einnig boðið upp á kynningu á kínverskri samtímamenningu. Þeir Geir Sigurðsson, Ralph Weber og Mads Holsten Jensen fjalla um menningarkima rauða drekans og veita innsýn inn í helstu hliðar kínverskrar nútímamenningar, forsendur hennar og þær breytingar sem þar hafa átt og eiga sér stað um þessar mundir. Einnig er hægt að læra kínversku fyrir byrjendur hjá Námsflokkunum. Hvert námskeið kostar 40 til 45 þúsund krónur en ókeypis er fyrir nemendur Háskóla Íslands og Háskóla Akureyrar. Kínverski drekinn í Hafnarfirði Kínverski markaðurinn er gríðarstór. Ef nýta á þau tækifæri sem þar bjóðast er betra að kynna sér kínverska viðskiptasiði. Myndin er af einu af bælum drekans, Hong Kong. Innritun og greiðsla á neti stendur yfir og er opin til 4. jan. 2006 á www.ir.is. Innritun með aðstoð verður í matsal skólans, þri. 3. og mið. 4. jan., frá kl. 16–19. (Hægt er að greiða með peningum, debet- eða kreditkorti). Kennsla hefst mán. 9. janúar 2006. Kennsla einstakra áfanga er með fyrirvara um næga þátttöku. Kvöldskóli Fjarnám Bygginga- og mannvirkjagreinar Verklegt og bóklegt grunn- og framhaldsnám. Rafiðnanám Grunnnám rafi›na 2. önn. Rafvirkjun 3.–7. önn. Listnám †msir áfangar í kjarna og á kjörsvi›i almennrar hönnunar. Öflugur undirbúningur fyrir framhaldsnám í hönnun. Upplýsinga- og fjölmiðlagreinar Grunnnám uppl‡singa- og fjölmi›lagreina. Undirbúningur fyrir nám í grafískri mi›lun, vefsmí›, ljósmyndun, nettækni, prentun og bókbandi.. Tækniteiknun Fjölbreyttir áfangar í AutoCad. Meistaraskóli Allar rekstrar- og stjórnunargreinar. Faggreinar byggingagreina. Almennt nám Bókfærsla, danska, e›lis- og efnafræ›i, enska, félagsfræ›i, fríhendisteikning, íslenska, grunnteikning, spænska, stær›fræ›i, tölvugreinar, fl‡ska, notkun upplýsingatækni og tölva. Innritun og grei›sla á neti stendur yfir og er opin til 15. jan. 2006 á www.ir.is. Kennsla einstakra áfanga er með fyrirvara um næga þáttöku. Allar frekari uppl‡singar í síma 522 6500 eða á vef skólans www.ir.is. me› áherslu á starfstengt nám Byggingagreinar Efnisfræ›i, framkvæmd og vinnuvernd og grunnteikning. Tækniteiknun Húsateikning, raflagnateikning, innréttingateikning, vélateikning, AutoCad og grunnteikning. Tölvubraut Forritun, gagnasafnsfræ›i, vefsí›ugerð, vefforritun, netstýrikerfi og vélbúnaður. Uppl‡singa- og fjölmi›labraut Allar greinar í grunnnámi uppl‡singa- og fjölmi›labrautar; eins og myndbygging og formfræði, myndgreining, týpógrafía og grafísk hönnun, myndvinnsla og marg- miðlun, hljóðtækni, ljós- og litafræði, inngangur að fjölmiðlun. Meistaraskóli Allar stjórnunar- og rekstrargreinar. Almennt nám Enska 212, ENS303, grunnteikning, STÆ202, algebra og föll, STÆ 303, stærðfræði, UTN103, notkun upplýsingatækni og tölva í námi. I ‹ N S K Ó L I N N Í R E Y K J A V Í K 4dlk x 27 cm Það er alltaf eitthvað að gerast í vegaHÚSINU á Egilsstöðum. Þar er kaffihús fyrir ungt fólk, aðstaða til að horfa á boltann og hægt er að fara á námskeið í stuttmyndagerð og ljósmyndun. „Það er ferlega notaleg kaffihúsa- stemning hér. Strákarnir koma hingað til að horfa á boltann, stelpurnar til að horfa á myndir og svo er alls konar klúbbastarf- semi hér. Það er mjög margþætt notkun á þessu húsi,“ segir Krist- ín Scheving, forstöðumaður vega- HÚSSINS, sem er menningar- og kaffihús ungs fólks. Jafnframt eru tónleikar haldnir í húsinu, sem var opnað í fyrra og er ætlað ungu fólki á aldrinum 16 til 26 ára, en aðstað- an er byggð á breskri fyrirmynd. Kaffihúsið býður upp á afar gott kaffi og léttar veitingar á vægu verði, en inni af því rými er minna herbergi, sem hefur hlotið nafnið vegaVinna. Þar er boðið upp á ýmis konar námskeið, svo sem í stuttmyndagerð, kvikmyndagerð, ljósmyndun, leiklist og fleiru, og „Við erum með allt frá níu manns hér á kvöldi og upp í 40 manns, svo það er alltaf eitthvað í gangi,“ segir Kristín. Opið er í vegaHÚSINU frá klukkan 14 til 23 á virkum dögum og frá 14 til 1 um helgar, en húsið er styrkt af Rauða krossinum og Fljótsdalshéraði. Aðstaða fyrir ungt fólk Andrúmsloftið er mjög notalegt í vega- HÚSINU á Egilsstöðum og nota fjölmörg ungmenni á aldrinum 16 til 26 ára sér aðstöðuna. Fimm kvölda námskeið um meistarann Mozart verður haldið nú í ársbyrjun hjá Endurmenntun HÍ í tilefni þess að tvö hundruð og fimmtíu ár eru liðin frá fæðingu hans. „Ég ætla að opna gluggann inn í heim Mozarts og reyna að komast að því af hverju tónlist hans er eins og hún er,“ segir Árni Heimir Ingólfsson, umsjónarmaður Mozartnámskeiðsins sem haldið verður í sal Norræna hússins frá 23. þessa mánaðar til 20.febrúar. Auk þess að spila sjálfur á flygil og flytja tónlist af böndum ætlar Árni Heimir að fá til sín tónlistarmenn úr Sinfóníuhljómsveitinni til að leika úr verkum meistarans enda er námskeiðið haldið í samstarfi við hljómsveitina. Þess má geta að þátttakendur fá 50% afslátt á Mildi Títusar sem Sinfónían flytur í fyrsta sinn á Íslandi í lok janúar. Á námskeiðinu verður skyggnst inn í hið klassíska tíma- bil tónlistarsögunnar og ferill Mozarts rakinn frá æskuárum til dánardags, auk þess sem nokkur af helstu verkum hans verða krufin. „Ég ætla að taka verkin í sundur, án þess að verða voðalega harðhentur, og púsla þeim saman aftur, reyna aðeins að skoða innviðina,“ segir Árni Heimir og hlakkar greinilega til, því eins og hann segir: „Það væri svo gaman að komast aðeins inn í höfuðið á þessum snillingi!“ Heimur Mozarts Árni Heimir hlakkar til að fara í gegnum helstu meistarverk Mozarts.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.