Fréttablaðið - 04.01.2006, Side 24

Fréttablaðið - 04.01.2006, Side 24
 4. janúar 2006 MIÐVIKUDAGUR8 Samkvæmt tískuvefnum style.com eru tískuhönnuðir almennt sammála um að slaufur séu málið fyrir komandi sumar. Stóra slaufur, litlar slaufur, litskrúðugar slaufar og í raun bara allar gerðir slaufa eru áberandi í tískustraumum fyrir næstkomandi sumar. Samkvæmt þeim tískusýningum sem hafa verið að sýna komandi sumarlínu virðast stórar og jafnvel pínu óreglulegar slaufur á barmi bæði kjóla og bola vera mjög áberandi. Ýmsir tískuhönnuðir segja að slaufur séu í senn bæði hugaðar, klassískar og kvenlegar. Margar stúlkur ættu því að fagna þessu og vera óhræddar við að bera bæði djarfar og óhefðbundnar slaufur þegar sólin byrjar að skína af einhverju viti næstkomandi vor og sumar. Sætar slaufur Ofurfyrirsætan Eva Herzigova hefur látið hafa það eftir sér að hún vilji láta gera kvikmynd um lífshlaup sitt. Hin tékkneska og fagurvaxna Herzegova segist sjálf vilja leikstýra myndinni, þrátt fyrir litla sem enga reynslu á því sviði. Hún segist ekki vilja gera dæmigerða kvikmynd heldur frekar mynd í heimildarmyndastíl. Hún segir sjálf að saga sín sé algjör Öskubuskusaga því að hún hafi fengið mjög strangt og erfitt uppeldi. Hún varð síðan ein frægasta o f u r f y r i r s æ t a heims og var hvað þekktust fyrir að auglýsa Wonderbra brjóstahaldarana. Seinna giftist hún trommuleikara Bon Jovi, Tico Torres, en hjónaband þeirra var stormasamt og skammvinnt. Þá er bara lítið annað að gera en að bíða og vona. Kvikmynd um líf Herzegovu? Tískuhönnuðurinn frægi Vivienne Westwood var nú um áramótin öðluð af drottningu Breta. Vivienne Westwood hefur frá því á tímum pönktímabilsins verið afar áberandi í tískuheiminum. Hún öðlaðist fyrst frægð sem einn af aðalforsprökkum pönksins og þeirrar tískubylgju sem því fylgdi. Hún stofnaði í London verslunina Sex ásamt þáverandi kærasta sínum, Malcolm McLaren, og þótti hönnun Westwood einhver sú mest sjokkerandi sem sést hafði. Hún hefur síðan verið þekkt fyrir ýmis uppátæki, þó svo að hin sérstæða tískuhönnun hafi ávallt verið hennar helsta aðalsmerki. Westwood hefur alltaf leitast við að fara óhefðbundnar leiðir auk þess sem hún hefur leitað aftur til mið- og nýalda eftir ýmsum hugmyndum. Westwood fékk titilinn dame fyrir framlag sitt til tískuheimsins en hún hefur einnig beitt sér fyrir ýmsum mannréttindamálum og öðru slíku á undanförnum árum. Hún segir að það sé skylda hennar sem konu sem hlustað er á að huga að mannréttindum. Tók hún meðal annars þátt í hönnun á bolum sem á stóð: ,,I AM NOT A TERRORIST, please don‘t arrest me,“ sem myndi útleggjast á íslensku: ,,ÉG ER EKKI HRYÐJUVERKAMAÐUR, vinsamlegast handtakið mig ekki.“ Hefur gróðinn af sölu þessara bola runnið til mannréttindasamtaka. Vivienne Westwood öðluð Vivienne Westwood ásamt söngkonunni Roisin Murphy. NORDICPHOTO/AP Eitt af slaufu-dressum sem sáust nýlega á sýningu hjá Phi. Eva Herzegova varð heimsfræg í Wonderbra- auglýsingum. NFS ER Á VISIR.IS

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.