Fréttablaðið - 04.01.2006, Síða 66

Fréttablaðið - 04.01.2006, Síða 66
26 4. janúar 2006 MIÐVIKUDAGUR sport@frettabladid.is FÓTBOLTI Eiður Smári Guðjohnsen var krýndur íþróttamaður ársins við hátíðlega athöfn á Grand hóteli í gær. Þessi frábæri knattspyrnumaður hefur staðið í ströngu með Chelsea yfir hátíðirnar og fengið lítið frí. Hann flaug til landsins með Flugleiðavél seinni partinn í gær og stoppaði stutt því Chelsea vildi fá hann aftur á æfingu í dag. Hann varð því að fljúga með einkaþotu til Lundúna snemma í morgun og samkvæmt áreiðanlegum heimildum Frétta- blaðsins var það Baugur sem borgaði brúsann en til þeirra var leitað þegar ljóst varð að Eiður yrði að komast fljótt aftur til Lundúna. Annars hefði hann tæplega komist á athöfnina í gær. Þetta er í annað sinn í sögunni sem íþróttamaður ársins flýgur heim í einkaþotu með styttuna góðu en það gerði fyrstur manna faðir Eiðs, Arnór Guðjohnsen, þegar hann var kjörinn íþrótta- maður ársins 1987. - hbg Íþróttamaður ársins ferðast með stæl: Eiður til London í einkaþotu Baugs EINKAÞOTAN GÓÐA Þotan sem Eiður og fjölskylda flugu heim með í morgun er ekki ólík þessari, en með henni kom Jón Ólafsson í boði Baugs þegar hann seldi Norðurljós sællar minningar. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR Lið ÍBV í DHL-deild kvenna í handbolta hefur orðið fyrir mikilli blóðtöku en tveir leikmanna liðsins eru barnshafandi og spila ekki meira með liðinu á leiktíðinni. Ungverski leikmaðurinn Nikolett Varga tilkynnti forráðamönnum ÍBV fréttirnar í fyrrdag og var ákveðið að segja upp samningi hennar við félagið þegar í stað. Eva Björk Hlöðversdóttir fylgdi strax í kjölfarið og greindi liðsfélögum sínum frá því að hún ætti einnig von á barni, en svo skemmtilega vill til að eiginmaður Evu Bjarkar er Alfreð Finnsson, þjálfari ÍBV. „Okkur fannst ekki sanngjarnt gagnvart liðinu að leyna þessu lengur því það er komið að því að hún getur ekki æft mikið lengur. En það er ljóst að hún spilar ekki fleiri leiki,“ segir Alfreð og neitar því ekki að hentugra hefði verið ef barneignir hefðu beðið þar til eftir tímabilið. „En maður stjórnar því svo sem ekki,“ sagði Alfreð. Ljóst er að frjósemin í Eyjum hefur höggvið stór skörð í kvennalið bæjarins. Eftir standa 11 leikmenn, þar af aðeins einn markmaður og segir Alfreð að ástandið sé vissulega orðið mjög erfitt. Þegar er búið er að loka fyrir leikmannagluggann og því ljóst að Eyjaliðið mun ekki geta fyllt skarð þeirra Evu Bjarkar og Varga. „Það verður mjög erfitt úr þessu að haldast á þeim stalli sem liðið hefur verið hingað til. En við höfum alla burði til að vera á meðal þeirra efstu og við ætlum okkur að gera það. Ég held að þetta velti svolítið á hvernig liðið bregst við strax í upphafi. Karlaliðið lenti í skakkaföllum fyrir ekki svo löngu og barði sig saman. Vonandi gerum við slíkt hið sama,“ segir Alfreð. KVENNALIÐ ÍBV Í HANDBOLTANUM: TVEIR LEIKMENN EIGA VON Á BARNI Frjósemin heggur skörð í kvennalið ÍBV > Háskólameistari til KR-B B-lið KR í körfubolta karla, betur þekkt sem KR-Bumban, er að ganga frá samningum við bandaríska bakvörðinn Melvin Scott, sem liðið ætlar að tefla fram í leiknum gegn Grinda- vík í Powerade-bikarnum á laugardag. Melvin þessi er enginn aukvissi í íþróttinni heldur varð háskólameistari með North-Carolina í Bandaríkjunum í fyrra. Melvin hefur leikið í grísku og þýsku úrvalsdeildinni í vetur en er án liðs í augnablikinu. Ljóst er að þetta er mikill fengur fyrir Bumbuna, sem auk þess mun tefla fram mörgum gömlum stjörnum í leiknum gegn Grindavík. Jón Arnór og Helena best Körfuknattleikssamband Íslands útnefndi í gær Jón Arnór Stefánsson, leikmann Carpisa Napoli á Ítalíu, og Hel- enu Sverrisdóttur sem körfuknattleiks- menn ársins. Ekki er hægt að segja að valið komið á óvart en Jón Arnór varð Evrópumeistari í vor og Helena leiddi ungt lið Hauka til bikarmeistaratitilsins hér heima. FÓTBOLTI Eiður Smári Guðjohnsen var í gær útnefndur Íþróttamaður ársins af samtökum íþróttafrétta- manna en hann fékk atkvæði í fyrsta sætið frá öllum sem greiddu atkvæði í kjörinu, en hann er annar hópíþróttamaðurinn sem hlýtur þessa viðurkenningu tvö ár í röð. Árið 2005 var einkar minn- isstætt fyrir Eið Smára en hann varð enskur meistari með Chel- sea, fyrstur Íslendinga, auk þess að verða deildarbikarmeistari og að komast annað árið í röð í und- anúrslit meistaradeildar Evrópu. Eiður Smári sagðist hafa átt alveg eins von á því að verða íþróttamaður ársins í kjölfar mik- illar velgengni á síðasta ári. „Ég var nú ekki búinn að vera að leiða hugann mikið að þessu heldur reyndi ég að einbeita mér að því að spila vel með Chelsea og lands- liðinu. Árið í fyrra var ár mik- illar velgengni hjá mér og þess vegna bjóst ég alveg eins við því að fá viðurkenningu, þar sem þær hanga saman við góðan árangur á sviði íþróttana. Það er mikill heið- ur fyrir mig að vera útnefndur íþróttamaður ársins á Íslandi og ég er mjög stoltur af þessari við- urkenningu.“ Þetta er annað árið í röð sem Eiður Smári hlýtur þennan titil en í fyrra hafði knattspyrnumað- ur ekki hlotið viðurkenninguna síðan Arnór faðir hans fékk hana árið 1987. „Það var sérstaklega ánægjulegt í fyrra að hljóta við- urkenninguna, þar sem enginn knattspyrnumaður hafði fengið hana síðan pabbi fékk hana sautj- án árum áður.“ Ekkert knattspyrnufélag hefur skotist hraðar í átt að toppnum en Chelsea hefur gert á síðustu árum en eigandi liðsins, rússneski auð- kýfingurinn Roman Abramovich, hefur eytt miklum fjármunum í félagið. Í uppáhaldi hjá Mourinho Jose Mourinho, knattspyrnustjóri Chelsea, hefur látið Eið Smára leika í stöðu fremsta miðju- manns að undanföru en áður var hann ávallt í fremstu víglínu. „Miðað við leikskipulagið sem við notum hjá Chelsea þá hentar mér að mörgu leyti betur að vera á miðjunni. Mourinho hefur talað um ég geti leikið sem framherji ef þess þarf. Mourinho hefur bætt viss smáatriði í leik mínum sem skipta samt miklu máli. Sigur- vilji allra leikmanna hjá Chelsea er orðinn meiri. Þá er ég farinn að hreyfa mig meira án bolta inn á vellinum en ég gerði áður en ég er þó meðvitaður um að ég get enn bætt mikið.“ Eftir 1-3 sigurleik Chelsea á West Ham United kallaði Mour- inho Eið Smára hinn ljóshærða Maradona, en Eiður lék afar vel í leiknum og var potturinn og pannan í sóknarleik Chelsea eftir að hafa komið inn á 12. mínútu leiksins fyrir Michael Essien sem meiddist. „Það er gott að fá klapp á bakið þegar vel gengur og gott að vita til þess að knattspyrnustjór- inn hefur trú á manni.“ Bjart framundan hjá landsliðinu Íslenska landsliðið olli töluverðum vonbrigðum í undankeppni heims- meistaramótsins í fyrra, en Eiður Smári bar leik liðsins uppi og lék vel í flestum leikjum liðsins. „Ég er tiltölulega bjartsýnn á gengi landsliðsins og sannfærður um að við getum betur en við sýndum í fyrra. Oft á tíðum var óheppnin að elta okkur. Það þarf að vinna betur í hugarfari leikmanna, sjálfs- trausti og sigurvilja liðsheildar- innar. Stundum eru þetta kölluð smáatriði en þau skipta miklu máli ef árangur á að nást.“ Miðlar til ungu kynslóðarinnar Eiður Smári segist vel finna fyrir því að krakkar og unglingar á Íslandi líti upp til hans þar sem hann er fyrirliði íslenska lands- liðsins auk þess að vera áberandi á alþjóðlegu leiksviði fótboltans. „Vitaskuld finn ég vel fyrir því að upp til mín er litið. Því miður gefst mér ekki mikill tími til þess að heimsækja knattspyrnufélög hér á landi á veturna en ég reyni þó að gera það eftir bestu getu á sumrin. Allir ungir krakkar sem hafa hug á því að ná langt í íþróttum verða að hafa mikla trú á sjálfum sér og sýna óbilandi þrautseigju þegar á móti blæs. Saman við hæfileika og dugnað við æfingar eru allir vegir færir.“ magnush@frettabladid.is Sjálfstraust og þrautseigja lykillinn að velgengni Eiður Smári Guðjohnsen, fyrirliði íslenska landsliðsins í knattspyrnu og leik- maður enska úrvalsdeildarfélagsins Chelsea, var í gær útnefndur íþróttamaður ársins 2005, annað árið í röð. ÍÞRÓTTAMAÐUR ÁRSINS 1. Eiður Smári Guðjohnsen, knattsp. 460 2. Guðjón Valur Sigurðsson, handb. 287 3. Ásthildur Helgadóttir, knatts. 203 4. Jón Arnór Atefánsso, körfub. 131 5. Þóra B. Helgadóttir, knattsp. 78 6. Gunnar H. Þorvaldsson, knattsp. 72 7. Hermann Hreiðarsson, knattsp. 71 8. Ólöf María Jónsdóttir, golf 58 9. Snorri S. Guðjónsson, handkn. 6 10. Jakob Jóhann Sveinsson, sund 37 11. Róbert Gunnarsson, handkn. 34 12.-13. Jón O. Halldórsson, frjálsar 29 12.-13. Sigurður Sigurðars., hestar 29 14. Birgir Leifur Hafþórsson, golf 25 15. Þórey Edda Elísdóttir, frjálsar 21 16. Árni Gautur Arason, knattsp. 19 17. Björn Þorleifsson, tækvondo 16 18. Heiðar Davíð Bragason, golf 12 19. Ólafur Stefánsson, handkn. 11 20. Kristjana S. Ólafsdóttir, fimle. 10 21. Arnar Sigurðsson, tennis 7 22.-24. Margrét L. Viðarsdóttir, knattsp. 4 22.-24. Ragnhildur Sigurðard., golf 4 22.-24. Þormóður Jónsson, júdó 4 25.-26. Björgvin Björgvinsson, skíði 3 25.-26. Kristín R. Hákonardóttir, sund 3 27.-28. Berglind Hansdóttir, handb. 2 27.-28. Greta M. Samúelsdóttir, knatt. 2 29. Grétar Rafn Steinsson, knatt. 1 HRAPAÐI HUNDRAÐ METRA Í SVIFVÆNGJU Á GAMLÁRSDAG „ÞEIR DEYJA UNGIR SEM GUÐIRNIR ELSKA” Móðir Rúnars Jenssonar, kerfisstjóra Háskólans í Reykjavík, harmi slegin: DV2x15-lesið 3.1.2006 20:32 Page 1 EIÐUR SMÁRI OG ARNÓR GUÐJOHNSEN Eiður Smári sést hér með styttuna góðu sem faðir hans vann árið 1987, árið sem hann var kosinn besti leikmaðurinn í Belgíu. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.