Fréttablaðið - 19.01.2006, Blaðsíða 6
6 19. janúar 2006 FIMMTUDAGUR
MATVÆLANEFND Neytendasamtök-
in lýsa yfir undrun og vonbrigð-
um með að forsætisráðherra hafi
ekki skipað fulltrúa samtakanna
í tíu manna nefnd, auk þriggja
starfsmanna, til að fjalla um
helstu orsakaþætti á háu mat-
vælaverði á Íslandi.
Forsætisráðuneytið skipaði
nefndina á mánu-
daginn án fulltrúa
neytendasamtak-
anna, þó að þau hafi
fyrirfram óskað
eftir þátttöku.
Steingrímur Ólafs-
son, fjölmiðlafull-
trúi forsætisráðu-
neytisins, segir að
ákveðið hafi verið
að fulltrúi samtak-
anna ætti ekki sæti í nefndinni
heldur yrði haft náið samstarf
við hann.
Jóhannes Gunnarsson, for-
maður Neytendasamtakanna,
segir stóran mun á því að koma
með sjónarmið inn í nefndina
eða að taka þátt í stefnumótun-
inni. „Að því leyti teljum við ekki
nægilegt að haft sé samráð við
okkur og teljum fráleitt að geng-
ið sé fram hjá heildarsamtökum
neytenda í landinu.“ Hann vonast
til þess að ákvörðuninni verði
breytt.
Jóhannes bendir á að tólf þús-
und félagsmenn séu í Neytenda-
samtökunum. Þau hafi verið í
fararbroddi við gerð kannana á
verðmun milli Íslands og ann-
arra Norðurlanda. - gag
Í MATVÖRUVERLSUN Skoða á orsök á háu
matvælaverði á Íslandi. Þrettán manna
nefnd hefur verið skipuð án fulltrúa frá
Neytendasamtökunum.
Neytendasamtökin fá ekki að sitja í nefnd um matvælaverð:
Vonbrigði að vera ekki með
JÓHANNES
GUNNARSSON
ÞJÓNUSTA Sorphirða hefur tafist
um tvo daga í höfuðborginni vegna
snjóruðninga, þæfings og lélegs
aðgengis að sorptunnum heimila.
Helgi Helgason, flokksstjóri
við sorphirðu hjá Reykjavíkur-
borg, segir starfsmenn hafa verið
afskaplega liðlega eftir að fór að
snjóa. „Við höfum verið að plægja
frá húsunum og fram á gangstétt.
Við erum allir að vilja gerðir að
hafa sorpgeymslur hreinar en
fólk sefur á verðinum. Í fyrra-
dag vorum við niðri í Lækjum og
aðeins einn var búinn að moka frá
sorpgeymslunni.“
Helgi segir að hann hafi ekki
getað vikið úr leið svo bílar kom-
ist framhjá í íbúðagötunum vegna
snjóruðninga. Hann hafi mætt
mikilli þolinmæði frá íbúum borg-
arinnar.
Sorphirða Reykjavíkurborgar
hvetur íbúa til að moka frá sorp-
geymslum og færa bifreiðar til
að sorphirða geti farið fram. Gott
aðgengi að sorpgeymslum sé for-
senda þess að hægt sé að veita
góða þjónustu.
Helgi og flokkur hans tæmir
til að mynda tunnurnar í Sundun-
um í dag og Voga- og Heimahverfi
á morgun. Biður Helgi fólk að
taka tillit til starfsmanna sinna
og hreinsa frá ruslageymslum
sínum. - gag
RUSLIÐ TÆMT Helgi Helgason og
menn hans hafa tafist við sorphirðuna
vegna þæfings og lélegs aðgengis að
ruslatunnum borgarbúa. FRÉTTABLAÐIÐ/
Starfsmenn sorphirðunnar í Reykjavík hafa sjálfir þurft að moka gangstéttir:
Snjórinn tefur sorphirðuna
ÍRAN, AP Ráðamenn í Teheran full-
yrtu í gær að það væri ólíklegt að
Evrópuríkjunum og Bandaríkj-
unum tækist að vísa deilunni um
kjarnorkuáætlun þeirra til örygg-
isráðs Sameinuðu þjóðanna. Hinn
yfirlýsingaglaði forseti Írans sagði
að Vesturlöndum væri hollara að
haga sér „rökréttar“ í deilunni.
Hinn storkandi tón var að heyra
í ráðamönnum klerkastjórnarinnar
er Frakkar höfnuðu beiðni Írans-
stjórnar um að miðlunarviðræður
um kjarnorkuáætlun hennar héldu
áfram. Frakklandsstjórn svar-
aði því til að fyrst yrðu Íranar að
hætta vinnu við áætlunina.
Condoleezza Rice, utanríkis-
ráðherra Bandaríkjanna, og Javier
Solana, utanríkismálastjóri Evr-
ópusambandsins, höfnuðu því einn-
ig afdráttarlaust í gær að slíkar
viðræður yrðu hafnar á ný. Solana
sagði lítinn tilgang í því svo lengi
sem „ekkert nýtt sé uppi á borðinu“.
Stjórnvöld í Bandaríkjunum,
Bretlandi, Frakklandi og Þýska-
landi vilja að stjórn Alþjóðakjarn-
orkumálastofnunarinnar komi
saman til bráðafundar þann 2.
febrúar og á þeim fundi verði
ákveðið að vísa málinu til öryggis-
ráðs SÞ.
Hins vegar eru Rússar og Kín-
verjar, sem ásamt Bandaríkja-
mönnum, Bretum og Frökkum
hafa neitunarvald í öryggisráðinu,
meira hikandi í málinu. Enda eiga
Rússar og Kínverjar hlutfallslega
meiri hagsmuna að gæta í því að
ekki komi til viðskiptaþvingana
gegn Íran, sem er eitt stærstu olíu-
og gasútflutningsríkja heims.
„Það er ljóst að þetta á sér
pólitískar rætur,“ sagði Mah-
moud Ahmadinejad, forseti Írans,
spurður um drögin að ályktun um
að vísa málinu til öryggisráðsins
sem Frakkar, Bretar og Þjóðverjar
eru að vinna að. „Við biðjum þá um
að stíga niður úr fílabeinsturnum
sínum og haga sér af smá skyn-
semi,“ tjáði hann blaðamönnum.
Vesturveldin grunar að Íranar
séu leynt og ljóst að vinna að því að
koma sér upp kjarnorkuvopnum, en
því neita talsmenn Íransstjórnar.
audunn@frettabladid.is
Íranar sýna engin
merki um eftirgjöf
Ráðamenn í Teheran sýndu í gær engin merki þess að þeir væru á þeim buxun-
um að láta undan í kjarnorkudeilunni sem Evrópuveldin og Bandaríkin vilja að
öryggisráð SÞ taki fyrir. Rússar og Kínverjar halda sér til hlés.
MAHOMUD AHMADINEJAD Forseti Írans ráðleggur ráðamönnum Evrópu að haga sér af
meiri skynsemi gagnvart landi hans. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
KJÖRKASSINN
Óttast þú að vera ein(n) á ferli í
miðborg Reykjavíkur?
Já 57%
Nei 43%
SPURNING DAGSINS Í DAG
Á að gera jarðgöng frá Bolungar-
vík að Vestfjarðagöngum?
Deilur á Póllandsþingi:
Forsetinn biður
stjórninni griða
PÓLLAND, AP Forseti Póllands, Lech
Kaczynski, hvatti í gær þingmenn
allra flokka til að reyna að mynda
meirihlutastjórn og koma í veg
fyrir að kalla þurfi kjósendur að
kjörborðinu í fjórða sinn á hálfu
ári.
Minnihlutastjórn íhaldsflokks-
ins Laga og réttlætis hefur ekki tek-
ist að tryggja fjármálafrumvarpinu
og fleiri mikilvægum frumvörpum
brautargengi á þinginu.
Leiðtogar stjórnarandstöðunnar
skoruðu á forsetann að hjálpa til við
að leysa úr átökum á þingi sem þeir
segja til komin vegna tilraunar for-
ystu stjórnarflokksins til að treysta
enn frekar tök sín á völdunum. ■