Fréttablaðið - 19.01.2006, Page 8
19. janúar 2006 FIMMTUDAGUR
LANDBÚNAÐUR Skortur á nautgripa-
og alifuglakjöti á Íslandi veldur því
að kjötiðnaðarfyrirtæki sækjast í
stórauknum mæli eftir innfluttum
afurðum. Ingvar Már Gíslason,
markaðsstjóri Norðlenska, segir
framleiðendur berjast um innlenda
nautgripi og verð fari hækkandi,
bæði til bænda og neytenda.
Í upphafi árs auglýsti landbún-
aðarráðuneytið eftir umsóknum
vegna innflutnings á nautgripa- og
alifuglakjöti, hvoru tveggja með
lágum tollum. Ingvar segir eftir-
spurnina aldrei hafa verið meiri en
19 kjötiðnaðarfyrirtæki sóttu um
leyfi til að flytja samtals inn 613
tonn af nautahakki og 15 fyrirtæki
sóttu um leyfi til að flytja inn 406
tonn af kjúklingaafurðum. Land-
búnaðarráðuneytið hefur hins
vegar einungis heimilað innflutn-
ing á 80 tonnum af nautahakki á
þessu ári og 50 tonnum af kjúkl-
ingaafurðum.
„Vegna mikillar eftirspurnar
fer ráðuneytið eftir reglugerðum
og er fyrirtækjunum gefinn kost-
ur á að gera tilboð í innflutninginn.
Þeir sem hæst bjóða munu hreppa
hnossið og í næstu viku skýrist
hverjir það verða,“ segir Ingvar.
- kk
Aldrei meiri eftirspurn eftir innfluttu nautgripa- og alifuglakjöti:
Slást um innlenda nautgripi
NORÐLENSK NAUT Eftirspurn eftir
íslenskum nautgripum er mun meiri en
framboðið.
SVÍÞJÓÐ HIV-smituð kona á Skáni í
Svíþjóð verður líklega ákærð fyrir
gróft ofbeldi vegna þess að hún
sagði ekki manninum sínum frá
smitinu í níu ára sambúð þeirra.
Konan smitaðist af HIV-veirunni
þegar hún var á ferðalagi erlendis.
Hún fór til læknis þegar hún
kom heim og greindist þá með HIV.
Konan sagði lækninum að hún hefði
ekkert líkamlegt samneyti við eig-
inmann sinn. Það reyndist ekki alls
kostar rétt því hún eignaðist síðar
með honum tvö börn. ■
Þagði þunnu hljóði í níu ár:
Kærð fyrir að
leyna HIV-smiti
Herinn sparar Norski herinn skar
verulega niður útgjöld sín í fyrra eftir að
hafa farið talsvert fram úr fjárveitingum
árið áður. Þetta kom fram þegar skýrsla
um varnarmálaútgjöldin var kynnt í gær. Í
fyrra voru þau sem svarar 185 milljörðum
íslenskra króna.
NOREGUR
VIÐSKIPTI Íslenskir fjárfestar hafa
keypt meirihluta í lettneska við-
skiptabankanum Lateko. Bankinn
rekur tíu útibú og um 67 minni
afgreiðslustaði, en hjá honum starfa
um 550 manns. Þá er bankinn með
skrifstofur í London og Moskvu.
Straumborg ehf., félag í eigu
Jóns Helga Guðmundssonar í Byko,
keypti 51 prósent en félög tengd
Jóni Helga og Byko hafa verið með
starfsemi í Lettlandi frá árinu
1993. Ice-Balt Invest ehf., sem er
félag í eigu Þorsteins Ólafssonar
og Vitalijs Gavrilovs, formanns
vinnuveitendasambands Lettlands,
keypti níu prósent. Helstu eigendur
bankans fyrir kaupin, sem eru lett-
neskir, halda um 40 prósentum
hlutafjár í bankanum.
„Okkur finnst þetta óskaplega
spennandi verkefni og teljum að
lettneski fjármálamarkaðurinn eigi
eftir mikla og öra þróun á næstu
árum,“ segir Jón Helgi Guðmunds-
son. „Okkur langaði, í framhaldi af
því sem við höfum verið að gera í
fjárfestingum í bankageiranum
á Íslandi, að taka þátt í þessu hér.
Við höfum náttúrlega verið nokkuð
lengi með starfsemi í Lettlandi
og höfum í gegnum hana öðlast
nokkra tiltrú á þessu umhverfi og
þykjumst skynja þann drifkraft
sem hér er undirliggjandi.“ Jón
Helgi neitar því ekki að fjárfesting-
um í Eystrasaltsríkjunum kunni að
fylgja einhver áhætta. Hann telur
þó að aðrar ástæður geti legið að
baki því að bankar hér hafi látið
vera að fjárfesta þar, svo sem að
það gæti haft áhrif á lánshæfismat
þeirra. „En ég þarf ekki að hafa
áhyggjur af neinu lánshæfismati,“
bætir hann við.
Jón Helgi segist bundinn trún-
aði um kaupverð bankans, sem
stofnaður var árið 1992, en eignir
hans eru sagðar nema um 30
milljörðum króna. Ef miðað er við
heildareignir er bankinn sá tíundi
stærsti af tuttugu og þremur bönk-
um Lettlands. Þá var hann valinn
besti banki ársins 2005 af tímarit-
inu The Banker.
Upplýst var um kaupin á blaða-
mannafundi í Riga síðdegis í gær.
Auk fjárfestanna og annarra
eigenda bankans voru á fundinum
Jón Baldvin Hannibalsson, fyrr-
verandi sendiherra og utanríkis-
ráðherra, og Artis Pabriks, utan-
ríkisráðherra Lettlands.
olikr@frettabladid.is
Keyptu í lett-
neskum banka
Íslenskir fjárfestar hafa keypt sextíu prósent í Lat-
eko-banka í Lettlandi. Eignir bankans, sem rekur tíu
útibú, nema um þrjátíu milljörðum króna.
UPPLÝST UM KAUPIN Frá kynningu á kaupum íslenskra fjárfesta á sextíu prósenta hlut í
Lateko-bankanum í Riga. Auk fjárfesta og eigenda bankans voru Jón Baldvin Hannibalsson,
fyrrverandi utanríkisráðherra, og Artis Pabriks, utanríkisráðherra Lettlands, viðstaddir.
TRÚMÁL Fólki í kaþólsku
kirkjunni fjölgaði um
nær tólf prósent eða um
676 milli áranna 2004 og
2005. Því hefur fjölgað
um rúm 150 prósent, úr
2.553 í 6.451, á áratug.
Jakob Rolland,
kaþólskur prestur, segir
fjölga mest í söfnuðin-
um fyrir austan vegna
framkvæmdanna við
Kárahnjúka og í Reyð-
arfirði. Einnig fjölgi
kaþólsku fólki í sjáv-
arþorpum, sérstaklega
frá Póllandi og Filipp-
seyjum.
„Fjárhagsstaða okkar
hefur batnað, en þó ekki
endilega, þar sem fjölg-
unin hefur í för með sér
töluvert aukna þjónustu.
Við erum að byggja upp
starfsemi úti á landi, til
að mynda stendur til að
stofna klaustur á Aust-
urlandi.“ - gag
Söfnuður Kaþólsku kirkjunnar á Íslandi:
Um 150 prósenta fjölgun
SÉRA JAKOB ROLLAND