Fréttablaðið - 19.01.2006, Qupperneq 10
10 19. janúar 2006 FIMMTUDAGUR
Faxafen 10 • 108 Reykjavík
Sími: 544 2210 • Fax: 544 2215
www.tsk.is • skoli@tsk.is
Sóley Rut Ísleifsdóttir,
þjónustufulltrúi hjá VÍS.
„Ég fékk mjög gott starf á frábærum
vinnustað. Tölvu- og skrifstofunámið
hjálpaði mér að öðlast það sjálfstraust
sem þurfti til að sækja um nýtt og
krefjandi starf. Það er aldrei of seint
að byrja að læra eitthvað nýtt. Fyrir
mig var þetta góð fjárfesting og frábær
tími í góðum félagsskap í skemmtilegum
og krefjandi skóla.“
Tölvu og skrifstofunám
Í þessu námi er tekið fyrir allt um tölvur, bókhald og skrifstofutækni
sem fólk þarf að kunna skil á í nútímafyrirtækjum.
Sérlega viðamikið og hagnýtt 260 stunda nám í takt við þarfir
markaðarins, nám sem hentar fólki á öllum aldri, hvort sem það er
á leiðinni út á vinnumarkaðinn að nýju eða vill skapa sér sterkari stöðu
á vinnumarkaði með aukinni menntun. Þetta nám hentar einnig
sjálfstæðum atvinnurekendum sem vilja vera sem mest sjálfbjarga í
allri tölvuvinnu og við bókhaldið.
Kennd er ein námsgrein í senn sem lýkur með próf eða verkefni,
tölvugreinunum lýkur flestum með alþjóðlegum prófgráðum.
Tölvugreinar
Windows XP tölvugrunnur og skjalavarsla, Word, Excel, Internet, MSN
og Outlook tölvupóstur dagbók og skipulag.
Margmiðlun
PowerPoint kynningar, Stafrænar myndavélar og myndvinnsla, Tónlist
í tölvunni, CD - DVD ofl.
Persónuleg færni
Tjáning og framkoma, atvinnuumsóknir, atvinnuviðtöl og ferilskrár.
Enska, þjálfun í talmáli og ensk verslunarbréf, sölutækni og markaðsmál.
Viðskiptagreinar
Verslunarreikningur, VSK meðferð og reglur, bókhaldsgrunnur,
tölvubókhald og tollskýrslur.
Morgun og kvöldnámskeið, hefst 25. janúar og lýkur 24. maí.
Verð kr. 189.000,- (Bjóðum VISA/EURO lán eða raðgr. og
starfsmenntalán til 3ja ára.)
S T A R F S M E N N T U N
ATVINNUMÁL Magnús Guðmunds-
son, forstjóri Landmælinga
Íslands, kveðst hafa sent umhverf-
isráðuneytinu ítarlega greinargerð
vegna úttektar tveggja sálfræðinga
á samskiptum yfirmanna og und-
irmanna stofnunarinnar. Þar vísi
hann ásökunum um einelti alger-
lega á bug með ýmsum rökum.
Það voru tvö stéttarfélög
starfsfólks Landmælinga, Félag
íslenskra náttúrufræðinga og
Útgarður, sem gengust fyrir því
að fengnir voru tveir sálfræðingar
til að gera ofangreinda úttekt eftir
að sex starfsmenn höfðu sagt upp
störfum hjá stofnuninni. Úttektin
náði bæði til þeirra sem hættir
voru og svo tíu starfsmanna af 31
sem starfa þar nú. Í niðurstöðum
kom fram að sumir starfsmenn
kváðust hafa orðið fyrir einelti
yfirmanna.
Skýrslan var send Umhverfis-
ráðuneytinu, sem taldi sig ekki
geta hlutast til um málefni þeirra
starfsmanna sem hættir væru
hjá stofnuninni, til að mynda með
öflun meðmæla þeim til handa.
Forstjórinn fékk síðan skýrsluna
til umsagnar frá ráðuneytinu.
Magnús kveðst álíta að stéttar-
félögin hafi farið offari og nálgast
málið á mjög ófaglegan hátt.
„Þessar ásakanir eru komnar
til eftir að starfsmenn hætta og
eru einungis frá þeim,“ segir hann.
„Þegar vinnusambandi lýkur milli
vinnuveitanda og starfsmanns, þá
lýkur ákveðnum skyldum og trún-
aði. Þessar ávirðingar um einelti
komu ekki fram fyrr en eftir að
þetta fólk hætti. Þeirra var hvorki
getið í uppsagnarbréfum, starfs-
mannaviðtölum né viðhorfskönn-
unum sem við gerum reglulega.
Skýrslan byggðist fyrst og fremst
á viðhorfum þeirra sem voru hætt-
ir. Aldrei var rætt við mig um það
sem verið var að velta upp þar.
Í svona einhliða umfjöllun, þar
sem einhver ásökun kemur fram,
er vaninn í siðuðu þjóðfélagi að
spyrja þann sem ásakaður er hvort
hann hafi einhver rök á móti. Það
er góð stjórnsýsla. Þarna var þessu
slengt fram en einskis spurt.“
Magnús bendir á nýlega könn-
un á því hvernig starfsfólki
Landmælinga líði í vinnunni. Þar
kemur fram að 92 prósent starfs-
manna sögðu starfsandann góðan
eða frekar góðan. 88 prósent voru
mjög eða frekar ánægðir í starfi
og 87 prósent voru mjög eða frek-
ar ánægðir með samskipti við
yfirmenn.
jss@frettabladid.is
FORSTJÓRI LANDMÆLINGA ÍSLANDS Magnús Guðmundsson kveðst hafa veitt þeim tveim-
ur starfsmönnum meðmæli sem hættir eru en báðu um þau..
Forstjórinn hafnar
áburði um einelti
Forstjóri Landmælinga hefur sent umhverfisráðuneytinu greinargerð vegna
eineltisskýrslu tveggja sálfræðinga. Hann segir að stéttarfélögin sem stóðu að
baki úttekt sálfræðinganna hafi farið offari og unnið ófaglega.
AHERN Á INDLANDI Bertie Ahern, forsæt-
isráðherra Írlands, var fagnað að hætti
hindúa við komu sína til Bangalore á
Indlandi. Hann er þar í vikulangri opinberri
heimsókn. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
PAKISTAN, AP Shaukat Aziz,
forsætisráðherra Pakistans, segir
að ekki sé hægt að una aðgerðum á
borð við loftskeytaárás Bandaríkja-
manna á föstudaginn sem kostaði
minnst átján manns lífið. Skotmark
árásarinnar er sagt hafa verið
Ayman al-Zawahiri, hægri hönd
Osama bin Ladens al-Kaídaleið-
toga. Hann kvað ekki hafa sakað.
Pakistanskir stjórnarerindrek-
ar segja hins vegar að þeir hafi
fengið upplýsingar um að fjór-
ir eða fimm erlendir skæruliðar
hafi fallið í árásinni, sem var gerð
á fjallaþorp við landamærin að
Afganistan. Hugsanlega séu nánir
samverkamenn al-Zawahiris meðal
hinna föllnu. Leyniþjónustumaður,
sem ekki vildi láta nafns síns getið,
sagði mennina talda vera egypska
að uppruna.
Fréttirnar af árásinni vöktu
reiði í Pakistan en Aziz lagði á það
áherslu að hún breytti engu um þá
staðreynd að tengslin við Bandarík-
in væru mikilvæg og hann myndi
ekki hætta við opinbera heimsókn
sína til Washington. Sú heimsókn
hófst í gær. Herskáir hópar mús-
lima í landinu hafa heitið að efna til
efldra mótmæla gegn Bandaríkjun-
um. - aa
SHAUKAT AZIZ Forsætisráðherra Pakistans
talar við blaðamenn í Islamabad.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Forsætisráðherra Pakistans fordæmir loftárás sem CIA er sökuð um:
Hættir ekki við Bandaríkjaför
SKIPULAGSMÁL „Við styðjum áfram
Gust þótt félagsmenn séu að selja
hús til einhverra aðila úti í bæ.
Það verður engan bilbug að finna
á bæjaryfirvöldum að hverfið
verði þarna áfram,“ segir Gunnar
I. Birgisson, bæjarstjóri í Kópa-
vogi, um uppkaup verktaka á hest-
húsum á félagssvæði Gusts og
sem jafnframt hafa teygt sig yfir
í Heimsenda.
Gunnar segir að á skipulagi
liggi fyrir allar reiðleiðir úr
Gustshverfinu og upp í Vatnsenda
í nýju hverfin. Búið sé að steypa
urmul af undirgöngum, byggja
góða reiðstíga og svo framveg-
is. Hestamönnum verði tryggðar
reiðleiðir inn og út úr hverfinu.
Gunnar segir þær fullyrðingar,
að stjórn Gusts hafi ekki fengið að
fylgjast með yfirstandandi skipu-
lagsvinnu, alrangar. Spurður um
viðbrögð bæjaryfirvalda við upp-
kaupum verktaka á Gustshúsum
segir Gunnar að húseigendur
verði sjálfir að spyrja sig slíkra
spurninga. Það séu þeir sem eru
að selja, ekki bærinn.
„Við höfum reynt að sporna við
þessari þróun af öllum mætti og
með ýmsum ráðum til að tryggja
stöðu hestamannafélagsins,“
segir Gunnar. „En Gustsmenn
verða líka að standa saman sjálfir
og taka til í eigin ranni. Vilji þeir
verða þarna áfram þá selja þeir
ekki hesthúsin sín. Við höfum
ekki fengið neina ósk frá félaginu
um að huga að nýju svæði.“ -jss
HEIMSENDI Gunnar I. Birgisson, bæjarstóri
Kópavogs, segir bæjaryfirvöld hafa reynt að
tryggja stöðu hestamannafélagsins Gusts
af öllum mætti.
Bæjarstjóri Kópavogs um uppkaupsmál í Gusti og Heimsenda:
Gustur áfram á sama stað
DÓMSMÁL Kona var dæmd til þess
að greiða Ingvari Helgasyni hf.
225 þúsund krónur í málskostnað
en hún höfðaði mál gegn fyrirtæk-
inu eftir að henni var óvænt sagt
upp störfum.
Konan fór í fæðingarorlof þann
1. janúar 2004 og átti að snúa
aftur til vinnu ári seinna. Í milli-
tíðinni var skipt um eigendur hjá
fyrirtækinu og konunni í kjölfarið
sagt upp störfum. Ástæða upp-
sagnarinnar var sögð vera skipu-
lagsbreytingar.
Konan krafðist þess að fá
bætur að upphæð rúmlega sjö
hundruð þúsund króna, auk máls-
kostnaðar. - mh
Ingvar Helgason sýknaður:
Kona rekin í
fæðingarorlofi