Fréttablaðið - 19.01.2006, Qupperneq 25
[ ]
FASTEIGNIR HEIMILI HEILSA HÚS BÖRN NÁM FERÐIR MATUR BÍLAR TÍSKA ATVINNA BRÚÐKAUP TILBOÐ O.FL.
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Heimild: Almanak Háskólans
��������������
�������
������������������
�������������
��������
������
�����������������
��� ����
�������������������
�������
�������
�������������
��������������
��������������
���������������
��������������
� ��������
Góðan dag!
Í dag er fimmtudagurinn
19. janúar, 19. dagur ársins 2006.
Reykjavík 10.45 13.38 16.33
Akureyri 10.48 13.23 15.59
,,Mér finnst flauel bara ótrúlega kúl efni,“
segir Steinar Guðjónsson, gítarleikari Coral
og menntaskólanemi, en hann á samtals
fimm flauelsjakka. ,,Þetta hófst allt með
bláa jakkanum sem frænka mín valdi fyrir
mig. Ég ákvað að kaupa hann af því hann
kostaði bara tvö þúsund krónur og hef notað
hann ótrúlega mikið síðan. Svo á ég rauðan,
svartan og tvo brúna jakka.“
Flestir jakkanna eiga sér sögu. ,,Tveir
eru svo gamlir að þeir voru framleiddir í
Vestur-Þýskalandi. Þann rauða keypti ég á
Hróarskeldu á 200 danskar krónur, annan
brúna jakkann gaf góður frændi mér og
þann svarta keypti ég á kílóamarkaði í
Spútnik á 2.000 krónur, hann er þýskur og
mjög kúl.“
Jakkarnir eru allir svipaðir í sniðinu.
,,Þeir eru aðsniðnir og þröngir sem er gott
fyrir granna menn.“ Auk stöku jakkanna
eru fínustu spariföt Steinars einnig úr flau-
eli. ,,Mér finnst flauel bara klæða mig vel.
Síðan er ekki slæmt að enginn jakkanna
kostaði meira en 2.000 krónur. Mér finnst
frábært að gera góð kaup, ef varan er flott
og kostar lítið er ég ennþá ánægðari með
hana,“ segir Steinar og kveðst ekki snobba
fyrir merkjum. ,,Ég er eiginlega anti-
merkjamaður og kaupi helst ekki þekkt
merki, það er mitt mottó. Uppáhaldsgalla-
buxurnar mínar eru til dæmis keyptar í
Hagkaupum á 450 krónur á útsölu í fyrra
og heita held ég RagTag,“ segir Steinar að
lokum. mariathora@frettabladid.is
Andmerkjamaður
í flauelsjökkum
Steinar Guðjónsson á fimm flauelsjakka sem allir voru ódýrir. Hann er ánægðastur
með vörur sem bæði eru flottar og kosta lítinn pening.
Steinar með jakkana sína sem koma úr ýmsum áttum.
KRÍLIN
Ég er leiður yfir
glugganum - ég
ætlaði bara að
hreinsa teygju-
byssuna mína
þegar skotið
hljóp af!
Heilsugæsla höfuðborgar-
svæðisins opnar nýja heilsu-
gæslustöð á morgun en það er
Heilsugæslan Glæsibæ. Heilsu-
gæslustöðin verður í Álfheim-
um 74 og er ætlað að þjóna
íbúum Voga- og Heimahverfis.
Opnunartími heilsugæslustöðv-
arinnar verður frá 8.00 til 17.00
alla virka daga og svo verður
síðdegisvakt frá klukk-
an 16.00 til 18.00
mánudaga, þriðju-
daga og fimmtu-
daga.
Útsölurnar eru enn
í fullum gangi og
ekki vitlaust að skreppa
í búðir og reyna að gera góð
kaup. Í mörgum verslunum
verður afslátturinn meiri eftir
því sem lengra líður á útsölu-
tímabilið.
Netverslunin rum.is er með
tuttugu og fimm prósenta
afslátt af rúmum í janúar.
Ferðamönnum sem fara til
landa þar sem fuglaflensan
hefur komið upp er ekki ráð-
lagt að fara í neinar sérstakar
bólusetningar vegna
hennar. Þeim er hins
vegar ráðlagt að
forðast snertingu við
lifandi eða dauða
fugla og fuglaskít,
alls ekki borða
ósoðið eða illa soðið
fuglakjöt eða egg og
gæta fyllsta hreinlætis.
Stöðugar breytingar eru á
útbreiðslu fuglaflensunn-
ar en nýjustu upplýsing-
ar má alltaf finna á heimasíðu
Alþjóðadýraheilbrigðisstofnun-
arinnar, www.oie.int.
LIGGUR Í LOFTINU
TÍSKA - HEIMILI - HEILSA - FERÐIR
RACHEL WEISZ ER NÝTT AND-
LIT BURBERRY-ILMVATNSINS
EN AUGLÝSINGAHERFERÐIN
HÓFST Í GÆR.
Auglýsingin fyrir ilmvatnið,
sem ber nafnið Burberry
London, skartar leikkonunni
prúðu, Rachel Weisz, en hún
vann í vikunni Golden Globe-
verðlaunin fyrir besta leik í
aukahlutverki fyrir frammi-
stöðu sína í myndinni The
Constant Gardener.
Að sögn talsmanns Burberry
var fyrirtækið að leita að
fyrirsætu sem væri holdgerv-
ingur breskrar fegurðar. Að
sögn leikstjóra auglýsingar-
innar hefur Weisz þá fágun,
náttúrulegu fegurð og þann
ómótstæðilega þokka sem
aðstandendur auglýsingarinn-
ar voru að leita eftir.
Leikstjórinn, Christopher Bail-
ey, sagði ennfremur að helstu
áhrif ilmvatnsins og um leið
auglýsingarinnar væru ,,sjálf
borgin London - iðandi,
skemmtileg og spennandi“.
Nýtt andlit Burberry-ilmvatnsins
Rachel Weisz þykir hafa þá náttúru-
legu bresku fegurð sem Burberry
var að leita að. NORDICPHOTOS/GETTY-
IMAGES
Ásdís Rán
Finnst allir flottir á Íslandi
BLS. 2
Leigulist
Samstarfsfólk velur á
veggi vinnustaðar
BLS. 4
Alnæmi
Fræðsluvika í næstu viku
BLS. 6
Rent.is
Húsnæði til leigu fyrir
ferðamenn
BLS. 7