Fréttablaðið - 19.01.2006, Blaðsíða 27
FIMMTUDAGUR 19. janúar 2006
Hafnarstræti 19 Sími 551 1122
Helsinki
Áður 15.600 kr.
10.920 kr.
Normandy
Áður 16.900 kr.
11.830 kr.
Saga
Áður 6.560 kr.
4.590 kr.
Drífa Permatex
Áður 14.600 kr.
10.220 kr.
Peysur - mikið úrval
30% afsláttur
Opið alla daga
ÚTSALA
Enn meiri verðlækkun
Laugavegi 70
www.hsh.efh.is
Íslensk hönnun
Útsala
15% afsláttur af öllum vörum.
30-70% afsláttur af völdum vörum.
Rapparinn góðkunni, Sean ,,P.
Diddy“ Combs, hefur þurft að
breyta auglýsingu fyrir nýjasta
ilmvatnið sitt vegna innihalds
hennar.
P. Diddy hefur á undanförnum
misserum umbreyst í einn af
helstu tískumógúlum Bandaríkj-
anna. Nýlega lék hann í auglýs-
ingu fyrir ilmvatn sem ber nafn
rapparans sjálfsörugga. Í henni
birtist P. Diddy í rúmi ásamt hvítri
og asískri konu og er engu líkara
en þau hafi nýlokið við að njóta
ásta.
Þessi auglýsing hefur hins
vegar farið fyrir brjóstið á mörg-
um verslunareigendum vestanhafs
og þótti jafnvel sýna kynþáttafor-
dóma. Hafa sumir því brugðið á
það ráð að láta fjarlægja auglýs-
ingarnar. Sökum þess neyddist P.
Diddy til þess að breyta auglýs-
ingunni og sést í þeirri nýju aðeins
með einni dömu í stað tveggja. Sú
auglýsing þykir örlítið meira við-
eigandi fyrir verslanir á en sú
fyrri er enn notuð annars staðar
á ýmsum plakötum og auglýsinga-
skiltum.
P. Diddy of
kynþokkafullur
P. Diddy hefur verið að gera það gott í
tískuheiminum að undanförnu.
FRÉTTABLAÐIÐ/REUTERS
Alltaf á Föstudögum!
Laugavegi 51 • s: 552 2201
Útsalan í fullum gangi
20% auka afsláttur
Tískuhönnuðurinn Tommy
Hilfiger hefur það heldur
betur gott samkvæmt nýjum
launasamningnum hans eftir
yfirtöku Apax á Hilfiger-sam-
steypunni.
Ekki er langt síðan að breska fjár-
festingafélagið Apax keypti meiri-
hluta í Tommy Hilfiger tískusam-
steypunni eins og hér hefur áður
verið greint frá. Nýlega var skýrt
frá því að sjálfur Tommy Hilfiger
mun áfram starfa hjá fyrirtækinu
og launin sem hann fær eru svo
sannarlega ekkert slor.
Hilfiger hefur nefnilega gert
samning við Apax þess efnis að
hann muni að lágmarki fá 14,5
milljón dollara árlega næstu fjög-
ur ár eða sem samsvarar um 900
milljónum íslenskra króna. Þetta
þýðir að Hilfiger fær um tvær og
hálfa milljón krónur daglega fyrir
vinnu sína.
Áður voru laun Hilfigers voru
tengd almennri sölu og öðru slíku.
Upphaflega stóð til að Hilfiger
fengi að lágmarki 20 milljón doll-
ara á ári en stjórn Hilfiger sam-
steypunnar neitaði því sökum
þess að þá hefði hún fengið minni
pening fyrir hvern hlut í fyrir-
tækinu.
Hilfiger með
góð laun
Tmmoy Hilfiger hefur það gott eftir yfirtöku
Apax á samsteypu hans.
NORDICPHOTOS/GETTYIMAGES