Fréttablaðið - 19.01.2006, Page 30
[ ]Magaæfingar eiga alltaf vel við og sérstaklega núna í janúar. Magaæfingar er auðveldlega hægt að gera heima hjá sér og það er alveg lágmark að gera svona hundrað á dag.
Tímar þriðjud. og fimmtud.
kl. 10.15 – 11.30
Lótus Jógasetur
Borgartúni 20
4. hæð
Með fullkominni öndun dýpkar
svefninn sem leiðir til bættrar heilsu.
Upplýsingar í síma 821 7482,
netfang: yogamedmaggy@simnet.is
Heimasíða: lotusjogasetur.is
Rólegir og mjúkir tímar -
hentar vel einstaklingum
með vefjagigt og síþreytu.
BYRJAR 31. JANÚAR
10 VIKNA NÁMSKEIÐ
Fræðsluvika um alnæmi
verður haldin á vegum AISEC
á Íslandi í næstu viku. Marg-
ir fyrirlestar verða í boði og
leitað er eftir fólki til að vinna
að HIV-verkefnum heima og
erlendis.
Vikuna 23. til 27. janúar stendur
AISEC á Íslandi fyrir fræðslu-
viku um HIV og AIDS. Haldnir
verða fyrirlestrar um ýmis mál-
efni sem snerta veiruna og sjúk-
dóminn á einn eða annan hátt.
Haldinn verður einn fyrirlestur á
dag og má sjá dagskrá yfir þá á
www.hiv.aiesec.is. Alnæmisborð-
inn verður til sölu á öllum fyrir-
lestrunum.
Vikan hefst á fyrirlestri um
starfaskipti í Afríku og verða þeir
fyrirlestrar haldnir í Háskóla
Íslands, Háskólanum í Reykjavík
og Kennaraháskóla Íslands.
Starfaskiptin miða að því að
gefa nemendum kost á að starfa
að HIV-verkefni Aisecs. Verkefn-
ið miðar að því að virkja Ísland í
málefnum tengdum HIV og AIDS
sjúkdómnum bæði hérlendis og
erlendis. Hluti af HIV-verkefninu
er að vekja umræðu um málefnið
og fræða fólk, bæði á Íslandi og
erlendis, um sjúkdóminn ásamt
því að gefa fólki tækifæri og
reynslu til að vinna að þróunar-
störfum.
Fræðsluvika um alnæmi
Afríka er sú álfa þar sem alnæmi er hvað útbreiddast. Virk fræðsla bæði í þróunarlöndum og heima fyrir hjálpar í baráttunni við þennan
sjúkdóm.
Stjórnvöld í Tyrklandi hafa ver-
ið gagnrýnd fyrir hæg viðbrögð
við fuglaflensu þar í landi.
Evrópusambandið hefur aukið
framlög sín til baráttunnar.
Evrópusambandið setur nú um
7,4 milljarða, 100 milljónir evra,
í baráttuna gegn fuglaflensu. Til
viðbótar við það hafa löndin 25
sem mynda Evrópusambandið nú
þegar varið því sem nemur 120
milljónum bandaríkjadala í þessa
baráttu.
Nú hefur um milljónum ali-
fugla verið slátrað í Tyrklandi en
þar hefur fuglaflensunnar orðið
vart í öllum landshlutum. Hefur
þetta aukið á áhyggjur manna yfir
því að fuglaflensan breiðist út um
Evrópu.
Stjórnvöld í Tyrklandi hafa
verið gagnrýnd fyrir að slátr-
un fuglanna gangi of hægt en nú
þegar hafa 18 manns smitast af
veirunni þar í landi. Í Tyrklandi
er einnig mikill skortur á læknum
og sérfræðimenntuðu fólki sem
bætir ekki á ástandiið.
Evrópusambandið
eykur framlög
Evrópusambandið hefur aukið framlög sín til baráttunnar gegn fuglaflensu af ótta við að
flensan breiðist út um alla Evrópu.
Í kvöld klukkan átta verður
haldinn rabbfundur á vegum
Astma- og ofnæmisfélagsins í
SÍBS-húsinu í Síðumúla.
Fundurinn er opinn öllum þeim
sem þjást af eða hafa áhuga á
ofnæmi og astma. Davíð Gíslason,
sérfræðingur í lyflækningum og
ofnæmissjúkdómum fjallar um
ofnæmissjúkdóma á Íslandi fyrr
og nú og svarar fyrirspurnum.
Nánari upplýsingar má finna á
www.ao.is.
Astmi og ofnæmi
Veittu vellíðan – gefðu bónda
þínum gjafakort í NordicaSpa
Gjafakort í heilsulind NordicaSpa er tilvalin gjöf. Við bjóðum upp á fyrsta flokks
snyrtimeðferðir fyrir andlit og líkama og ýmsar tegundir af nuddi.
Hægt er að kaupa gjafakort fyrir ákveðna upphæð, í tiltekna meðferð og ýmsa
spa pakka. Einnig er hægt að kaupa gjafakort í heilsuræktina – meðlimakort,
einkaþjálfun eða námskeið. Við aðstoðum þig við að finna réttu gjöfina handa
þeim sem þú vilt gleðja.
Við leggjum áherslu á andlega og líkamlega vellíðan og er Nordica Spa heimur
út af fyrir sig.
Opnunartímar: