Fréttablaðið


Fréttablaðið - 19.01.2006, Qupperneq 30

Fréttablaðið - 19.01.2006, Qupperneq 30
[ ]Magaæfingar eiga alltaf vel við og sérstaklega núna í janúar. Magaæfingar er auðveldlega hægt að gera heima hjá sér og það er alveg lágmark að gera svona hundrað á dag. Tímar þriðjud. og fimmtud. kl. 10.15 – 11.30 Lótus Jógasetur Borgartúni 20 4. hæð Með fullkominni öndun dýpkar svefninn sem leiðir til bættrar heilsu. Upplýsingar í síma 821 7482, netfang: yogamedmaggy@simnet.is Heimasíða: lotusjogasetur.is Rólegir og mjúkir tímar - hentar vel einstaklingum með vefjagigt og síþreytu. BYRJAR 31. JANÚAR 10 VIKNA NÁMSKEIÐ Fræðsluvika um alnæmi verður haldin á vegum AISEC á Íslandi í næstu viku. Marg- ir fyrirlestar verða í boði og leitað er eftir fólki til að vinna að HIV-verkefnum heima og erlendis. Vikuna 23. til 27. janúar stendur AISEC á Íslandi fyrir fræðslu- viku um HIV og AIDS. Haldnir verða fyrirlestrar um ýmis mál- efni sem snerta veiruna og sjúk- dóminn á einn eða annan hátt. Haldinn verður einn fyrirlestur á dag og má sjá dagskrá yfir þá á www.hiv.aiesec.is. Alnæmisborð- inn verður til sölu á öllum fyrir- lestrunum. Vikan hefst á fyrirlestri um starfaskipti í Afríku og verða þeir fyrirlestrar haldnir í Háskóla Íslands, Háskólanum í Reykjavík og Kennaraháskóla Íslands. Starfaskiptin miða að því að gefa nemendum kost á að starfa að HIV-verkefni Aisecs. Verkefn- ið miðar að því að virkja Ísland í málefnum tengdum HIV og AIDS sjúkdómnum bæði hérlendis og erlendis. Hluti af HIV-verkefninu er að vekja umræðu um málefnið og fræða fólk, bæði á Íslandi og erlendis, um sjúkdóminn ásamt því að gefa fólki tækifæri og reynslu til að vinna að þróunar- störfum. Fræðsluvika um alnæmi Afríka er sú álfa þar sem alnæmi er hvað útbreiddast. Virk fræðsla bæði í þróunarlöndum og heima fyrir hjálpar í baráttunni við þennan sjúkdóm. Stjórnvöld í Tyrklandi hafa ver- ið gagnrýnd fyrir hæg viðbrögð við fuglaflensu þar í landi. Evrópusambandið hefur aukið framlög sín til baráttunnar. Evrópusambandið setur nú um 7,4 milljarða, 100 milljónir evra, í baráttuna gegn fuglaflensu. Til viðbótar við það hafa löndin 25 sem mynda Evrópusambandið nú þegar varið því sem nemur 120 milljónum bandaríkjadala í þessa baráttu. Nú hefur um milljónum ali- fugla verið slátrað í Tyrklandi en þar hefur fuglaflensunnar orðið vart í öllum landshlutum. Hefur þetta aukið á áhyggjur manna yfir því að fuglaflensan breiðist út um Evrópu. Stjórnvöld í Tyrklandi hafa verið gagnrýnd fyrir að slátr- un fuglanna gangi of hægt en nú þegar hafa 18 manns smitast af veirunni þar í landi. Í Tyrklandi er einnig mikill skortur á læknum og sérfræðimenntuðu fólki sem bætir ekki á ástandiið. Evrópusambandið eykur framlög Evrópusambandið hefur aukið framlög sín til baráttunnar gegn fuglaflensu af ótta við að flensan breiðist út um alla Evrópu. Í kvöld klukkan átta verður haldinn rabbfundur á vegum Astma- og ofnæmisfélagsins í SÍBS-húsinu í Síðumúla. Fundurinn er opinn öllum þeim sem þjást af eða hafa áhuga á ofnæmi og astma. Davíð Gíslason, sérfræðingur í lyflækningum og ofnæmissjúkdómum fjallar um ofnæmissjúkdóma á Íslandi fyrr og nú og svarar fyrirspurnum. Nánari upplýsingar má finna á www.ao.is. Astmi og ofnæmi Veittu vellíðan – gefðu bónda þínum gjafakort í NordicaSpa Gjafakort í heilsulind NordicaSpa er tilvalin gjöf. Við bjóðum upp á fyrsta flokks snyrtimeðferðir fyrir andlit og líkama og ýmsar tegundir af nuddi. Hægt er að kaupa gjafakort fyrir ákveðna upphæð, í tiltekna meðferð og ýmsa spa pakka. Einnig er hægt að kaupa gjafakort í heilsuræktina – meðlimakort, einkaþjálfun eða námskeið. Við aðstoðum þig við að finna réttu gjöfina handa þeim sem þú vilt gleðja. Við leggjum áherslu á andlega og líkamlega vellíðan og er Nordica Spa heimur út af fyrir sig. Opnunartímar:
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.