Fréttablaðið - 19.01.2006, Síða 40
16
ATVINNA
ÚTBOÐ
19. janúar 2006 FIMMTUDAGUR
Bílastæðasjóður óskar eftir
að ráða stöðuverði til starfa
Starfssvið
• Eftirlit með bifreiðastöðum og notkun gjaldskyldra
bílastæða utanhúss
• Álagning aukastöðugjalda og stöðvunarbrotagjalda
• Ritun umsagnar vegna stöðvunarbrota
• Samskipti við viðskiptavini og starfsmenn Bílastæðasjóðs
Hæfniskröfur
• Ökuréttindi
• Stundvísi, reglusemi og almennt hreysti
• Færni í mannlegum samskiptum, þjónustulund og áræðni
• Skriffærni á íslensku
• Æskilegt er að viðkomandi hafi gott vald á ensku og einu
norðurlandamáli
Annað
Vinnutími er frá 9:00 til 18.00 og starfið hentar jafnt
konum sem körlum
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Reykjavíkurborgar og
Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar. Umsóknarfrestur er til
2. febrúar n.k. og skal senda umsóknir til Bílastæðasjóðs
Reykjavíkur merkt “Stöðuvörður”, Hverfisgötu 14, 101
Reykjavík. Hægt er að nálgast umsóknareyðublöð í afgreiðslu
okkar eða senda umsókn á haukura@reykjavik.is.
Nánari upplýsingar veitir Haukur Ástvaldsson aðalvarðstjóri í
síma 585-4500.
Bílastæðasjóður er sjálfstætt fyrirtæki í eigu Reykjavíkurborgar.
Megintilgangur er að stýra nýtingu bílastæða í því skyni að útvega gestum
og viðskiptavinum miðborgarinnar vel staðsett skammtímastæði þar sem
nauðsyn krefur. Bílastæðasjóður fer jafnframt með eftirlit með bifreiðastöðum
í því skyni að greiða fyrir umferð gangandi jafnt sem akandi vegfarenda
Stöðuverðir
Bílastæðasjóður
F.h. Framkvæmdasviðs Reykjavíkurborgar:
Málningarvinna í fasteignum Reykjavíkur-
borgar – Hverfi 4 og 5.
Útboðsgögn verða seld á kr. 3.000, í upplýsinga-
þjónustu Ráðhúss Reykjavíkur, frá og með
23. janúar 2006. Opnun tilboða: 1. febrúar 2006
kl 10:00, í Ráðhúsi Reykjavíkur. 10670
Nánari upplýsingar er að finna á
www.reykjavik.is/utbod
Góðar aukatekjur í líflegu umhverfi!
Stórt útgáfufyrirtæki í Reykjavík óskar eftir að ráða til starfa
hresst og jákvætt fólk í úthringingar. Mjög góð aukavinna,
föst laun og bónusar. Unnið er um kvöld og helgar. 18 ára
aldurstakmark.
Frekari upplýsingar í síma 522-2075 virka daga á milli
kl. 10.00 – 22.00 og í síma 869-8891 á milli kl. 18.00 - 22.00.
Aðalfundur Foreldrafélags axlarklemmubarna
verður haldinn 26. janúar 2006 kl. 19.30 að
Háaleitisbraut 13. 4. hæð í fundarsal Sjónarhóls.
Venjuleg aðalfundarstörf og kosning til stjórnar félagsins.
Félagsmenn og aðrir velunnarar eru hvattir til að mæta.
Stjórnin.
Samtök um sorg og sorgarviðbrögð
Fræðslufundur í Bústaðakirkju (kjallara)
í kvöld 19. janúar kl. 20-22.
Umfjöllunarefni: Sorg og sorgarviðbrögð.
Fyrirlesarar eru sr. Gunnar Rúnar Matthíasson
og sr. Pálmi Matthíasson. Allir velkomnir!
Sorg og sorgarviðbrögð
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI
TILKYNNINGAR
Fr
u
m
HÁTÚN 6A
SÍMI 5 12 12 12
Netfang: foss@foss.is
Bragi Björnsson,
lögmaður
Erum að leita að húsnæði til
kaupa undir smíðaverkstæði,
miðsvæðis í Reykjavík. Helst
staðsett á svæði 101 eða 107.
Húsnæðið þarf að vera ca 40
- 120 fm. Má þarfnast stand-
setningar.
Nánari upplýsingar veitir Foss fasteignasala.
Húsnæði óskast
undir smíðaverkstæði,
miðsvæðis í Reykjavík
FASTEIGNIR
Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum hjá borginni.
Atvinnuauglýsingar má einnig skoða á heimasíðu Reykjavíkurborgar:
www.reykjavik.is/storf
Hjá símaveri Reykjavíkurborgar, 4 11 11 11, færð þú allar upplýsingar um þjónustu
og starfsemi borgarinnar og samband við þá starfsmenn sem þú þarft að ná í.
Menntasvið annast starfsemi og rekstur grunnskóla
og leikskóla. Í því felst þróun grunnskóla- og leik-
skólastarfs, undirbúningur stefnumörkunar, mat og
eftirlit með skólastarfi og upplýsingamiðlun fyrir
menntaráð og starfshópa á vegum ráðsins.
MENNTASVIÐ – LEIKSKÓLAR
Matráður í Seljakot
Óskað er eftir matráði í leikskólann Seljakot,
Rangárseli 15. Seljakot er þriggja deilda leikskóli
þar sem dvelja tæplega 60 börn samtímis.
Helstu verkefni matráðs eru að skipuleggja og annast
matreiðslu og sjá um innkaup á hráefnum. Hann hefur
yfirumsjón með hreinlæti og frágangi í eldhúsi og vinnur
í nánu samstarfi við leikskólastjóra.
Hæfniskröfur:
Menntun á sviði matreiðslu og/eða reynsla af matreiðslu
Góð þekking á næringarfræði
Þekking á rekstri
Hæfni í mannlegum samskiptum
Upplýsingar veitir Sigríður Jónsdóttir leikskólastjóri í síma
557-2350. Einnig veitir starfsmannaþjónusta Menntasviðs
upplýsingar í síma 411-7000.
Umsóknir sendist í leikskólann Seljakot, Rangárseli 15.
Umsóknareyðublöð er hægt að nálgast á leikskolar.is.
Laun eru samkvæmt kjarasamningum Reykjavíkurborgar við
viðkomandi stéttarfélög.
32-40 (08-16) Smáar 18.1.2006 15:59 Page 10