Fréttablaðið - 19.01.2006, Blaðsíða 48
FIMMTUDAGUR 19. janúar 2006 32
��������������������������������� ���������������������������������������������������
�� ����������������������������������������� ���������� ��������������������������
����������������������������������������
�������������������������������
���������������������������������������������������������������������������������������������
������������ �������������� �� �����������
������������ ��������������������
�����������������������������
������������� ��������������������������������
Fös. 20. Jan. kl.20
Lau. 21. Jan. kl.20 örfá sæti laus
Lau. 28. Jan. kl.20
Fös. 3. Feb. kl. 20
Lau. 4. Feb. kl. 20
Mind Camp
eftir Jón Atla Jónasson
Hátíðaropnun
Sun. 15. Jan. kl 19.57 uppselt
Fim. 19. Jan. kl 19.57
Sun . 22. Jan. kl 19.57
Fös. 27. Jan. kl. 19.57
Sun. 29. Jan. kl. 19.57
Námsmenn og Vörðufélagar fá
miðann á Mind Camp á 1000 kr.
í boði Landsbankans
Ef
eftir Valgeir Skagfjörð/
Einar Má Guðmundsson
Mán. 16. Jan.kl. 9 og 11 Uppsellt
Þrið. 17. Jan.kl. 9 og 11 uppsellt
Þrið. 24. Jan.kl. 9 og 11 Uppsellt
Mið. 25. Jan.kl. 9 og 11 Uppsellt
Einstakt enskunámskeið
�����������������������������������������
���������������������������
• Fjarnám með 27 1/2 tíma enskunámskeiði á cd diskum
• Slökunardiskur með jákvæðri staðfestingu með tónlist
frá Friðriki Karlssyni
• Vinnubók með enska og íslenska textanum
• Taska undir diskana
• Áheyrnarpróf í lok náms
Mörg stéttarfélög, fræðslusjóðir og fyrirtæki styrkja þetta námskeið
Allar uppl‡singar
www.pareto.is
eða í símum 540-8400 eða 820-3799
Yfir vetrarmánuðina er
jafnan blómlegt tónlistarlíf
í Salnum í Kópavogi. Dag-
skráin fram á vor er drekk-
hlaðin af forvitnilegum
tónleikum, meðal annars
býður Mugison upp á nýtt
efni á kammertónleikum
með KaSa-hópnum.
„Það er óvenjulega glæsilegt fram-
undan hjá okkur,“ segir Vigdís Esra-
dóttir forstöðumaður Salarins. Uppi-
staðan í tónleikadagskrá Salarins er
tónleikaröðin TÍBRÁ, sem hófst að
vanda um síðustu helgi með árlegum
Nýárstónleikum Salarins þar sem
Diddú og Salonhljómsveit Sigurðar
Ingva Snorrasonar fluttu gleðitón-
list frá Vínarborg.
Strax um næstu helgi eru síðan
tveir framúrskarandi píanistar
væntanlegir, þeir Allan Schiller
og John Humphreys. Þeir ætla að
leika fjórhent verk eftir meistara
Vínarklassíkurinnar, Mozart og
Schubert, í tilefni þess að nú eru
liðin 250 ár frá fæðingu Wolfgangs
Amadeusar.
Þess má geta að þessir sömu
píanistar hafa verið valdir til þess
að flytja þessa sömu efnisskrá á
fæðingardegi Mozarts, þann 27.
janúar, í hinum virta tónleikasal
Wigmor Hall.
„Um miðjan febrúar verður hinn
feykivinsæli og fjölhæfi tónlistar-
maður Mugison, eða Örn Elías Guð-
mundsson, gestur KaSa-hópsins,“
segir Vigdís. KaSa-hópinn, sem
áður hét Kammermúsíkhópur Sal-
arins, skipa að þessu sinni þau Elfa
Rún Kristinsdóttir, fiðla, Sigurgeir
Agnarsson, selló, Helga Þórarins-
dóttir, víóla, Áshildur Haraldsdóttir,
flauta og Nína Margrét Grímsdóttir,
píanó.
KaSa-hópurinn heldur að jafn-
aði nokkra tónleika í Salnum á vetri
hverjum, en hefur bryddað upp á
þeirri nýbreytni síðastliðna tvo vetur
að halda eina sameiginlega tónleika
með virtu tónlistarfólki úr popp- og
rokkgeiranum. Fyrir tveimur árum
kom hljómsveitin Búdrýgindi, þá
nýbakaðir sigurvegarar Músíktil-
rauna, fram með KaSa-hópnum, en
í fyrra var það Eivör Pálsdóttir hin
færeyska sem söng með hópnum.
Í ár er það sem sagt Mugison sem
stígur á svið með kammertónlistar-
fólkinu.
„Mugison sagði mér í gær að
hann ætli að vera með alveg nýtt
prógramm. Hann hefur verið að
semja tónlist sérstaklega fyrir þessa
tónleika,“ segir Vigdís.
„Aðra helgi í mars eru sérstakir
hátíðartónleikar í TÍBRÁ, en með
þeim tónleikum fagnar sellósnilling-
urinn Erling Blöndal Bengtsson því
að um þessar mundir eru liðin 60 ár
frá því að hann hélt sína fyrstu tón-
leika, en það var einmitt á Íslandi.“
Sunnudaginn 23. apríl mætir
síðan hinn ungi fiðlusnillingur
Barnabás Keleman á sviðið í Saln-
um, en hann hefur áður haldið þar
tónleika. Að þessu sinni verður kona
hans, Katalin Kokas, með í för en
hún er einnig fiðluleikari. „Efnis-
skrá tónleikanna er afar sérstæð
og einstakt tækifæri að heyra verk
fyrir tvær fiðlur – án undirleiks
– leikin af innvígðum snillingum
fiðlunnar, en hjónin Kokas Katalin
og Barnabás Keleman eru meðal
hæfileikaríkustu og eftirtektar-
verðustu fiðluleikurum sinnar kyn-
slóðar.“
Síðustu TÍBRÁR-tónleikar
starfsársins eru síðan samkvæmt
hefð fluttir á afmælisdegi Kópavogs-
bæjar, 11. maí. Tónleikarnir nefnast
Kliður fornra strauma, íslensk efn-
isskrá þar sem fram koma þau Bára
Grímsdóttir, Sigurður Rúnar Jóns-
son og Steindór Andreasen.
Hér hefur reyndar aðeins verið
stiklað á stóru í efnisskrá tónleik-
araðarinnar TÍBRÁ, sem jafnan
er uppistaðan í tónleikadagskrá
Salarins. Alls verða fluttir sextán
tónleikar í TÍBRÁ núna á vorönn
og eru flytjendur fjörutíu og fjórir
talsins; fjórtán söngvarar og fjórtán
strengjaleikarar, tólf píanóleikarar,
þrír blásarar og einn slagverksleik-
ari, þar af sextán af erlendu bergi
brotnir.
Auk TÍBRÁR-tónleikanna eru
fjölmargir aðrir tónleikar á dagskrá
Salarins, til að mynda verður hljóm-
sveitin Mannakorn með útgáfu-
tónleika þar eftir um það bil tvær
vikur.
Vigdís segist reyndar hafa tekið
eftir því að fólk átti sig stundum
ekki á því hvað tónleikaröðin TÍBRÁ
felur í sér.
„Hvað er TÍBRÁ og hvað er ekki
TÍBRÁ? Þetta ruglar fólk stundum
í ríminu.“
Svarið er hins vegar einfalt:
TÍBRÁ tryggir gæðin.
„TÍBRÁ er tónleikaröð þar sem
fólk getur gengið að gæðunum
vísum. Við fengum yfir 90 umsókn-
ir í fyrra frá tónlistarfólki, en það
komust ekki nema eitthvað á milli
20 og 30 í þessa tónleikaröð. Við
tryggjum þarna gæðin.“ ■
MUGISON Ætlar að frumflytja nýtt efni á kammertónleikum með KaSa-hópnum í Salnum
um miðjan febrúar.
Tíbrá tryggir gæðin
BARNABÁS KELEMAN Fiðlusnillingurinn ungi mætir öðru sinni í Salinn í apríl, að þessu
sinni ásamt konu sinni, Kokas Katalin, sem einnig er fiðluleikari.
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI
1 dálkur 9.9.2005 15:22 Page 9