Fréttablaðið - 19.01.2006, Síða 54
19. janúar 2006 FIMMTUDAGUR38
FYRSTI KVENFORSETINN Geena
Davis leikur fyrsta kvenforsetann
í Bandaríkjunum í þáttunum
Commander in Chief. Meðleikari
hennar Donald Sutherland var
einnig tilnefndur en bar ekki
sigur úr býtum.
Golden Globe-verðlaunin voru afhent aðfara-nótt þriðjudags á Beverly Hills-hótelinu og var mikið um dýrðir að venju. Það eru sam-
tök erlendra blaðamanna í Hollywood sem standa að
þeim og þykja þau gefa ágætis vísbendingu um það
sem koma skal á Óskarnum.
Hommakúrekamyndinni Brokeback Mountain
hafði verið spáð mikilli velgengni enda var hún til-
nefnd til sjö verðlauna. Það fór einnig svo að þessi
hugljúfa og rómantíska ástarmynd Ang Lee fékk
fjóra gullknetti en þó engan fyrir leik sem kom
töluvert á óvart því margir höfðu spáð Heath
Ledger sigri fyrir leik sinn sem Ennis Del Mar.
Það var hins vegar Phillip Seymour Hoffman
sem hirti þau fyrir leik sinn í Capote. Felic-
ity Huffman, sem er sjónvarpsáhorfendum að
góðu kunn fyrir leik sinn í Aðþrengdum eigin-
konum, fékk sinn Gullhnött sem Stanley „Bree“
Osbourne Lee í Transamerica en myndin segir frá
kynskiptingi sem fer að leita að syni sínum en sá er
hinn mesti vandræðagemsi.
Ang Lee getur þó ekkert farið að taka til í hill-
unni hjá sér því hann fær eflaust harða samkeppni
þegar Óskar frændi verður afhentur en kvikmyndin
Walk the Line fékk þrenn verðlaun í flokki gaman-
eða söngmynda. Voru aðalleikararnir Reese
Witherspoon og Joaquin Phoenix bæði
meðal sigurvegara en þau þykja fara
á kostum sem June Carter og Johnny
Cash.
Það voru hinn breski Hugh Laurie
og bandaríski gamanleikarinn Steve
Carrel sem stálu hins vegar senunni
því ræður þeirra þóttu mjög fyndnar
en þeir voru báðir verðlaunaðir fyrir
leik sinn í sjónvarpsþáttum.
SIGRAÐI AÐÞRENGDU
EIGINKONURNAR Mary
Louise Parker kom, sá og
sigraði Aðþrengdu eiginkonurnar
en hún leikur í þáttaröð-
inni Weeds sem sýnd
er á sjón-
varps-
stöðinni
Sirkus.
PÓLITÍSKUR TRYLLIR Rachel Weisz vann frekar óvænt fyrir leik sinn í pólitíska tryllinum The
Constant Gardner en hér er hún ásamt Adrien Brody og Natalie Portman.
EFTIRMINNILEGUR CAPOTE Phillip Seymour
Hoffman hirti Golden Globe-verðlaunin fyrir
frammistöðu sína sem Truman Capote en
leikur hans þykir stórbrotinn.
SIGURVEGARI KVÖLDSINS Brokeback Mountain var sigurvegari kvöldsins en myndin fékk
fern verðlaun, þar á meðal sem besta myndin, besta handritið og besta leikstjórn en hér eru
einmitt framleiðandinn James Schamus, Diana Ossana og Ang Lee með afrakstur kvöldsins.
SIGURSÆL Bæði Reese
Witherspoon og Joaquin
Phoenix hrepptu Gullhnött-
inn fyrir leik sinn í Walk
the Line sem lýsir fyrstu
kynnum June Carter og
Johnny Cash.
FRÉTTABLAÐIÐ / GETTY IMAGES
SKEMMTILEG RÆÐA Hugh Laurie var stór-
skemmtilegur uppi á sviði og sagðist hafa
skrifað yfir 150 nöfn á litla miða sem hann
gæti þakkað. Leikarinn dró síðan þrjú nöfn
af handahófi til að svekkja engan.
CECIL B. DEMILLE-VERÐ-
LAUNIN Anthony Hopkins
var heiðraður á hátíðinni
og fékk hin mjög svo virtu
Cecil B. DeMille verðlaun en
Hopkins þykir einn allra besti
leikari okkar tíma.
VALDAMIKILL
George Clooney
er að verða gríð-
arlega valdamikill
í Hollywood en
hann fékk Golden
Globe-hnöttinn
fyrir leik sinn í
Syriana.
EKKI BARA EIG-
INKONA Felicity
Huffman sigraði
á Emmy fyrir leik
sinn í Aðþrengdum
eiginkonum. Hún
átti heldur ekki í
miklum erfiðleik-
um með að landa
Golden Globe-
verðlaununum fyrir
frammistöðu sína í
Transamerica.
BROKEBACK FJALLIÐ
GNÆFÐI YFIR ÖLLU