Fréttablaðið - 20.01.2006, Page 2

Fréttablaðið - 20.01.2006, Page 2
2 20. janúar 2006 FÖSTUDAGUR LÖGREGLA Tveir menn um tvítugt voru handteknir í Hafnarfirði í fyrrakvöld með um fimmtíu grömm af hassi, amfetamín og e-töflur. Þeir voru að koma frá sölu- manni í Reykjavík og ætluðu þeir að selja efnið áfram til neytenda. Lögreglan þekkir til mannanna og voru þeir stöðvaðir í sameigin- legu eftirliti lögregluembættanna í Hafnarfirði og Kópavogi. Í eftirlitinu fannst einnig eitt gramm af amfetamíni til einka- nota á bílstjóra í Garðabæ. Lög- regluembættin stefna á frekari samvinnu til að sporna við fíkni- efnabrotum. Mennirnir þrír voru yfirheyrðir og teljast málin upp- lýst. - gag Tvö fíkniefnamál: Ætluðu að selja fíkniefni SPURNING DAGSINS Steingrímur, er ekki ljótt að skilja útundan? „Jú, þess vegna fá allir að vera með í afmælinu.“ Jóhannes Gunnarsson, formaður Neyt- endasamtakanna, er ósáttur við að fá ekki að sitja með í nefnd forsætisráðherra um matvælaverð. Steingrímur Ólafsson, upp- lýsingafulltrúi forsætisráðuneytisins, segir að í staðinn verði haft náið samstarf við Neytendasamtökin. ������ ��������� ���� ������ ��������� �� ���������� ������ �� ������������������������������ ������������������������������ ���� ������ ������ ������ ����� ����������������������������� �������� ���� ��������� ������� ��� ������� ��� ������� ������ ���� ���� ����� �������� �������� ��� ���������������������� ����� ������������������������������ ��� ��� ������ ����������� ������ ������� �������������� ��� ���� ���������������������������������� �������� ��� ���������� ���� ���� ��������������������������������� ������������������������������ �� ����� ��������� ����������� ����� ������ �������������� ����� ������������������ ����� ���� �������� ��������� Keyrði á ljósastaur Maður á miðjum aldri missti bifreið sína útaf í mikilli hálku á milli Fellabæjar og Egilsstaða snemma í gærmorgun. Bíllinn rakst utan í ljósastaur sem brotnaði. Maðurinn slapp ómeiddur enda í bílbelti. LÖGREGLUFRÉTTIR Fjórir á sjúkrahús Fjórir voru fluttir undir læknishendur eftir slys á skíða- svæðum við höfuðborgarsvæðið. Í gær- kvöldi var stúlka flutt meðvitundarlaus á sjúkrahús. Hún hafði fallið efst í skíða- brekku Bláfjalla. Ekki var vitað um líðan hennar þegar Fréttablaðið fór í prentun. Tveir aðrir slösuðust í Bláfjöllum og einn í Hveradölum í gær en ekki alvarlega. SKÍÐASVÆÐIN STJÓRNMÁL Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra telur ekki að tafir þurfi að verða á afgreiðslu frumvarps ríkisstjórnarinnar um ógildingu þeirra launahækkana sem Kjaradómur ákvað fyrir ára- mótin. Ýmsir löglærðir menn hafa varað við því að stjórnvöld geti bakað sér skaðabótaskyldu vegna brota á eignaréttarákvæði stjórn- arskrárinnar verði launahækk- anir Kjaradóms afturkallaðar. „Ég býst fastlega við því að takast muni að ljúka málinu fyrir helgi,” segir forsætisráð- herra. “Það er mjög mikilvægt. Ráðstefna sveitarfélaganna um launamál er nú um helgina. Það verður að liggja alveg skýrt fyrir hver vilji Alþingis og ríkisstjórn- arinnar er. Menn gera þetta ekki að gamni sínu.“ Halldór bendir á að aðilar vinnumarkaðarins hafi talið full- víst að ef ekki yrði gripið inn í, vegna úrskurðar Kjaradóms fyrir áramót um launahækkanir, hefði það mjög slæmar afleið- ingar fyrir þróun kjaramála og að í gang færu víxlhækkanir launa og verðlags. „Því grípum við til þessa ráðs. Þessi brýna þörf gengur lengra en efasemdir manna um annað,“ segir Halldór. Frumvarpið er enn óbreytt í meðförum þingsins, en stjórn- arandstaðan hefur efasemdir og styður ekki meirihlutaálit efna- hags- og viðskiptanefndar. - jh HALLDÓR ÁSGRÍMSSON Krafa aðila vinnumarkaðarins stendur ofar mörgum álitamálum að mati Halldórs. Sveitarfélögin fjalla um kjaramál á ráðstefnu um helgina og líta til Kjaradóms: Alþingi verður að tala skýrt EGYPTALAND, AP Arabíska sjónvarps- stöðin al-Jazeera sendi í gær út brot úr hljóðupptöku sem Osama bin Laden er sagður hafa gert í síðasta mánuði. Þar varar hryðjuverkafor- inginn við yfirvofandi árásum al- Kaída samtakanna á Bandaríkin, en sagðist jafnframt vera tilbúinn að semja um langtíma vopnahlé við Bandaríkjamenn, gangi þeir að vissum skilyrðum. Ekki kom fram hver skilyrðin eru. „Það er okkur ekki á móti skapi að bjóða ykkur sanngjarnan lang- tíma vopnahléssamning,“ sagði röddin á spólunni. „Það er engin skömm að slíkri úrlausn, sem kemur í veg fyrir sóun milljarða dala sem hafa farið til áhrifa- og stríðsæsingamanna innan Banda- ríkjanna.“ Jafnframt sagði röddin ástæðuna fyrir því að engar árásir hefðu verið gerðar á landið síðan árið 2001 þá að undirbúningur slíkra aðgerða taki langan tíma og jafnframt að hert öryggisgæsla innan Bandaríkjanna hafi ekki haft áhrif þar á. Ekkert hefur heyrst frá bin Laden síðan í desember 2004, sem er lengsta hlé sem hann hefur tekið sér í fimm ár. Í heild sinni er spólan um 10 mínútna löng og völdu starfsmenn sjónvarpsstöðvarinnar kaflana fjóra sem spilaðir voru í gær vegna fréttagildis þeirra, að sögn Ahmed al-Sheik, aðalritstjóra al-Jazeera. - smk Hljóðupptöku með meintum orðum Osama bin Ladens sjónvarpað í gær: Boðar árásir á Bandaríkin BÝÐUR VOPNAHLÉ Gömul mynd af Osama bin Laden var birt á sjónvarpsskjánum á meðan brot úr hljóðupptöku var leikið. FRÉTTABLAÐIÐ/AFP STJÓRNMÁL Til athugunar er að Fjármálaeftirlitið fái að beita dagssektum og stjórnvaldssekt- um til þess að geta sinnt eftirlits- skyldum sínum á áhrifaríkari hátt en verið hefur. Þetta kom fram í máli Val- gerðar Sverrisdóttur viðskipta- ráðherra við upphaf þingfundar í gær, en hún boðar frumvarp um málið á vorþingi. Jóhanna Sigurðardóttir, þing- maður Samfylkingarinnar, spurði Valgerði um viðbrögð við bréfi sem Fjármálaeftirlitið sendi henni í byrjun nóvember síðast- liðnum. Orðrétt segir í bréfinu til ráðherra að „þrátt fyrir ótví- ræðar lagaskyldur til upplýsinga- gjafar sé mönnum frjálst að gefa Fjármálaeftirlitinu langt nef og hundsa að gefa þeim upplýsingar við rannsókn mála því eftirlit- ið hafi engin úrræði til að fylgja upplýsingum eftir.“ Jóhanna sagði að Fjármála- eftirlitið teldi að heimildir þess til að hafa eftirlit væru í uppnámi og það gilti ekki aðeins um banka- starfsemi heldur einnig trygg- ingastarfsemi, lífeyrissjóði og verðbréfaviðskipti. Tilefni bréfs Fjármálaeft- irlitsins var að kærunefnd um opinbert eftirlit með fjármála- starfsemi hafnaði beiðni Fjár- málaeftirlitsins um að það fengi að beita einstaklinga dagsektum vegna yfirtökutilrauna í Spari- sjóði Hafnarfjarðar. Því máli hefur nú verið vísað til ríkislög- reglustjóra. Valgerður upplýsti að frum- varp væri í undirbúningi og yrði lagt fram nú á vorþingi. „Ákvæði um dagssektir og stjórnvaldssektir koma þar til skoðunar ásamt öðrum úrræðum sem Fjármálaeftirlitið telur sig þurfa að hafa. Vinnan er langt komin,“ sagði Valgerður. Stjórnarandstæðingar minntu á að í bréfi Fjármálaeftirlitsins hefði verið beðið um tafarlausar aðgerðir og hvöttu viðskiptaráð- herra til að hraða verkinu. „Mér þykir ráðuneytið svifa- seint. Er ekki hægt að taka þetta atriði út og hraða því? Fjármála- eftirlitið kallar ekki alla daga eftir lagaheimildum,“ spurði Jóhanna Sigurðardóttir og efað- ist um að nægilega hratt væri brugðist við. johannh@frettabladid.is JÓHANNA SIGUÐARDÓTTIR ÞINGMAÐUR SAMFYLKINGARINNAR Jóhönnu þykir viðskipta- ráðuneytið svifaseint að hafa ekki enn brugðist við beiðni Fjármálaeftirlitsins. VALGERÐUR SVERRISDÓTTIR VIÐSKIPTA- RÁÐHERRA „Ákvæði um dagskektir og stjórnvaldssektir koma þar til skoðunar ásamt öðrum úrræðum.“ Hert eftirlit boðað á fjármálamarkaðnum Viðskiptaráðherra boðar frumvarp til laga um heimildir Fjármálaeftirlitsins til þess að beita harðari viðurlögum í eftirlitsstörfum sínum en nú tíðkast. Fjár- málaeftirlitið bað um tafarlausar aðgerðir í málinu fyrir nærri ársfjórðungi. DÓMSMÁL Karlmaður var í Hæsta- rétti í gær dæmdur í tveggja ára fangelsi og sviptur ökuleyfi ævi- langt. Maðurinn var dæmdur fyrir líkamsárás gegn fyrrum sam- býliskonu sinnar sem og þjófnað og umferðarlagabrot. Maðurinn beitti konuna líkamlegu ofbeldi, hótun um líkamlegt ofbeldi og ólögmætri nauðung til að fá hana til að undirrita yfirlýsingu um að hún drægi til baka kæru á hendur honum fyrir nauðgun. Manninum er gert að greiða konunni 300.000 krónur í miska- bætur. - gag Maður í tveggja ára fangelsi: Barði fyrrum sambýliskonu Í átta mánaða fangelsi Síbrota- maður var í gær dæmdur í Hæstarétti í átta mánaða fangelsi fyrir stuld á tölvugögnum og fylgihlutum. Tjónið hafði verið metið á allt að tíu milljónum. Maðurinn mótmælti og taldi dómurinn óupplýst um verðmæti þýfisins. HÆSTIRÉTTUR HEILSA Ný endurhæfingarstöð fyrir fólk sem greinst hefur með krabbamein og aðstandendur þess verður formlega stofnuð í Nes- kirkju í dag. Stöðin hefur hlotið nafnið Ljósið. Ljósið leggur áherslu á að veita krabbameinsgreindum og aðstand- endum þeirra andlegan styrk. Eitt af meginmarkmiðunum er að auka virkni og þátttöku einstaklingsins í þjóðfélaginu. Þannig á að stuðla að því að fólk sem greinst hefur með krabbamein geti aftur tekið þátt í því lífi sem það lifði áður en sjúkdómurinn greindist. Efling á virkni og lífsgæðum hins krabba- meinsgreinda hefur áhrif á lífs- gæði annarra fjölskyldumeðlima. Áhersla er lögð á að skapa hlý- legt og heimilislegt andrúmsloft, þar sem mannlegar áherslur eru í fyrirrúmi. - th Hlúð að krabbameinssjúkum: Endurhæfing- arstöð stofnuð Þinghús rifið Þýska þingið hafnaði því í atkvæðagreiðslu í gær að niðurrifi þinghúss gamla austur-þýska Alþýðulýð- veldisins í miðborg Berlínar yrði frestað frekar. Til stendur að reisa þar eftirlík- ingu af konungshöll sem þar stóð uns kommúnistastjórnin lét sprengja hana árið 1950. ÞÝSKALAND

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.