Fréttablaðið - 20.01.2006, Page 10

Fréttablaðið - 20.01.2006, Page 10
 20. janúar 2006 FÖSTUDAGUR10 ORKUMÁL Nú þegar áform um Norðlingaölduveitu virðast vera úr sögunni í bili að minnsta kosti eftir samþykkt borgarstjórnar Reykjavíkur beinast sjónir manna enn frekar að öðrum virkjunar- kostum í Þjórsá. Þar er einkum horft til Búðarhálsvirkjunar milli Sultartanga- og Hrauneyjafoss- virkjana, Núps- og Hvamma- virkjana rétt fyrir ofan Árnes í Gnúpverjahreppi og loks Urriða- fossvirkjunar ofan við nýju brúna yfir Þjórsá á þjóðvegi eitt. Friðrik Sophusson, forstjóri Landsvirkjunar, hélt fund á þriðjudag með fulltrúum sveit- arstjórna þeirra þriggja hreppa sem koma að Norðlingaölduveitu en það eru Skeiða- og Gnúpverja- hreppur vestan megin Þjórsár og Ásahreppur og Rangárþing ytra austan megin árinnar. Að sögn Friðriks skiptust menn á skoð- unum um Norðlingaölduveitu en fyrir liggur að ágreiningur er milli hreppanna um málið, meirihluti hreppstjórnar Skeiða- og Gnúp- verjahrepps er á móti veitunni en hreppsnefndir hinna hreppana eru henni fylgjandi. „Það voru engar ákvarðanir teknar um Norðlinga- ölduveitu aðrar en þær að ekki voru taldar forsendur til að halda áfram viðræðum um málið, að minnsta kosti ekki meðan það er til umfjöllunar á alþingi og fyrir dómstólum,“ segir Friðrik. Hann segir að á fundinum hafi menn ennfremur rætt um virkj- anakosti í neðri hluta Þjórsár. „Það var mjög góður hljómur meðal fundarmanna um þær virkjanir og á næstu dögum verður undir- búningi þeirra haldið áfram.“ Jónas Jónsson, oddviti sveitar- stjórnar Ásahrepps, tekur undir að jákvæður andi hafi ríkt um virkjunarkosti í neðri hluta Þjórs- ár. Hann er hins vegar ekki sátt- ur við samþykkt borgarstjórnar Reykjavíkur og telur um augljós- an hagsmunaárekstur að ræða hjá borgaryfirvöldum. „Það er frjáls samkeppni á raforkumarkaði og Reykjavík er í sérstakri stöðu sem eignaraðili að Orkuveitu Reykjavíkur sem er í samkeppni við Landsvirkjun og ég er því nokkuð hissa á borgarstjórn að taka þessa afstöðu“, segir hann. Og hann er alls ekki úrkula vonar um að Norðlingaölduveita verði að veruleika. „Það er auðvitað stjórn Landsvirkjunar sem ákveður framhaldið, hvort hún hættir við eða ekki, Reykjavíkurborg á ekki nema 45 prósenta hlut í fyrirtæk- inu,“ segir Jónas. ssal@frettabladid.is Skoða aðra kosti í Þjórsá Virkjunarkostir í neðri hluta Þjórsár öðlast nú aukið vægi eftir samþykkt borgarstjórnar. Heimamenn eru ekki á eitt sáttir um ákvörðun borgaryfirvalda. URRIÐAFOSS Hér mun virkjun rísa á næstu árum gangi áform Landsvirkjunar eftir. SVEITARSTJÓRNARMÁL „Bæjarstjórinn lætur hafa eftir sér að allir eigi að sitja við sama borð en svo kemur í ljós að leikskólastarfsmenn fá greitt tvöfalt,“ segir Ingunn Þor- láksdóttir, formaður Starfsmanna- félags bæjarins. Sú ákvörðun Jónmundar Guð- marssonar, bæjarstjóra Seltjarn- arness, að gefa leikskólastarfs- mönnum bæjarins 20 þúsund króna gjafabréf í Kringluna fyrir jólin sem sérstaka umbun fyrir vel unnin störf, hefur dregið dilk á eftir sér. Í kjölfar óska annarra starfsmanna um að njóta sömu umbunar var tekin sú ákvörðun að veita öllum bæjar- starfsmönnum eingreiðslu að upp- hæð 20 þúsund krónur eftir skatta. Nú hefur komið í ljós að hana fengu starfsmenn leikskólanna einnig og hefur það valdið hneykslun meðal annarra starfsmanna að sögn Ing- unnar. „Ég er ekki að setja út á að vel sé gert við starfsfólk leikskól- anna en að gera þetta eftir að hafa sérstaklega tæpt á að starfsmenn allir njóti sömu umbunar þá kemur þetta illa fyrir sjónir. Þar að auki eru ekki allir starfsmenn að fá 20 þúsundin heldur fer upphæðin eftir starfshlutfalli og margir starfa eingöngu í hlutastörfum. Á það var ekki minnst þegar ákveðið var að eitt gengi yfir alla.“ Jónmundur kannast við óánægju vegna þessa en segir ákvörðunina um eingreiðslu til handa öllum ekki hafa verið tekna af sér heldur af fjárhags- og launanefnd bæjarins. „Ákvörðunin um að hana fengju allir kemur þaðan og ég kom ekkert þar að.“ -aöe INGUNN ÞORLÁKSDÓTTIR Formaður Starfs- mannafélags Seltjarnarness. Bæjarstarfsmenn á Seltjarnarnesi eru ósáttir: Bæjarstjóri mismunar fólki STJÓRNMÁL Ásdís Ólafsdóttir, kenn- ari og varabæjarfulltrúi Sjálf- stæðisflokksins í Kópavogi, íhugar sérframboð fyrir bæjarstjórnar- kosningarnar í vor. „Vinnubrögð- in eru ólýðræð- isleg og réttast er að Framsókn- a r f l o k k u r i n n sameinist Sjálfstæðisflokknum í bæjarstjórninni,“ segir Ásdís og kveðst ætla að bíða með ákvarð- anir fram yfir prófkjör flokksins á laugardag. Gunnar Birgisson, oddviti Sjálf- stæðismanna í Kópavogi, kannast ekki við ólýðræðisleg vinnubrögð. „Ég bendi á að Ásdís stefndi á annað sæti í prófkjöri fyrir fjórum árum og hafnaði í því sjöunda.“ - jh Prófkjörsskjálfti í Kópavogi: Íhugar sér- framboð * Netsmellur til Glasgow. Innifali›: Flug báðar leiðir með flugvallarsköttum. www.icelandair.is Evrópa Verð frá 20.900 kr.* ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S I C E 30 92 7 0 1/ 20 06 Þetta flug gefur 3.000 Vildarpunkta 550 5000 AUGLÝSINGASÍMI ÁSDÍS ÓLAFSDÓTTIR LEIKSKÓLAMÁL Staðan í leikskólamálum borg- arinnar er mun betri en talað er um, einkum með tilliti til þess að vel hefur gengið að manna leikskólana eftir ára- mótin. Þetta segir Stefán Jón Hafstein, formaður menntaráðs borgarinn- ar. Segir hann fregn- ir af slæmum horfum í dagvistarmálum orðum auknar. Líkur séu góðar á því að allt að hundrað börn til viðbótar komist að á leik- skólum næstu vikurnar og fjöldi barna á biðlistum eftir daggæslu sé nær því að vera um 50 en ekki tvö hundruð eins og fjölmiðlar hafi skýrt frá. - aöe Vel gengið að manna leikskóla: Biðlistar gætu horfið STEFÁN JÓN HAFSTEIN

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.