Fréttablaðið


Fréttablaðið - 20.01.2006, Qupperneq 26

Fréttablaðið - 20.01.2006, Qupperneq 26
 20. janúar 2006 FÖSTUDAGUR FRÁ DEGI TIL DAGS ÚTGÁFUFÉLAG: 365 – prentmiðlar RITSTJÓRI: Kári Jónasson FRÉTTARITSTJÓRI: Sigurjón M. Egilsson AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Jón Kaldal FRÉTTASTJÓRI: Arndís Þorgeirsdóttir VARAFRÉTTASTJÓRI: Trausti Hafliðason FULLTRÚI RITSTJÓRA: Guðmundur Magnússon RITSTJÓRNARFULLTRÚI: Steinunn Stefánsdóttir RITSTJÓRN OG AUGLÝSINGAR: Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík AÐALSÍMI: 550 5000 SÍMBRÉF Á FRÉTTADEILD: 550 5006 NETFÖNG: ritstjorn@frettabladid.is og auglysingar@frettabladid.is VEFFANG: visir.is UMBROT: 365 – prentmiðlar PRENTVINNSLA: Ísafoldarprentsmiðja ehf. DREIFING: Pósthúsið ehf. dreifing@posthusid.is Fréttablaðinu er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu, Suðurnesjum og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. issn 1670-3871 ������������������ Ráðuneytisstjóravals Einar K. Guðfinnsson skimar nú embættismannaakurinn og lítur yfir gjörvilegan og hæfileikaríkan hóp dyggra sjálfstæðismanna. Ástæðan er sú að hann þarf að ráða nýjan ráðuneytis- stjóra í sjávarútvegsráðuneytið. Kapall er hafinn. Vilhjálmur Egilsson, núverandi ráðuneyt- isstjóri, er á förum til Samtaka atvinnulífsins þar sem hann tekur við framkvæmdastjórastöðu af Ara Edwald. Ari hefur störf um næstu mánaða- mót sem fram- kvæmdastjóri 365 miðla, en hann var áður heimagangur í sjávarútvegsráðu- neytinu sem aðstoðarmaður Þorsteins Pálssonar fyrrverandi sjávarútvegsráð- herra. Nú vill svo til að Kristján Skarphéð- insson, nýskipaður ráðuneytisstjóri í iðnaðarráðuneytinu, er einnig hagvanur í sjávarútvegsráðuneytinu og er vel að sér í alþjóðlegum málefnum fiskveiða. Ráðherrar í vanda Vandi ríkisstjórnarinnar er sá að hún er bundin samningi við Björn Friðfinnsson, forsetaskipaðan ráðuneytisstjóra í við- skiptaráðuneytinu. Dýrt gæti orðið fyrir skattgreiðendur ef æviráðningu hans og samningi við ráðherrana verður rift. Svo háttar nefnilega til að í tíð Finns Ingólfs- sonar, og síðar Valgerðar Sverrisdóttur, í iðnaðar- og viðskiptaráðuneytinu hefur Björn ekki átt afturkvæmt í ráðuneyti sitt og í raun verið í útlegð. Hann hótar nú málssókn. Nú virðist sem brotthvarf Vilhjálms Egils- sonar sé hvalreki á fjörur ráðherranna. Þeir geta flutt Kristján Skarphéðinsson í sjávarútvegsráðuneytið og tekið á ný við Birni Friðfinnssyni eða kallað Björn inn í sjávarútvegsráðuneytið. Þetta gæti komið í veg fyrir enn eitt mannaráðninga- og starfslokahneyksl- ið og sparað skattgreiðendum tugmilljóna króna útgjöld. johannh@frettabladid. is Fyrir nokkrum vikum birti DV forsíðufrétt um það, að íslensk- ur kaupsýslumaður hefði verið gripinn á Keflavíkurflugvelli með demantshring, sem hann hefði keypt erlendis handa konu sinni, en ekki greitt af toll. Hefði hann fyrir vikið verið dæmdur í sekt í héraðsdómi. Fréttin var skrifuð af illgirni og öfund. Ómaklega var vegið að kaupsýslumanninum, sem hvarvetna hefur getið sér hið besta orð. Blaðið spurði ekki hinn- ar augljósu spurningar um málið: Hvers vegna er ríkið að skipta sér af því, sem við kaupum erlendis? Hvers vegna er það gert að glæp að koma með vöru inn í landið án þess að greiða af henni toll? Smygl er afbrot, sem útrýma má með einu pennastriki. Ekki þarf að gera annað en fella niður tolla (og önnur sambærileg opin- ber gjöld) og gera Ísland allt að einni fríhöfn. Ef einhverjir vildu eftir sem áður laumast með vöru inn í landið, þá væru þeir ekki að smygla neinu, heldur aðeins að pukrast að óþörfu. Þá myndi vöruverð í Reykjavík lækka niður í það, sem það er í Fríhöfninni á Keflavíkurflugvelli eða jafn- vel niður fyrir það. Væntanlega myndi draga stórlega úr innkaupa- ferðum Íslendinga til útlanda, af því að þær myndu hætta að borga sig. Menn myndu kaupa demants- hringa handa konum sínum, þar sem þeir vildu, og þyrftu ekki að óttast afskipti opinberra aðila af því. Þetta myndi skila sér í smáu og stóru. Rauðvínsverð myndi til dæmis lækka niður í það, sem það er í Suður-Evrópu, sem hefði tvær æskilegar afleiðingar: Draga myndi úr tíðni hjartasjúkdóma, sem spara myndi ríkinu útgjöld í heilbrigðismálum, og ferðamenn myndu ekki lengur setja fyrir sig hið fáránlega verð á þessum holla drykk. Nú drekk ég rauðvín vitan- lega aðeins í heilsubótarskyni, en hlusta mér síðan til ánægju á tón- list í ipod nano. Þetta undratæki kostar með 2 GB minni 24.900 kr. út úr búð á Íslandi, en 15.999 kr. í Fríhöfninni á Keflavíkurflug- velli, sem er svipað og í Banda- ríkjunum þótt raunar sé hægt að fá það þar við lægra verði. Eitt er hér umhugsunarefni. Kaupsýslumaðurinn var gripinn á Keflavíkurflugvelli. En hversu margir aðrir hafa keypt dýra skartgripi erlendis og komist klakklaust inn í landið? Og auð- vitað sæta allir utanlandsfarar lagi og kaupa þar þá vöru, sem er miklu dýrari á Íslandi. Tollar á meðfærilegum gripum eins og demantshringum og ipod nano tækjum ná þess vegna illa til- gangi sínum. En þetta er rang- læti. Hvers vegna mega þeir einir njóta lágs vöruverðs erlendis, sem eiga þangað erindi? Hvers vegna megum við, sem heima sitjum, ekki njóta hins sama? Það mynd- um við gera, væri Ísland allt ein fríhöfn. Ríkið myndi um leið losna við dýrt og flókið innheimtu- og eftirlitskerfi innflutnings, og inn- flutningsfyrirtæki myndu spara sér skriffinnsku og annað erfiði. Tollgæslan íslenska gæti einbeitt sér að því að framfylgja banni við innflutningi ólöglegra fíkniefna og vopna. Einhverjir kynnu að andmæla þessari hugmynd með þeim rökum, að virðisaukaskattur hér sé hærri en í grannlöndunum, svo að menn myndu áfram freistast til að kaupa varning erlendis. En auðvitað myndi draga úr þeirri freistingu, ef tollar og önnur opinber gjöld hætta að bætast við vöruverð. Og væri þetta ekki ein- mitt hvatning til stjórnvalda um að lækka virðisaukaskatt niður í það, sem hann er í grannlönd- unum? Ég sé enga ástæðu til að leggja það á Íslendinga að greiða hærri virðisaukaskatt en annað fólk. Mikilvægasta röksemdin er þó eftir. Ef tollar eru felldir niður af allri vöru, þá á vöruverð af sjálfu sér að lækka niður að því, sem lægst gerist á heimsmark- aði. Líf almennings snýst ekki um demantshringa eða ipod-tæki, heldur matvæli og aðrar nauð- synjar. Væri Ísland fríhöfn, þá hefðu kaupmenn enga afsökun fyrir því að bjóða okkur upp á hærra vöruverð en í grannlönd- unum. Þá myndu kjör almennings stórbatna. Í DAG FRÍVERSLUN HANNES HÓLMSTEINN GISSURARSON Ef tollar eru felldir niður af allri vöru, þá á vöruverð af sjálfu sér að lækka niður að því, sem lægst gerist á heims- markaði. Líf almennings snýst ekki um demantshringa eða ipod-tæki, heldur matvæli og aðrar nauðsynjar. Ísland fríhöfn! �������� � ������������ �������������� ������������������������������ ������ ������� ������� ���������� ���� ������������������������������ Það er nöturlegt til þess að hugsa að það séu þeir sem lægstar hafa tekjurnar sem hafa farið verst út úr skatt-lagningu tekna sinna á undanförnum tíu árum samkvæmt því sem Stefán Ólafsson prófessor við Háskóla Íslands hélt fram í Morgunblaðsgrein í vikunni. Það virðist vera segin saga að það eru þeir tekjulægstu í þjóð- félaginu sem ekki ná fram sanngjörnum kröfum sínum, eða þá að ráðstafanir stjórnvalda í þá átt að jafna kjörin ná ekki í gegn til þeirra. Ríkisstjórnin lagði upp með það í upphafi kjörtímabilsins að lækka skatta og hefur vissulega fylgt eftir stefnu sinni í þeim efnum. Þannig hefur álagningarprósenta tekjuskatts einstakl- inga verið lækkuð um hver áramót og enn á hún eftir að lækka. Þá hefur svokallaður hátekjuskattur verið felldur niður og sömuleiðis eignarskattur frá og með síðustu áramótum. Allt er þetta góðra gjalda vert, en þá er það spurningin hverjum kemur þetta helst til góða, því skatthlutfall og skattbyrði er ekki það sama. Í þessu sambandi er líka rétt að hafa í huga að ekki renna allir skattar til ríkisins, heldur fer drjúgur hluti einstaklings- skatta til sveitarfélaganna í formi útsvars, og þar hefur orðið töluverð hækkun á síðustu árum. Stór hluti sveitarfélaga nýtir sér útsvarsálagninguna til hins ýtrasta, og dugar varla til hjá sumum. Niðurstaðan varðandi skattbyrðina er sú að hún kemur auðvitað ekki þeim til góða sem mjög lágar tekjur hafa og greiða ekki skatta, heldur fyrst og fremst þeim sem hafa góðar tekj- ur og eiga eignir sem þurft hefur fram til þessa að greiðar af eignarskatt. Þótt fjármálaráðherrann og aðrir formælendur ríkis stjórnarinnar haldi því fram með réttu að kaup- máttur launatekna hafi aukist, þá á það jafnt við um þá sem hafa miklar eða litlar tekjur, og þeir sem eru í efri kantinum hljóta þá að hafa hagnast mest á kaup- máttaraukningunni. Þá er það enn einn hópurinn sem notið hefur skattastefnu stjórnvalda, en það eru þeir sem lifa af fjármagnstekjum og greiða aðeins tíu prósenta brúttóskatt af þeim. Hörð og mikil umræða hefur öðru hvoru gosið upp í þjóðfélaginu á undanförn- um misserum um skattlagningu þessara einstaklinga. Þeir eru að vísu ekki margir, en sumir þeirra eru áberandi í þjóðlífinu. Grein Stefáns Ólafssonar vekur menn til umhugsunar um skattlagningu einstaklinga, líkt og málflutningur eldri borgara um sama efni. Samtök þeirra hafa nú í töluvert langan tíma hald- ið því fram að kjör eldri borgara hafi orðið lakari með hverju árinu sem líði vegna þess að skattleysismörk hafi í mörg ár ekki fylgt launaþróuninni í landinu. Þótt fjármálaráðherrann og aðrir formælendur ríkisstjórn- arinnar haldi því fram með réttu að kaupmáttur launatekna hafi aukist, þá á það jafnt við um þá sem hafa miklar eða litlar tekjur, og þeir sem eru í efri kantinum hljóta þá að hafa hagnast mest á kaupmáttaraukningunni. Eftir stendur samkvæmt kenningu prófessorsins að skattbyrðin hefur fyrst og fremst aukist hjá lágtekjufólki. SJÓNARMIÐ KÁRI JÓNASSON Skattleysismörk hafa ekki fylgt launaþróun. Skatthlutfall og skattbyrði
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.