Fréttablaðið - 20.01.2006, Page 27
[ ]
FASTEIGNIR HEIMILI HEILSA HÚS BÖRN NÁM FERÐIR MATUR BÍLAR TÍSKA ATVINNA BRÚÐKAUP TILBOÐ O.FL.
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Heimild: Almanak Háskólans
ÞVOTTAVÉLAR
Miele á útsölu
BLS. 6
ÞORRAMATUR
Vinsæll sem aldrei fyrr
BLS. 2
FAXAFENI 10
��������������
�������
������������������
�������������
��������
������
�����������������
��� ����
�������������������
�������
�������
�������������
��������������
��������������
���������������
��������������
� ��������
Góðan dag!
Í dag er föstudagurinn 20. janúar,
20. dagur ársins 2006.
Optical Studio í Smáralind
stendur er með tískudaga
fram til sunnudags. Kynntar
verða umgjarðir
frá Bellinger og
af þessu tilefni
verður veittur 15 til
30 prósenta afsláttur.
Allt í steik matseðill Perlunnar
er nú í fullum gangi og verður
það til 21. febrúar. Gestum
Perlunnar er boðið upp á
dýrindis þriggja rétta
steikarmatseðil með
nautalund bern-
aise, lambafillet
eða grísasteik á
aðeins tæpar 4.000
krónur. Að auki er Perlan
komin með nýjan matseðil
sem vert er að smakka á.
Stasia í Kringlunni er aldeilis í
útsöluskapi. Fram á sunnudag
býður starfsfólk verslunarinnar
viðskiptavinum að draga sinn
eigin afslátt. Dregið er upp úr
afsláttarpotti Stasia og
hægt að fá 50, 60 og
70 prósenta afslátt.
Sakar ekki að líta við og
láta reyna á gæfuna.
Þorrinn er hafinn og nú
taka við gamlar „nýjungar“ í
fæðu- vali næstu daga.
Nóatún er með
glæsilegt úrval
af þorramat.
Einnig
bregst
það ekki
að bregða sér
í Múlakaffi til
að gæða sér á
kræsingum.
LIGGUR Í LOFTINU
[MATUR TILBOÐ]
Matreiðsla er valfag í Menntaskólanum
við Hamrahlíð og áhuginn er mikill.
Það er búið að dekka upp borð og bökun-
arlykt angar mót blaðamanni þegar hann
heimsækir nemendur MH sem eru að læra
matreiðslu hjá Þórunni Höllu Guðmunds-
dóttur. „Þetta er frjálst val þannig að hing-
að kemur enginn nema af miklum áhuga,“
segir hún og upplýsir að námið sé þriggja
eininga og þetta sé önnur önnin sem þessi
hópur sé í matreiðslu sem valfagi.
Hluti hópsins er að elda dýrindis kvöld-
máltíð, aðrir eru búnir að baka djöflatertu
og eru í óða önn að búa til kremið. Terturnar
fá þeir að taka með sér heim. „Það kryddar
vikuna að koma hingað og takast á við verk-
efnin og góð tilbreyting frá bóknáminu,“
segir einn nemandinn og hinir taka undir
það. En skyldu krakkarnir nota mikið mat-
reiðslukunnáttuna heima? „Já, ef maður
hefur gert eitthvað einu sinni þá er miklu
léttara að gera það aftur. Hér er farið með
okkur í öll undirstöðuatriðin og við fáum að
þjálfa okkur í vinnubrögðum,“ segja þeir og
ein daman kveðst alltaf elda heima hjá sér
einu sinni í viku og hafi gert lengi.
Unga fólkið er sammála um að það sé
vinsælt hjá þessum aldurshópi að kunna að
elda og mikið sé um matarboð. Sérstaklega
þykir þeim gaman að kynnast matargerð
hinna ýmsu landa og læra að gera fram-
andlega rétti. Kennarinn Þórunn Halla
tekur undir þetta sjónarmið. „Matarmenn-
ingin okkar hefur breyst mikið og það eru
jákvæðir straumar sem leika um hana.
Matreiðsla er í tísku og unga fólkið er mót-
tækilegt fyrir öllu sem er að gerast. Það
kemur hingað bæði til að læra og skemmta
sér.“
Uppskriftir og myndir eru á næstu
opnu.
gun@frettabladid.is
Í tísku að læra að elda
Kolbrún Þóra Eiríksdóttir undirbýr steikingu í matreiðslutíma í MH. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA
Reykjavík 10.42 13.39 16.36
Akureyri 10.45 13.23 16.03
Af hverju ertu
sköllóttur,
pabbi? Er það af
því að þú breik-
dansaðir?
KRÍLIN