Fréttablaðið - 20.01.2006, Qupperneq 32
20. janúar 2006 FÖSTUDAGUR6
Innrömmun 20% afsláttur
Tilboð
Rammar
100 kr.
200 kr.
24x30 tré 350 kr.
Íslensk grafík
Allt að 50% afsl.
Tilboð
á smellu-
römmum
13x18 = 100,-
24x30 = 200,-
50x60 = 500,-
40x60 = 500,-
20x25 = 200,-
Tilboð á
álrömmum
18x24 = 400,-
20x25 = 400,-
24x30 = 500,-
30x40 = 600,-
30x42 = 700,-
40x50 = 900,-
41x61 = 1200,-
59x66 = 1600,-
Ú
T
S
A
L
A
Innrömmuð plaggöt
50% afsláttur
Íslensk myndlist
komdu og prúttaðu
Gildir út janúar
Opið virka daga 10-18 laugardaga 11-14
EN
N
ME
IRI
VE
RÐ
LÆ
KK
UN
50
% A
FS
LÁ
TT
UR
Íris Davíðsdóttir notar netið
til að gera góð kaup á fötum
og öðrum vörum. Hún segir
ekki mikið mál að versla með
þessum hætti og hefur aðeins
einu sinni lent í því að gera
slæm kaup.
„Ég byrjaði að kaupa gegnum netið
þegar ég var ólétt, var þá að versla
meðgönguföt, og út frá því þá fór
ég að kaupa fleiri vörur gegnum
netið,“ segir Íris Davíðsdóttir
sem kaupir mest af skóm gegnum
netverslanir, enda á hún æði mörg
skópör. „Ég kaupi helst á shop.usa
og asos og hef nýlega prófað að
kaupa hjá vans.com.“
Íris segist oft gera góð kaup
gegnum netið þar sem vörurnar
eru oft ódýrari en í verslunum hér
heima. „Þetta er líka hentugt þar
sem hægt er að skoða myndir af
vörunum og stærðirnar eru vel
útlistaðar,“ segir Íris. „Ég hef
aldrei lent í neinu veseni varðandi
að gefa upp kortanúmer á netinu,
en fólk ætti að kynna sér vel
síðurnar sem það verslar á. Sé
fyrirtækið á bakvið síðuna gott er
þetta ekkert vandamál. Eitt skiptið
týndist sending sem ég var að bíða
eftir og ég fékk það endurgreitt án
nokkurs vesens.“
Íris hefur þó gert misgóð
kaup gegnum erlendar vefsíður.
Bestu kaupin telur hún vera nýju
rúskinnsstígvélin sín sem eru í
miklu uppáhaldi og kostuðu lítinn
pening. „Verstu kaupin var bleika
hettupeysan,“ segir Íris og hlær.
„Þá var ég búin að sjá mynd af
æðislegri bleikri hettupeysu sem
ég keypti í minni stærð en þegar
sendingin kom þá hefði peysan
getað passað á sex ára gamalt
barn. Peysan varð því að gjöf til
systur minnar.“
johannas@frettabladid.is
Ódýrara að kaupa á netinu
Íris Davíðsdóttir kaupir oft föt og annað á netinu og segir það lítið mál og oftar en ekki ódýrara. Bestu kaupin voru falleg rúskinnsstígvél,
en þau eru ófá skópörin sem Íris hefur keypt á netinu. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Miele þvottavélar á tilboðs-
verði hjá Eirvík.
Nú er hægt að fá Miele hágæða-
þvottavélar og þurrkara á allt að 30
prósenta afslætti hjá Eirvík heim-
ilistækjum á Suðurlandsbraut.
Miele-þvottavélarnar eru sér-
lega vandaðar og líftími þeirra
allt að 20 ár. Miele er með einka-
leyfi á nýrri tromlu með vax-
kökumynstri sem fer betur með
þvottinn. Einnig eru þær byggðar
á stálgrind og eru með ytri þvotta-
belg úr ryðfríu stáli ólíkt öðrum
þvottavélum. Vélarnar eru með
íslensku stjórnborði.
Sem dæmi má nefna listaverð
á þurrkara er 115.400 kr. en er á
tilboðsverði á 80.780 kr. og lista-
verð af 1200 snúninga, fimm kíló-
gramma þvottavél er 128.428 kr.
en kostar á tilboðsverði 89.900 kr.
Miele ryksugur eru einnig á til-
boðsverði og nokkrar tegundir af
viftum og háfum. Nettilboð versl-
unarinnar má sjá á www.eirvik.is.
Miele þvottavélar og þurrkarar eru á
tilboðsverði hjá Eirvík þessa dagana.
Þvottavélar á tilboði
Orkuverið í Egilshöllinni er með
janúartilboð á árskorti í líkamsrækt.
Kortið kostar einungis 29.900 kr.
sem er kostaboð. Einnig geta nemar
fengið afslátt. Sérstakt nematilboð
Orkuversins kostar 12.900 kr. á
tilboð }
Orkuverið
JANÚARTILBOÐ Á ÁRSKORTI
40%–70%
afsláttur