Fréttablaðið


Fréttablaðið - 20.01.2006, Qupperneq 56

Fréttablaðið - 20.01.2006, Qupperneq 56
44 20. janúar 2006 FÖSTUDAGUR sport@frettabladid.is Í tilefni af kínversku áramótunum mun Íslensk-Kínverska- Viðskiptaráðið fagna komu árs hundsins á veitingastaðnum Asíu föstudaginn 27. janúar kl. 20:00. Ræðumaður kvöldsins verður Dr. Geir Sigurðsson, lektor og umsjónarmaður Kínafræða Háskólans á Akureyri. Erindi Geirs ber yfirskriftina: “Hun Dun og fiðrildið í Peking: Hugleiðingar um Kína framtíðarinnar”. Allir áhugamenn um Kína eru hvattir til að mæta en eru vinsamlegast beðnir að skrá þatttöku sína á netfangið: gudmunda@fis.is. FÓTBOLTI Patrik Mörk er einn helsti umboðsmaður knattspyrnumanna í Svíþjóð og náinn samstarfs- maður umboðsmannsins Ólafs Garðarssonar, sem sér um mál flestra ungra knattspyrnumanna á Íslandi sem fara til reynslu hjá erlendum félagsliðum. Í samein- ingu vinna þeir að því að koma íslenskum leikmönnum að hjá áhugasömum félögum í Skandin- avíu, en nóg er af þeim í Svíþjóð um þessar mundir. Fjölmargir ungir leikmenn á Íslandi haldið farið utan til Sví- þjóðar að undanförnu. Hafa þeir ýmist verið keyptir eða farið til reynslu. Má þar á meðal annars nefna Emil Hallfreðsson, Sig- mund Kristjánsson, Hörð Sveins- son, Garðar Gunnlaugsson, Gunn- ar Þór Gunnarsson, Helga Val Daníelsson, Hólmar Örn Rúnars- son og fleiri. Mörk segir ekkert benda til þess að lát verði á þessum reynslu- ferðum íslenskra leikmanna þar sem þeir séu einfaldlega í tísku á meðal sænskra félaga. „Nú er það sama að gerast og fyrir nokkrum árum þegar mikið var um íslenska leikmenn í sænska boltanum. Arnór Guðjohnsen var frábær á sínum tíma og varð til þess að vekja áhuga á íslensk- um leikmönnum. Til dæmis var hálfgerð Íslendinganýlenda hjá Örebro um skeið,“ sagði Mörk við Fréttablaðið. Hann líkir þessum áhuga á íslenskum leikmönnum við ákveðna tískubólu. „Tískustraumar eru stöðugt að breytast og það alveg eins með áhuga liða á erlendum leikmönn- um. Nú er Ísland í tísku og það er að miklu leyti tilkomið vegna sigurs U-21 árs liðsins á Svíum á síðasta ári,“ segir Mörk. Leikurinn sem um ræðir var lokaleikur U-21 árs liðanna í und- ankeppni HM og vann íslenska liðið mjög óvænt 4-1 sigur í Sví- þjóð. Fjölmargir útsendarar voru á vellinum og gátu ekki annað en hrifist af íslensku leikmönnun- um. „Sænska U-21 árs landsliðið er af flestum talið gríðarlega sterkt og því vöktu þessi úrslit mikla athygli. Ég held að ég geti sagt að öll úrvalsdeildarliðin voru með mann á þessum leik og því eðlilegt að áhugi hafi vaknað. En svona er fótboltinn - það þarf ekki annað en einn leik til að opna fullt af mögu- leikum,“ segir Mörk. Hann segist búast við því að þessi áhugi sænskra liða á íslensk- um leikmönnum sé ekki að dvína. „Reynslan hefur sýnt að íslenskir leikmenn standa sig vel, bæði í deildinni og einnig almennt þegar þeir koma á reynslu. Svo að ég held að við megum búast við því að sjá fleiri Íslendinga í Svíþjóð á næstu mánuðum. - vig Íslenskir leikmenn eru í tísku hjá sænskum liðum Patrik Mörk, einn helsti tengiliður sænskra félaga og Íslands, segir að íslenskir leikmenn séu í tísku í Svíþjóð. Hann segir landsleik ungmennaliða Svíþjóðar og Íslands í október hafa opnað dyr tækifæra en þá vann íslenska liðið stórsigur. UNGLINGALANDSLIÐIÐ Hér sést byrjunarlið U-21 árs liðs Íslands stilla sér upp fyrir leik liðs- ins gegn Króatíu í undankeppni HM í sumar. Sjö af þessum ellefu leikmönnum hafa ýmist farið til reynslu hjá sænskum félögum eða eru á mála hjá slíkum í dag. FRÉTTABLAÐIÐ/E.ÓL Ekki ber á öðru en að það sé komið í tísku hjá þjálfurum í Landsbankadeild- inni að gera útispilara að fyrirliðum sínum. Teitur Þórðarson gaf tóninn þegar hann tók Gunnlaug Jónsson fram yfir Kristján Finnbogason hjá KR og í fyrradag lék Ólafur Jóhannsson, þjálfari FH, sama leik þegar hann gerði Auðun Helgason að nýjum fyrirliða liðsins. Flestir bjuggust við því að markvörður- inn Daði Lárusson myndi taka við fyrir- liðabandinu til frambúðar en hann leysti Heimi Guðjónsson jafnan af síðasta sumar þegar hann var fjarverandi. „Ólafur vildi hafa útileikmann og að sá útileikmaður yrði ég. Mér leist mjög vel á það og tók þetta að sjálfsögðu að mér,“ sagði Auðun við Fréttablaðið í gær. „Ég tel þetta vera mjög jákvætt skref fyrir mig og auðvitað er þetta ákveðinn heið- ur. En um leið fylgir þessu hlutverki mikil ábyrgð,“ bætti hann við. Auðun verður 32 ára gamall á árinu og hefur komið víða við á ferlinum. Fyrir utan einn bikarleik með FH síðasta sumar er Auðun að stíga sín fyrstu skref sem fyrirliði á ferlinum. „Ég hef verið með marga góða fyrir- liða í gegn- um tíðina, bæði hjá m í n u m f é l a g s - liðum og í landsliðinu, og þeir hafa allir mótað mig að einhverju leyti,“ segir Auðun, sem er að feta í fótspor goð- sagnar í Hafnarfirðinum með því að taka við fyrirliðabandinu af Heimi Guð- jónssyni, sem nú er orðinn aðstoðar- þjálfari Íslandsmeistaranna. Auðun segir að Heimir hafi enn sem komið er ekki laumað að honum neinum sérstök- um ráðum til sín en býst alveg eins við því að svo verði. „Heimir er frábær karakter og var góður fyrirliði. En ég ætla ekki að apa neitt eftir honum og verð fyrst og fremst bara ég sjálfur. En við Heimir ræðum mikið saman og það gæti vel farið svo að ég leiti til hans eftir ráðum.“ VARNARMAÐURINN AUÐUN HELGASON: ORÐINN NÝR FYRIRLIÐI ÍSLANDSMEISTARA FH Mun sjálfsagt leita til Heimis eftir ráðum FÓTBOLTI Tony Pulis, knattspyrnu- stjóri Plymouth, segist ekkert hafa persónulega á móti Bjarna Guðjónssyni, leikmanninn sem hann virðist aldrei geta notað. Bjarni hefur ekki verið inni í myndinni hjá Pulis frá því sá síð- arnefndi tók við stjórnartaumun- um hjá Plymouth í haust og fékk hann heldur engin tækifæri hjá Pulis þegar hann var við stjórn- völinn hjá Stoke. Bjarni er nú í leit að nýju félagi en hann fór á sínum tíma frá Stoke til Bochum í Þýskalandi. „Hlutirnir hafa einfaldlega ekki gengið upp hjá Bjarna, hvorki hér né hjá Stoke. Ég hef ekkert á móti honum. Þetta er ekkert persónulegt og það er enginn biturleiki í mér gagnvart honum. Bjarni er í viðræðum við Lokeren og hann veit að ef hann fær tilboð munum við ekki standa í vegi fyrir honum,“ sagði Pulis við enska fjölmiðla. Hann ber Bjarna vel söguna, segir hann frábæran karakter sem komi frá frábærri fjölskyldu. „Ég þekki föður hans (Guðjón Þórðarson) og hann á yndislega fjölskyldu. Við Bjarni höfum rætt saman og það eru engin vanda- mál okkar á milli,“ segir Pulis, en hann hefur orð á sér fyrir að spila mjög varnarsinnaðan fót- bolta sem snýst að stóru leyti um langar sendingar fram völlinn á stóra framherja og er það leik- kerfi sem hentar Bjarna engan veginn. - vig Tony Pulis, knattspyrnustjóri Plymouth, tjáir sig um Bjarna Guðjónsson: Þetta er ekkert persónulegt BJARNI GUÐJÓNSSON Fær engin tækifæri undir stjórn Tony Pulis og ætlar að feta nýjar brautir. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY Furðulegur fréttaflutningur Marga lesendur fram.is rak í rogastans í gær þegar þeir lásu umsögn um kvenna- leik Fram og Vals í handbolta. Greinin var að mestu mjög uppbyggileg en það setti ljótan blett á ágæta umfjöllun að greinarhöfundur skyldi fara niðrandi orðum um Valsstelpur og kalla þær þungar og sverar. > Bjarni á leið heim? Þær raddir að knattspyrnumaðurinn Bjarni Guðjónsson sé á heimleið verða háværari með degi hverjum. Skagamenn staðfestu í gær að ekki vantaði áhugann á Bjarna en þeir hefðu hreinlega ekki efni á honum og því kæmi ekki til greina að hann kæmi heim. Veski KR er aðeins þykkra en hjá ÍA og segir sagan að KR sé þegar búið að setja sig í samband við Bjarna og lýsa yfir áhuga sínum á að fá hann í Frosta- skjólið fái hann ekki viðunandi samning við erlent félag. Ofbeldishrotti dæmdur fyrir að misþyrma barns- móður sinni Hæstiréttur staðfestir 2 ára dóm DV2x10 19.1.2006 21:00 Page 1
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.