Tíminn - 13.02.1977, Side 27
Sunnudagur 13. febrúar 1977
27
Hillir undir
Fréttabréf úr Ólafsfirði:
heilsugæzlustöð
og dvalarheimili
Þessi stökkbraut er inni I sjálfum bænum og munu ungir skfba-
menn ekki hafastökkbraut til æfinga jafnnærtæka annars staöar.
Timinn leitaöi frétta úr Ólafs-
firði og varð bæjarstjórinn, Pét-
ur Már Jónsson, fyrir svörum.
Fer hér á eftir frásögn hans um
framkvæmdir ýmsar i kaup-
staönum og fyrirhugaö fram-
hald þeirra, sem og fréttir Ur
bæjarlifinu þar um þessar
mundir.
Mikiö fannfergi er nú í ólafs-
firöi —hiö mestaf 10-15 ársegja
athugulir menn. Aldrei varö þó
neitt öngþveiti hér vegna snjóa
og tóku menn þessu meö mestu
ró og fengu sér holla gönguferð í
stað þess aö fara um í bilum sin-
um. Færð er þó nú oröin ágæt,
þar sem verið er að ljúka viö aö
ryöja vegi og götur. Engin snjó-
flóöahætta er talin hér i bænum
þrátt fyrir þetta mikla fann-
fergi. Hefur aldrei i manna
minnum falliö snjóflóð á hús hér
i bæ. Viöa annars staðar i firöin-
um er þó snjóflóöahætta.
Atvinnuástand hefur veriö i
daufara lagi hér aö undanförnu
sakir litils afla skuttogaranna.
Vonandi fer þó aö rætast úr þvi.
Minni bátar hafa hins vegar
aflaö sæmilega. Mikil óánægja
rikir hér vegna hinnar nýju
reglugeröar um grásleppuveiöi,
en nú fer aö liöa aö þvi aö menn
fari aö gera sig klára á
grásleppuna.
Sifellt veröur ljósara aö
nauösynlegt er aö renna fleiri
stoöum undir atvinnulif staöa
eins og Ólafsfjaöar og koma
þarf upp iðnaöi á þessum
stöðum.
Vélsmiöjan Nonni hf. keypti
á siöastliönu sumri vélar fyrir-
tækisins Stáliö hf. á Akureyri,
sem framleiddi stálhúsgögn og
er nú framleiöslan hér i ólafs-
firöi aö fara I gang. Er vonazt til
aö þaö veiti nokkrum mönnum
atvinnu.
Frá höfninni I ólafsfirði — mörg fiskiskip viöbryggjur.
eftir Jökul Jakobsson undir
stjórn Kristins G. Jóhannssonar
skólastjóra. Mun nú vera farið
aö styttast I frumsýningu. Þá
eru félagasamtök bæjarins
byrjuö á árshátiðum sinum, og
er þar ávallt glatt á hjalla og
heimamenn hafa sjálfir allan
veg og vanda af skemmti-
atriðum svo og öllu ööru fram-
lagi til árshátiöanna. Eru þær
góö upplyfting i skammdeginu.
1 haust tóku Siglufjöröur,
Ólafsfjöröur, Dalvik Akureyri
og Húsavik sig saman og sóttu
um styrk til Norræna menning-
armálasjóösins til þess aö halda
norræna menningarviku á stöö-
unum i sumar. Hefur nú fengizt
styrkur aö upphæð kr. 1,5 millj.
kr. gegn þvi að sveitarfélögin
leggi fram jafnt á móti.
Þá er verið aö ganga frá aöild
Ólafsfjaröarkaupstaöar að nor-
rænum vinabæjartengslum og
veröa formleg tengsl viö bæina
Karlskrona, Hilleröd, Horten og
Lovisa væntanlega komin á nú i
vor.
Ætlunin er, aö á næstu 10 árum
veröi sett bundiö slitlag á allar
götur I bænum.
t höfninni var á s.l. ári gert
viö skemmdir sem komiö höföu
fram á nýju stálþili og var sföan
steyptur kantur ofan á þaö og
siöan fyllt aö þilinu. A sumri
komandi er gert ráö fyrir aö þar
verði steypt þekja. Einnig á aö
bæta grjótgaröa en þeir eru I
mjög slæmu ásigkomulagi og
gengur sjór yfir þá, jafnvel I
smábrimi. Þá verður hafinn
undirbúningur aö þvi aö skapa
stærri skipum örugga aöstööu
hér I höfninni en stór skip hafa
ávallt oröiö aö flýja út úr höfn-
inni ef eitthvaö veöur hefur
gert. Er vonazt til aö sú aöstaða
veröi komin aö hluta til 1978.
Allmiklar framkvæmdir voru
hér á siöastliönu ári. Um
slöastl. áramót voru 19 Ibúðir I
byggingu, samtals 8211 rúm-
metrar. Atvinnuhúsnæöi sam-
tals 13850 rúmmetrar var einnig
I byggingu. 1976 voru fullgeröar
12 Ibúðir samtals 4589 rúmmetr-
ar.
A vegum sveitarfélagsins var
unniö viö innréttingar verk-
námsálmu gagnfræöaskólans
og er vonazt til aö hún verði tek-
in I notkun 1 þessum mánuöi.
Einnig var unniö viö sökkla og
plötu heilugæzlustöövar og
dvalarheimilis aldraðra og var
þeim áfanga lokiö nú i haust.
Verður byggingin boöin út nú á
næstunni, en þessa daga er ver-
iö aö ljúka hönnunarvinnu. Fer
þvi aö liöa aö þvi, aö þessi gamli
draumur ólafsfiröinga rætist.
Þá var gert töluvert átak I
varanlegri gatnagerö og
steyptir um 6000 fermetrar af
götum. Var hluti Aöalgötu
steyptur og einnig var gengiö
frá götu viö hraðfrystihús
staöarins. Nú er komið bundiö
slitlag á u.þ.b. sjötta hluta allra
gatna i bænum. Halda á áfram
meö gatnagerð á þessu ári og á
þá meöal annars að ljúka viö aö
steypa Aöalgötu, en svo heitir
gatan.sem liggur i gegnum bæ-
inn. Einnig á aö vinna nokkuö
viö undirbyggingu gatna.
Af hitaveitunni hér er þaö
helzt fréttnæmt aö vatn þaö er
fannst 1975 hefur enzt skemur
en gert var ráö fyrir vegna mik-
illa byggingaframkvæmda á
undanförnum árum, og er nú
fyrirhugaðaö hefja boranir
aftur hér I sumar til þess aö af la
hitaveitunni nægilegs vatns.
Kalt vatn hefur einnig veriö
ónóg hér og hefur sifellt boriö
meira á skorti á þvi. S.l. haust
var óttazt, aö i vetur yröi veru
legur skortur á köldu vatni
vegna mikilla þurrka siöari
hluta sumars og I haust. úr þvl
rættist þó aö nokkru þar sem
fyrri hluti vetrar var mildur og
vatnssamur. Nú er hins vegar
hafinn undirbúningur aö gerö
nýrraraöveitu til bæjarins og er
vonazt til aö sú lausn dugi I
a.m.k. 10 ár. Þá má einnig
minnast á aö s.l. sumar var lok-
iö viö gerö knattspyrnuvallar,
sem mun vera meö betri malar-
völlum á landinu. Ætlunin er að
gengiö veröi frá umhverfi
vallarins nú I sumar.
Nokkuö var unniö viö vega-
gerö hér á s.l. ári og var lagöur
vegur út úr bænum viö austan-
vert Ólafsfjaröarvatn, en þar er
ætlunin aö framtiöarvegurinn
liggi aö Lágheiöi.
Or bæjarlifinu er þaö annars
aö segja aö Leikfélag Ólafs-
fjaröar æfir nú af kappi sjón-
leikinn „Sjóferöin til Bagdad”
Okkar þilplötugeymsla
er upphituð
Þilplötur eru auðvitað meðal alls
þess byggingarefnis sem við bjóðum. En
við geymum plöturnar í fullupphituðu hús-
næði. Það meta þeir fagmenn mikils, sem
úr þeim vinna.
BYGGINGAVÖRUVERZLUN
KÓPAV0GS NÝBÝIAVEGI 8 SÍMI:41000