Frjáls verslun - 01.05.1982, Page 63
bankar
Norræni fjárfestingabankinn
Grein eftir dr. Guðmund Magnússon,
háskólarektor, sem á sæti í stjórn bankans
fyrir íslands hönd.
Norræni fjárfestingabankinn í
Helsingfors hefur nú starfað í sex
ár en hann tók til starfa um mitt ár
1976. Fé til útlána hefur bankinn
fengið af stofnframlagi Norður-
landaþjóðanna og með því að
taka lán á alþjóðamarkaði. Þegar
fram í sækir kemur einnig hreinn
arður sem ekki er lagður í vara-
sjóði til útlána. Stofnfé var 400
milljónir SDR (eða sérstök drátt-
arréttindi) en það er reikningsein-
ing bankans.* Framlag íslands
var 1%.
Samkvæmt stofnsamþykktum
bankans má hann lána út tvö og
hálffalt stofnfé eða um 1000 mill-
jónir SDR. Um síðustu áramót
námu heildarútlán bankans 508
milljónum SDR þ.e. um 6000 mill-
jónum íslenskra króna. Til saman-
burðar má geta þess aó talið er að
heildarútlán innlánsstofnana hérá
landi hafi numið álíka fjárhæð í lok
síðastliðins árs. Er nú svo komið
að taka þarf afstöðu til aukningar
stofnframlags þar sem bankinn
mun innan tíðar sprengja útlána-
ramma þann sem honum var upp-
haflega settur.
Ákveðið var að aðalstöðvar
bankans skyldu vera í Helsingfors.
Fyrsti bankastjórinn var sænskur.
Norðmenn fengu fyrsta stjórnar-
formanninn, Danir fyrsta varafor-
manninn en íslendingar fyrsta
lánið. Það voru 300 milljónir
norskra króna til Járnblendiverk-
smiðjunnar á Grundartanga.
* SDR = (sl. kr. 15,6354 á kaupgengi 17.
sept. 1982. SDR einingin er skilgreind af Al-
þjóðagjaldeyrissjóðnum frá og með 1. jan.
1981 skv. eftirfarandi:
Bandaríkjadalir 46%
Vestur—þýsk mörk 18%
Japönsk yen 13%
Sterlingspund 12%
Franskirfrankar 11%
100%
Lán til íslands
Þrjú lán og eitt svonefnt
byggðalán hafa runnið til íslands
og eru þau þessi:
íslenska Járnblendifélagið og El-
kem Spikerverket.
Landsvirkjun (til Hrauneyjarfoss-
virkjunar).
Isno hf. (til fiskeldis).
Byggðalán til Framkvæmdasjóðs
og Iðnþróunarsjóðs.
ísland hafði um áramótin síð-
ustu fengið 7,1% af fjárfestingu
bankans, að fjárhæð 5,4 SDR, sbr.
fyrstu tvö lánin hér að ofan og 1.
töflu.
Skilyrði
fyrir lánshæfni
Skilyrði fyrir því að bankinn veitti
umsækjanda lán er að um sam-
vinnuverkefni milli minnst tveggja
Norðurlanda sé að ræða. Þetta
63