Frjáls verslun - 01.05.1982, Qupperneq 79
nokkrir deildarstjórar eru ráðnir úr
röðum sérfróðra manna í við-
skiptaheLminum.
Allir geta eigendurnir boðið sig
fram til kosninga í þessi störf, en
þeir sem kosnir eru gegna jafn-
framt ákveðnum störfum öðrum í
fyrirtækinu og fá enga umbun í
launum fyrir þessa auknu ábyrgð.
Kosið er til þriggja ára í senn, en
forstjórinn er kosinn á almennum
hluthafafundi sem haldinn er ár-
lega. Hann er talsmaður hluthafa
og nokkurs konar sáttasemjari.
Hann ber fram tillögur en völd
hans utan hluthafafundanna eru
lítil. Stjórnarformaður er kosinn af
stjórninni og er hann viðriðinn svo
til allt sem máli skiptir í rekstrinum
og allar meiri háttar ákvarðanir.
Framkvæmdastjórinn er ekki
hluthafi. Hann er ráðinn úr röðum
sérfróöra í viðskiptaheiminum, og
laun hans eru í samræmi við það
sem þar tíðkast hverju sinni. Hann
situr stjórnarfundi þegar þess er
óskað að ráða hans er leitað í
málum sem varða sérþekkingu
hans. En það er stjórnin sem tekur
ákvarðanir og mótar stefnuna.
Fjöldi nefnda starfandi til
að tryggja rétt eigenda
Fjöldi nefnda er starfandi á veg-
um fyrirtækisins og eru nefndar-
menn allir eigendur. M.a. eru
nefndir er fjalla um öryggi, endur-
skoðun, framleiðslu, vélvæðslu,
starfslýsingar og stefnu. Skipar
stjórnarformaður eigendur til
starfa í þessum nefndum, en í aðr-
ar er kosið, s.s. í umkvörtunar-
nefnd og jafnréttisnefnd.
Eigandi sem ekki vinnur við
fyrirtækið fær engin laun og nýtur
engra hlunninda jafnvel þótt hann
sé kominn á eftirlaunaaldur. En
þegar árin færast yfir menn, er
þeim gert kleift að sinna léttari
störfum, og eignarhlut sinn geta
þeir selt hvenær sem þeir óska.
Atvinnuöryggi eigenda meira
en aðkeypts vinnuafls
Eins og áður getur fer það eftir
því hvenig viðskiptin ganga hver
laun eigenda eru. Þannig getur sú
staða komið upp að lauri þeirra
séu lægri en hins aðkeypta vinnu-
afls. En atvinnuöryggi eigenda er
meira, og ef staða losnar innan
fyrirtækisins ganga eigendur fyrir
öðrum.
Þá eru völd eigenda mikil. Það
er ekki aðeins að þeir kjósa
stjórnarmenn, heldur eru öll út-
gjöld umfram 50.000 dollara borin
undir atkvæði á almennum hlut-
hafafundum sem haldnir eru ár-
lega, eða á sérstökum fundum.
HÁRSNYRTISTOFAN
Dóróthea Magngsdóttir
Torfi Geirmundsson
Laugavegi 24 II. hæð
Simi17144
SUPERIOR
HÁRTOPPAR ERU:
• Byltingarkennd nýj-
ung á sviði hártoppa
• Má skipta hvar og hve-
nær sem er
• Má fara með í sund
• Eðlilegir, léttir,
þægiiegir
• Auðveldir í hirðingu
og notkun
• Fyrsta flokks fram-
leiðsla sem hæfir
íslendingum
• Leitið upplýsinga og
fáið góð ráð án
skuldbindingar
Ótrúlega hagstætt verð - gerið samanburð
Allar nánari upplýsingar í síma 17144
TORFI GEIRMUNDSSOIM
Umboðsmenn:
Rakarastofa Valda, Akureyri,
Rakarastofa Björns Gíslasonar, Eyrarvegí 5,
Selfossi
Rakarastofa Rúnars, Húsavík.
79