Fréttablaðið - 02.02.2006, Blaðsíða 34

Fréttablaðið - 02.02.2006, Blaðsíða 34
[ ] BORÐ FYR IR TVO K R I N G L A N ÚTSALA GÖTUMARKAÐUR Kringlunni - sími : 533 1322 Vandaðar heimilis- og gjafavörur ÚTSÖLULOK Í DUKA. GÖTUMARKAÐUR. MÖRG GÓÐ TILBOÐ. Vandaðar og gjaf Gardínur safna mjög fljótt í sig ryki. Það er gott að þvo gardínur sem má þvo reglulega þó að þær sýnist ekki skítugar. Konstantin Grcic er einn af eftirsóttustu hönnuðum Evrópu um þessar mundir. Grcic hefur hannað vörur fyrir mörg þekkt- ustu hönnunarfyrirtæki heims. Konstantin Grcic fæddist í München í Þýskalandi árið 1965 og vann meðal annars sem dúk- lagningamaður áður en hann hélt í hönnunarnám. Hönnun hans ber þess merki að hann hafi numið í Bretlandi. Þar lærði hann meðal annars í hinum konunglega breska listaháskóla. Í námi sínu fékkst Grcic við margs konar form hönn- unar en upp úr 1990 byrjaði hann að einbeita sér að húsgagnahönn- un og árið 1991 stofnaði hann sitt eigið stúdíó í München. Síðan þá hefur Grcic sýnt hönnun sína víða um heim og hvarvetna hefur hann vakið mikla athygli og unnið til fjölda verð- launa. Til dæmis hefur eitt fræg- asta verk hans, lampinn Mayday, fengið varanlegan sess á Museum of Modern Art í New York. Hönnun Grcic hefur oft verið talin mjög iðnvædd og afar iðn- aðarleg. Hann nær hins vegar að umbreyta hlutum á mjög einfald- an hátt yfir í fallega og nýtísku- lega vöru sem þykir oft á tíðum mjög mínímalísk. Stephanie Rauschider, innanhúsarkitekt í Epal, er nýlega komin af sýningu í Þýskalandi þar sem hún sagði að hönnun Grcic hefði verið mjög áberandi. ,,Grcic er án efa einn af vinsælustu hönnuðum heimsins í dag,“ segir hún. Í Epal má meðal annars finna lampa og stól eftir Grcic. Eins og áður segir hefur Grcic unnið og hannað vörur fyrir fjöl- mörg hönnunarfyrirtæki og má þar helst nefna Agape, Driade, Flos, Iitalla, Magis og Thomas/ Rosenthal. Grcic vinnur núna við að hanna eldhústæki fyrir Krups. Að lokum má geta þess að hin fræga hönnunarbókaútgáfa Phaidon gaf nýlega út bók tileink- aða verkum Grcic. Mínímalísk iðnhönnun Lampinn Mayday er þekktasta verk Grcic. Hann þykir flottur, einfaldur og frumlegur. Þjóðverjinn Konstantin Grcic þykir afar fær hönnuður og hefur unnið til margvíslegra verðlauna. Þessi stóll er dæmi um einfalda og iðnaðarlega hönnun Grcic. Leirvörurnar frá Iittala sem nú tilheyra línunni Teema eiga yfir hálfrar aldar sögu. Þær fást í versluninni Búsáhöldum. Stellið Teema er hannað af Kaj Franck, þekktum finnskum hönnuði, og var fyrst fram- leitt hjá Arabia sem setti það á markað árið 1952. Það tók breytingum árið 1981 og kom þá með því útliti sem það hefur í dag. ÞaðBhef- ur fengist hér á landi frá 1971 og notið mikilla vinsælda enda þekkt fyrir formfegurð og endingu. Bæði er um matar- og kaffistell að ræða og allnokkrir litir fást, svo sem hvítur, gulur, ólífugrænn, brúnn og blágrænn. Leirinn er eldfastur og þolir upp- þvottavélar vel. Sumir blanda rönd- óttum borðbúnaði frá Iittala saman við Teema og gera þannig borðin .enn litríkari. STELLIÐ: TEEMA FR ÉT TA B LA Ð IÐ /S TE FÁ N Iittala leirvörur, nýju litirnir í bland við eldri. bolli frá Iittala 1 dálkur 9.9.2005 15:19 Page 6 1 dálkur 9.9.2005 15:19 Page 6 550 5600 Nýtt símanúmer hjá dreifingu:
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.