Fréttablaðið - 02.02.2006, Blaðsíða 53
Myrkir músíkdagar hefjast
núna um helgina. Hátíðin
vex ár frá ári og verður nú í
fyrsta sinn haldin á tveimur
stöðum á landinu.
„Þetta er fyrsta tilraunin til þess
að tengja hátíðina við landsbyggð-
ina,“ segir Kjartan Ólafsson
tónskáld, sem hefur haft veg og
vanda af skipulagningu Myrkra
músíkdaga undanfarin ár.
„Allt frá byrjun hafa Myrkir
músíkdagar verið bundnir við
höfuðborgarsvæðið en nú er það
tónlistarhúsið Laugaborg við
Hrafnagil í Eyjafjarðarsveit, rétt
hjá Akureyri, sem verður sam-
starfsaðili okkar fyrir norðan.“
Myrkir músíkdagar hefjast á
laugardaginn og standa í rúma
viku með tónleikum upp á hvern
dag, stundum nokkrum tónleik-
um sama daginn. Þar af verða
fernir tónleikar haldnir bæði í
Reykjavík og í Eyjafirðinum.
„Á meðan hátíðin stendur
fljúga listamenn og tónskáld á
milli og flytja sömu dagskrána
á báðum stöðunum.“ Hátíðin
hefst á laugardaginn með tón-
leikum í Laugarborg þar sem
Caput-hópurinn flytur verk eftir
Atla Heimi Sveinsson, Snorra
Sigfús Birgisson, Tryggva Bald-
vinsson, Hafliða Hallgrímsson,
Þorkel Sigurbjörnsson og Huga
Guðmundsson.
„Sama kvöld verða opnunar-
tónleikar í Reykjavík með kamm-
erhópnum Atón, sem er kannski
yngsti hópurinn á hátíðinni. Þau
hafa verið að fara svolítið sínar
eigin leiðir. Þetta er mjög spenn-
andi hópur með mjög spennandi
dagskrá.“
Fastir liðir á dagskránni eru
til dæmis tónleikar Sinfóníu-
hljómsveitar Íslands á fimmtu-
daginn og tónleikar Blásara-
sveitar Reykjavíkur, sem þetta
árið verða haldnir á sunnudaginn
kemur í Langholtskirkju.
„Einnig verða mjög spennandi
tónleikar með Tinnu Þorsteins-
dóttur píanóleikara á miðviku-
daginn. Hingað kemur tónskáldið
Greg Davis frá Bandaríkjunum,
en hljóðfæravalið á þessum tón-
leikum er með ólíkindum. Við
erum í vandræðum með að finna
tæki til þess bara að hengja hljóð-
færin upp.“ Tinna leikur þar á
undirbúið píanó, sem þýðir að
búið verður að skrúfa alls konar
hluti inn í píanóið.
„Tónleikarnir heita Nátt-
úruljóð, því þetta verður mjög
undarlegur og ansi spennandi
hljóðheimur.“
Kammersveit Reykjavíkur
mun síðan ljúka hátíðinni með
tónleikum í Ými sunnudaginn 12.
febrúar.
„Venjulega hefur hún byrjað
hátíðina en lýkur henni núna út
af þessari samvinnu við Laugar-
borg,“ segir Kjartan, sem á sér
þann draum að Myrkir músíkdag-
ar verði innan fárra ára haldnir
víða um land.
„Við sjáum framtíðina þannig
fyrir okkur að hóparnir fari
hringinn um landið. Myrkir mús-
íkdagar gætu þá verið á hring-
ferð um allt landið. Þetta yrði alls
ekki óframkvæmanlegt en kallar
á víðtækari skipulagningu heldur
en verið hefur, þegar hátíðin er
bara bundin við einn stað.“
Myrkir músíkdagar norður
KJARTAN ÓLAFSSON TÓNSKÁLD Vonast til þess að Myrkir músíkdagar verði áður en langt um líður haldnir víða um land. FRÉTTABLAÐIÐ/E.ÓL.
Síðustu 20 árin hefur Corolla verið mest keypti bíllinn. Íslendingar treysta
Corolla og bera til bílsins tilfinningar sem gera það að verkum að þeir kaupa
hann aftur og aftur. Kannski er svarið við spurningunni, af hverju Corolla, sú
að Corolla er einstaklega ódýr bíll í rekstri, öruggur, þjónustan við eigendur
er frábær – og svo er auðvitað gott að keyra hann. Kannski er svarið
flóknara. Kannski eru það hinir óendanlegu möguleikar. Því þótt þú veljir
Corolla þá er valið fjölþættara. Hvaða gerð af Corolla viltu, hvaða búnað,
hvaða lit, hvaða skiptingu? Spurningarnar eru fleiri. Corolla er bíllinn þinn,
þú ræður hvernig hann er.
Á endanum velur þú Corolla.
www.toyota.is
Corolla tilfinningin er góð
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
T
O
Y
3
07
81
1
2/
20
05
Toyota
Nýbýlavegi 4
Kópavogur
Sími: 570-5070
Toyota Akureyri
Baldursnesi 1
Akureyri
Sími: 460-4300
Toyotasalurinn
Njarðarbraut 19
Reykjanesbær
Sími: 421-4888
Toyotasalurinn
Fossnesi 14
Selfoss
Sími: 480-8000
Á endanum
velur þú Corolla
Sedan
Verð frá 1.725.000 kr.
Wagon
Verð frá 1.775.000 kr.
Hatchback
Verð frá 1.685.000 kr.
Þú getur einnig fengið Corolla Verso 7 manna
Verð frá 2.240.000 kr.
KAMMERSVEIT REYKJAVÍKUR Venjulega hefur það verið Kammersveit Reykjavíkur sem
opnar Myrka músíkdaga, en í ár sér hún um lokatónleika hátíðarinnar.
> Ekki missa af ...
... Tónleikum Sinfóníuhljómsveitar
Íslands í Háskólabíói í kvöld þar sem
bandaríski fiðluleikarinn Rachel Barton
Pine flytur fiðlukonsert eftir Joseph
Joachim. Einnig flytur hljómsveitin
sinfóníu nr. 6 eftir Sergei Prokofieff.
Stjórnandi er Carlos Kalmar.
... óperunni Öskubusku eftir Rossini sem
Íslenska óperan frumsýnir á sunnudags-
kvöldið með Sesselju Kristjánsdóttur
sópransöngkonu í aðalhlutverki.
... sýningu Þjóðleikhússins á verki Völu
Þórsdóttur, Eldhús eftir máli – Hvers-
dagslegar hryllingssögur, sem byggt er á
smásögum Svövu Jakobsdóttur.
Á árunum 1913-1915 var listamaðurinn
Guðmundur frá Miðdal í verbúð í Þorláks-
höfn. Í dag verður opnuð sýning á teikn-
ingum sem hann gerði á þessum tíma.
Sýningin verður á Bæjarbókasafni Ölfuss
í Þorlákshöfn.
Guðmundur var mjög fjölhæfur lista-
maður, lagði meðal annars stund á högg-
myndasmíði, málaralist og eirstungu. Þar
fyrir utan var hann einnig mikill áhuga-
maður um íþróttir og stundaði þær af
kappi. Mikill styrkur hans kom sér vel við
sjósókn í Þorlákshöfn og reyndist hann
sérlega duglegur sjómaður.
Hann setti mikinn svip á verbúðalífið,
stofnaði meðal annars fimleikaflokk meðal
vermanna sem fram að þessu höfðu aðal-
lega æft glímubrögð. Einnig rak hann þá
áfram við Müllersæfingar og alls konar
hopp og stökk. Þá alhörðustu fékk hann til
að synda með sér í ísköldum sjónum.
Meðan Guðmundur dvaldi í Þorláks-
höfn teiknaði hann fjölda mynda af ver-
búðalífinu og eru teikningar hans ómet-
anleg heimild um mannlífið í Þorlákshöfn
á árunum 1913 til 1916. Árið 1976 keypti
Sveitarfélagið Ölfus teikningarnar sem
verða á sýningunni á bókasafninu. Einnig
verða þar ljósmyndir af Guðmundi í hlut-
verki sjómannsins og annað sem Lýdía
Pálsdóttir, eiginkona Guðmundar færði
sveitarfélaginu að gjöf í tilefni af 25 ára
afmæli bæjarins Þorlákshafnar.
Teikningar frá verbúð
53