Fréttablaðið - 02.02.2006, Blaðsíða 10

Fréttablaðið - 02.02.2006, Blaðsíða 10
10 2. febrúar 2006 FIMMTUDAGUR hvað hefur breyst – hvað er framundan? Ráðstefna um hlutverk og skyldur 112 við almenning og viðbragðsaðila og þróun neyðarþjónustu. Haldin á Hótel Loftleiðum kl. 13-17 föstudaginn 10. febrúar 2006 í tilefni af 112 deginum og tíu ára afmæli Neyðarlínunnar. Dagskrá • Setningarávarp: Björn Bjarnason dómsmálaráðherra. • Tilkynnt um val á skyndihjálparmanni Rauða krossins 2005. • Jónína Sigurðardóttir, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá ríkislögreglustjóranum: Samvinna 112 og ríkislögreglustjórans. • Anna Björg Aradóttir, yfirhjúkrunarfræðingur hjá landlæknisembættinu: 112 og heilbrigðisþjónustan – samstarfið eflt. • Jón Viðar Matthíasson, slökkviliðsstjóri SHS: Var stofnun Neyðarlínunnar aðeins atrenna að stóra stökkinu? • Sigurgeir Guðmundsson, formaður Slysavarnafélagsins Landsbjargar, og Kristján Maack, formaður landsstjórnar björgunarsveita: 112 – viðbragð björgunarsveita. • Jyrki Landstedt, framkvæmdastjóri 112 í Finnlandi: 112 í Finnlandi – staða og þróun. Umræður og fyrirspurnir að hverri framsögu lokinni. Ráðstefnustjóri: Björn Friðfinnsson. Ráðstefnan er opin öllum án endurgjalds. Skráning í síma 570 2000, á www.112.is og með tölvupósti á 112@112.is fyrir þriðjudaginn 7. febrúar. 112 í tíu ár ����������������������������� �������� �� ������������ ��������������� ���� ��� ������������������ ��������� � �������� ���� ���������� � ���������� ������� ����� ������ ������� ���������� KJARAMÁL „Verkafólk fagnar því að starfsmenn sveitarfélaga sem lægst laun hafa eigi von á 12 pró- senta launahækkun en á sama tíma er verkafólk afar óánægt með eigin kjör. Laun fiskvinnslu- fólks og ófaglærðra starfsmanna á sjúkrahúsum eru til dæmis vel undir 140 þúsundum á mánuði og við það verður ekki unað lengur,“ segir Aðalsteinn Baldursson, for- maður Verkalýðsfélags Húsavík- ur. Félagið hefur sent frá sér álykt- un þar sem skorað er á á Samtök atvinnulífsins og fjármálaráð- herra, fyrir hönd ríkisjóðs, að fylgja fordæmi Launanefndar sveitarfélaga og hækka lægstu laun verkafólks sérstaklega umfram kjarasamningsbundn- ar hækkanir. Jafnframt hvetur félagið önnur stéttarfélög til að herða baráttuna fyrir bættum kjörum verkafólks sem býr við það hlutskipti að vera á lágmarks- kjörum. Aðalsteinn segir símann ekki hafa stoppað hjá sér undanfarna daga. „Það er kraumandi óánægja og vaxandi reiði á meðal verka- fólks. Fólk sættir sig einfaldlega ekki lengur við að bíða eftir bætt- um hag þótt samningar séu ekki úti,“ segir Aðalsteinn. - kk AÐALSTEINN BALDURSSON Þolinmæði verkafólks er á þrotum, segir formaður Verkalýðsfélags Húsavíkur. Verkalýðsfélag Húsavíkur skorar á SA og ríkið að hækka lægstu laun: Biðlund verkafólks á þrotum TRÍNIDAD & TÓBAGÓ Eylöndin Tríni- dad og Tóbagó fara nú langleiðina með að hnekkja meti Jamaíka hvað varðar tíðni morða og ann- arra misyndisverka. Á síðustu 28 dögum hafa verið verið framin þar alls 36 morð á eyjunum. Lifa fátækir íbúar landins í stöðugum ótta enda hefur komið í ljós undanfarin ár að lögreglu- menn og hermenn koma oft við sögu í morðmálum og örugglega eitt af þessum síðustu 36 morðum var framið af fjórum hermönnum. Mannrán eru einnig tíð á eyjunum og heita má að meirihluti íbúanna hafi upplifað slíkt. ■ 36 morð á 28 dögum: Morðalda í Karíbahafi FRAMKVÆMDIR Hugsanlegt er að áfram verði heilbrigðisstarfsemi í húsi Heilsuverndarstöðvarinnar við Barónsstíg. Markhús ehf. keypti nýlega húsið og byggingaréttinn á lóðinni fyrir 980 milljónir króna. Sú ákvörðun ríkisins og Reykjavíkur- borgar í maí síðastliðnum að selja eignina, vakti athygli og kveikt umræðu um hvað nýr eigandi ætli sér með kaupunum. „Það sem okkur langar til að gera er að nýta húsið undir ein- hverja heilbrigðisstarfssemi. Við erum mjög opnir fyrir því hvers eðlis hún gæti orðið og erum að skoða ýmsa möguleika ennþá og ræða við menn. Við eigum á lóð- inni byggingarétt og það eru áform um að nýta hann sem best. En þetta ræðst af því hvaða starfsemi verð- ur í gamla húsinu,“ segir Dagbjart- ur Guðmundsson, verkefnastjóri hjá Markhús ehf. Húsið er höfundarverk Ein- ars Sveinssonar, húsameistara Reykjavíkur, og þykir merkilegt í byggingarsögulegu tilliti. Ólafur F. Magnússon, borgarfulltrúi F-list- ans, hefur á borgarstjórnarfund- um lýst yfir áhyggjum um fram- tíð hússins en þær áhyggjur eru ástæðulausar að sögn Dagbjarts. „Það er ekki á dagskránni hjá okkur að rífa húsið. Ég efa líka að byggingaryfirvöld myndu sam- þykkja það. Það er verið að tala um að friða húsið og það ferli er hafið.“ - shá Eigendur Heilsuverndarstöðvarinnar við Barónsstíg: Vilja heilsutengda starfsemi í húsinu SKIPULAGSMÁL Framtíðarnefnd hestamannafélagsins Gusts í Kópavogi telur fýsilegasta kostinn í þeirri stöðu sem upp er komin hjá félaginu að hefja viðræður við bæjaryfirvöld í Kópavogi um nýtt svæði fyrir starfsemi þess. Nefnd- in horfir þá einkum til Kjóavalla, þar sem eru tvö hesthúsasvæði: Heimsendi í landi Kópavogs og Andvari í landi Garðabæjar. Nefndin skilaði tillögum þessa efnis til stjórnar Gusts í fyrrakvöld og í kvöld verður haldinn félags- fundur um málið. Nefndarmenn telja að veruleg hætta sé á að hesta- mannafélagið Gustur, sem er eina hestamannafélagið í Kópavogi, líði undir lok verði ekkert að gert. Sveinbjörn Sveinbjörnsson, sem á sæti í framtíðarnefndinni bendir á að um 36 prósent hest- húsaplássa í Gusti hafi á síðustu fimm mánuðum verið seld fjár- festum. Þá hafi Gustur eignast 6,8 prósent hesthúsa með því að ganga inn í kauptilboð sem verktakar hafi gert. Sveinbjörn bendir enn fremur á að verði félagið áfram á núver- andi svæði sé með öllu óljóst hvort reiðleiðir frá því verði ásættanleg- ar eða ekki, þar sem lagning Arn- arnesvegar sé fyrirhuguð innan skamms, svo og auglýst skipulag í Hnoðraholti, Smalaholti og á Rjúpnahæð. Framtíðarnefndin gerir það að tillögu sinni, sem lögð verður fyrir félagsfund í Gusti í kvöld, að viðræður verði þegar hafn- ar við bæjaryfirvöld í Kópavogi um framtíðarsvæði fyrir hesta- mannafélagið Gust á Kjóavöllum eða nágrenni. Á þetta verði látið reyna svo fljótt sem nokkur kost- ur er, þar sem það þolir ekki bið að fá úr því skorið hvort þetta er raunhæfur kostur eða ekki. jss@frettabladid.is GUSTUR Framtíðarnefndin vill flytja hesthúsasvæðið til þess að hestamannafélagið Gustur líði hreinlega ekki undir lok. Vilja flytja Gust um set Framtíðarnefnd hestamannafélagsins Gusts í Kópa- vogi telur besta kostinn í þeirri stöðu sem upp er komin að flytja hesthúsasvæðið á Kjóavelli. ÍRAK, AP Stjórnvöld í Írak brugð- ust skjótt við fréttum af fyrsta mannslátinu þar í landi úr mann- skæða fuglaflensuveirustofnin- um H5N1. Á mánudag tilkynntu yfirvöld að 15 ára norður-írösk stúlka hefði látist úr veirunni í janúar. Fimm farsjúkrahús hafa verið flutt til Norður-Íraks og 50 teymi hafa fargað hálfri milljón alifugla á svæðinu, að sögn talsmanns landbúnaðarráðuneytissins. Jafn- framt hafa fuglabændur verið beðnir um að skoða fugla sína. Einnig hafa Bandaríkin og Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin heitið ríkisstjórn Íraks aðstoð. - smk Stjórnvöld í Írak bregðast skjótt við fuglaflensunni: Alifuglum slátrað SMITHÆTTA Íraskur drengur skoðar fugla á fuglamarkaði í Bagdad. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.