Fréttablaðið - 02.02.2006, Blaðsíða 64

Fréttablaðið - 02.02.2006, Blaðsíða 64
sport@frettabladid.is Balic var okkar banabiti ÍÞRÓTTALJÓS ÍSLENSKA LANDSLIÐIÐ Í HANDBOLTA Á EM Í SVISS GEIR SVEINSSON SÉRFRÆÐINGUR FRÉTTABLAÐSINS Það er grátlegt að hafa ekki náð að uppskera neitt úr þessum leik gegn Króötum. Íslensku leik- mennirnir eiga hrós skilið fyrir frammistöðuna og þeir geta verið mjög stoltir af leik sínum. Handboltinn sem var spilað- ur í leiknum var kannski ekki í hæsta gæðaflokki, mikið var um tæknileg mistök á báða bóga, en leikurinn var þó þeim mun meira spennandi. Við spiluðum ekki jafn vel í sókninni og áður og það sást sér- staklega vel í fyrri hálfleiknum þar sem skotnýtingin var ekki eins góð og hún hefur verið fram að þessu. Þá fengum við ekki mikið af hraðaupphlaupum en þetta lagaðist síðan í seinni hálf- leik og skotnýtingin batnaði. Það vantaði þó herslumuninn og það var alveg ljóst að við liðum fyrir áföllin sem hafa dunið yfir okkur á mjög skömmum tíma; að missa Alexander fyrir leikinn og svo Einar strax í upphafi hans. Varnarleikurinn var virkilega góður hjá okkur og við gerðum Króötum mjög erfitt fyrir. Þeir náðu engan veginn góðu floti í sókninni og þar var þáttur Sigfúsar mjög mikill. Hann stýrði vörninni virkilega vel og svo var Birkir Ívar sterkur í markinu í seinni hálfleiknum eftir misjafn- an fyrri hálfleik. Okkar banabiti var Ivano Balic sem steig alltaf upp þegar aðrir leikmenn í króat- íska liðinu virtust ráðþrota og gerði gæfumuninn fyrir þá undir lokin. Það hefur vel gengið gegn Noregi að undanförnu en við höfum þó ekkert í hendi okkar fyrir leikinn gegn þeim í dag. Við verðum bara að einbeita okkur að því að sigra og leggjast síðan á bæn um að úrslit í öðrum leikjum verði okkur hagstæð. Það er allt galopið í þessu og ef strákarnir ná að vinna Noreg hafa þeir svo sannarlega unnið sína vinnu. FRJÁLSAR ÍÞRÓTTIR Stangarstökkvar- inn Þórey Edda Elísdóttir úr FH mun fara í speglun á öxl næsta mánudag. Upphaflega átti hún að gangast undir speglunina síðasta mánudag en það þurfti að fresta henni þar sem Þórey var veik. „Ég veiktist mjög af kvefi og hálsbólgu og það má víst ekki svæfa mann í þannig ástandi. Ég missti röddina og því var þessu frestað um viku og ég var farin að geta talað aftur í morgun,“ sagði Þórey við Fréttablaðið en hún er mjög bjartsýn á að það sé þó ekk- ert alvarlegt sem ami að. „Það er frekar langt síðan ég pantaði þessa speglun og nú vil ég eigin- lega bara að fá að vita nákvæm- lega hvað það er sem er að.“ Þ ó r e y hefur ekki getað tekið þátt í und- i rbú n i ngs - t í m a b i l - inu vegna meiðsla í öxl. „Ég var sár yfir því fyrst en er það ekki lengur. Það er utanlandstímabilið sem skiptir máli og ég er ákveðin í að standa mig þar,“ sagði Þórey sem var best í stangarstökki kvenna á síð- asta ári af keppendum á Norður- löndum og var í sjöunda sæti yfir bestu stangarstökkara í Evrópu í kvennaflokki. - egm Þórey Edda Elísdóttir fer í speglun á öxl á mánudag: Vonandi ekki alvarlegt ÞÓREY EDDA Sævar æfir með ÍBV Framherjinn Sævar Eyjólfsson er að æfa með ÍBV þessa dagana og er ljóst að hann mun ekki vera áfram hjá Þrótti á næsta tímabili. Sævar er 27 ára gamall og er enn einn leikmaðurinn sem yfirgefur Þrótt síðan félagið féll úr Landsbankadeildinni í sumar. Viggó Sigurðsson var svekktur en stoltur af strákunum sínum eftir leikinn í gær enda gáfu þeir allt sem þeir áttu í leikinn. „Það vantaði ótrúlega lítið upp á og við fórum illa að ráði okkar í stöðunni sex á móti fjórum og það var hræði- legt að tapa boltanum. Annars voru Óli og Arnór úrvinda eftir mikið álag og það voru hreinlega ekki til skiptimenn fyrir þá og það kostaði sitt,“ sagði Viggó en bætti við að það hefði sitt að segja að missa Alexander fyrir leikinn og svo Einar strax í upphafi en hann byrjaði leikinn mjög vel áður en hann vankaðist eftir að hafa fengið þungt höfuðhögg. „Annars fannst mér strákarnir hafa spilað stórkostlega og þeir geta verið stoltir. Ísland er búið að eignast frábært handboltalið sem stendur í bestu þjóð- um heims. Nú þurfum við að treysta á aðra því við viljum meira. Ég hef ekki þorað að reikna of mikið fram í tímann því þetta eru allt jöfn lið hérna og það er slegist upp á síðustu sekúndu í öllum leikjum hérna,“ sagði Viggó en hann hélt vart vatni yfir Ivano Balic eins og fleiri í höllinni í St. Gallen. „Hann vann leikinn fyrir þá og þetta er einfaldlega snillingur. Við vorum búnir að halda honum í skefjum en hann kom og skoraði öll úrslitamörkin í leiknum. Okkur vantar smá heppni en það er þannig í íþróttum að heppni er oft með góðu liðunum og þetta er eitt besta lið heims,” sagði Viggó en bar höfuðið hátt þrátt fyrir tapið. „Við þurfum ekkert að skammast okkar fyrir að tapa með einu marki fyrir þessu liði. Maður hefði einhvern tímann verið sáttur við að tapa fyrir Króatíu með einu marki en við sáum að við gátum gert betur og því er maður örlítið svekktur,“ sagði Viggó Sigurðsson að lokum. LANDSLIÐSÞJÁLFARINN VIGGÓ SIGURÐSSON: SEGIR IVANO BALIC HAFA VERIÐ MUNINN Á LIÐUNUM Ísland er með heimsklassa handboltalið HANDBOLTI „Við töpum þessu á eigin klaufaskap því ég get ekki séð að þeir hafi verið neitt betri en við,“ sagði hornamaðurinn Guðjón Valur Sigurðsson hundsvekktur í leikslok. „Við gerðum óhemju dýrar vit- lausur og okkur var refsað fyrir það. Menn trúðu því að þeir gátu unnið en við vorum ekki nógu agaðir síðustu tíu mínúturnar. Við fengum svo sannarlega tækifæri í leiknum en nýttum þau ekki því miður. Vonandi lærum við af þessu og gerum betur næst,“ sagði Guð- jón sem vill ekki meina að þreyta hafi átt hlut í tapinu. „Öll lið eru orðin þreytt og það er engin afsökun að segja að liðið sé þreytt enda erum við að spila jafn mikið og hin liðin. Þetta er líka spurning um einbeitingu og við munum ekki skýla okkur á bak við einhverja þreytu. - hbg SIGUR Leikmenn Króata fagna eftir leikinn. Þjálfari Króatíu: Íslenska liðið mjög öflugt Guðjón Valur Sigurðsson: Vorum klaufar HANDBOLTI „Þetta var rosalega erf- iður leikur fyrir mitt lið. Ég held að við höfum leikið vel í dag og stigin tvö voru frábær og gríðar- lega mikilvæg,“ sagði hinn líflegi Lino Cervar eftir leikinn í dag og brosti allan hringinn. „Í síðari hálfleik vorum við betra liðið í vörn og sókn en ég var sérstaklega ánægður með 6/0 vörnina hjá okkur. Balic var frá- bær sem og Lackovic. Annars vil ég hrósa íslenska liðinu því það lék mjög vel og sýndi hversu öfl- ugt það er. Ég tek hatt minn ofan fyrir þessu baráttuglaða liði.“ - hbg > Einar úr leik Einar Hólmgeirsson, örvhenta skytta íslenska liðsins, rotaðist í leiknum gegn Króatíu í gær og var fluttur á sjúkrahús með heilahristing. Einar fékk þungt höfuðhögg þegar hann reyndi að stöðva skot frá einum króatíska leikmanninum og féll við í jörðina með andlitið á undan. Einar stóð upp með fossandi blóðnasir og risavaxið kýli út úr gagnauganu og var strax ljóst að hann myndi ekki spila meira með. Einar mun líklega ekki geta spilað meira með á mótinu og er hann þannig annar örvhenti leikmaðurinn sem getur ekki spilað með íslenska liðinu það sem eftir er, en áður hafði Alex Pet- ersson verið útilokaður vegna kjálkabrots. FÓTBOLTI Bjarni Guðjónsson gæti verið á leið í MLS-deildina í Bandaríkjunum og yrði hann þá fyrsti Íslendingurinn til að leika í deildinni. Bjarni fékk sig lausan frá enska 1. deildarliðinu Plymouth Argyle á mánudaginn og er í viðræðum við New Jersey MetroStars í Banda- ríkjunum en Youri Djorkaeff, fyrrum landsliðsmaður Frakk- lands, leikur með félaginu og þá lék Lothar Matthäus með því um tíma. -egm Fyrsti íslendingurinn í MLS? Bjarni til Bandaríkjanna BJARNI GUÐJÓNSSON Til MetroStars? HANDBOLTI Fjölmiðlar í Danmörku og Noregi fylgjast að sjálfsögðu af kappi með landsliðum sínum á EM í Sviss og eru duglegir í umfjöll- un sinni um frammistöðu þeirra á mótinu. Árangur íslenska lands- liðsins hefur smátt og smátt verið að fá meiri athygli hjá norrænu fjölmiðlunum og birti danska Extrabladet til að mynda nokkuð stóra grein um magnaðan sigur Íslendinga á Rússum í fyrradag. Í fyrirsögn blaðsins segir „Ísland niðurlægði Rússland“ og í framhaldinu er sagt frá því hvernig íslenska liðið afsannaði hrakspár flestra fyrir leikinn. „Ísland á möguleika á því að gera stóra hluti á EM.“ Svona hljóðar- upphafsorðin í grein blaðsins um glæstan sigur Íslendinga á Rúss- um og síðan rekur blaðið hvernig íslenska liðið, undir stjórn fyr- irliðans Ólafs Stefánssonar, hafi valtað yfir rússneska liðið eftir smá upphafsskrekk. - vig Danskir fjölmiðlar: Rússar voru niðurlægðir HANDBOLTI Íslenska liðið mætti til leiks án Alexanders Petersson sem kjálkabrotnaði gegn Rússum. Hans stöðu tók herbergisfélagi hans, Einar Hólmgeirsson, en þátttaka hans var stutt því hann rotaðist snemma og varð að yfirgefa völl- inn. Íslenska liðið byrjaði leikinn á því að klippa út þá Ivano Balic og Petar Metlicic en leyfði Blaz- enko Lackovic þess í stað að leika lausum hala. Sú taktík gekk ágæt- lega því sóknarleikur Króatanna var lengi vel stirðbusalegur en þeir voru samt ótrúlega drjúgir og skoruðu fjölda marka eftir langar sóknir. Það var áberandi mikið stress í herbúðum beggja liða í fyrri hálf- leik og leikurinn bar þess greinileg merki að mikið var undir. Jafnræði var með liðunum en eins og svo oft áður hafði Ísland frumkvæðið. Ísland náði mest þriggja marka forystu í hálfleiknum en Króatar komu til baka og jöfnuðu fyrir hlé, 13-13. Króatar höfðu þétt í götin í vörninni í hálfleiknum og spiluðu svakalega öfluga 6/0 vörn í síðari hálfleik. Sóknarleikur Íslands var vandræðalegur oft á tíðum og liðið höndlaði það heldur ekki vel þegar Ólafur Stefánsson var tekinn úr umferð og mátti greinilega sjá að þreyta var komin í hina ungu Arnór og Snorra Stein. Króatar tóku frumkvæðið í leiknum og nánast gengu frá honum þegar þeir náðu fjögurra marka forystu, 24-28. Íslenska liðið tók góðan kipp í kjölfarið og minnkaði muninn í 26-28. Þá var rúm mínuta eftir af leiknum, Ísland með bolt- ann og tveim mönnum fleiri. Ivano Balic gerði sér þá lítið fyrir og stal boltanum af Arnóri Atlasyni, hlaup upp allan völlinn og fiskaði vítakast sem Dzomba skoraði úr og drap um leið alla von Íslands um stig í leiknum. Þrátt fyrir tapið getur íslenska liðið borið höfuðið hátt. Strákarnir gáfu allt sem þeir áttu og með smá heppni hefði liðið getað nælt í stig en mörg mikilvæg fráköst end- uðu í höndunum á Króötum. Liðið réð samt einfaldlega ekki við hinn brögðótta Ivano Balic sem lék á als oddi og fór á kostum þótt hann hefði nánast verið í gjörgæslu allan leikinn. Guðjón Valur var frábær og gafst aldrei upp og slíkt hið sama má segja um Ólaf Stefánsson sem var drjúgur sem fyrr. Róbert nýtti skot sín frábærlega og fiskaði góð víti en hann hefur átt fína innkomu í síðustu tveim leikjum. Skotin hjá Snorra Steini gengu ekki upp en þrátt fyrir það stýrði hann liðinu af röggsemi og sjálfstrausti en sjá mátti að hann var orðinn þreyttur enda leikið mikið á mótinu. Slíkt hið sama má segja um Arnór Atla- son en mikil ábyrgð hefur legið á herðum þessara ungu drengja. Sig- fús var frábær í vörninni og Birk- ir Ívar ákvað aldrei þessu vant að taka góða hálfleikinn í síðari hálf- leik en því miður skilaði það ekki stigi. Noregur er næst og það er grát- legt til þess að hugsa að sigur í þeim leik muni ekki fleyta liðinu örugg- lega áfram í undanúrslit en úrslit mótsins hafa ekki beint verið liðinu í hag það sem af er. Það breytist vonandi á morgun en númer eitt er að klára sinn leik en hann tryggir liðinu í sex efstu sætin sem yrði frábær árangur. - vig Hinn brögðótti Balic sá um strákana okkar Líkur Íslands á að komast í undanúrslit á EM dvínuðu verulega í gær þegar liðið tapaði fyrir ólympíumeisturum Króata, 28-29, í spennuþrungnum leik þar sem besti handknattleiksmaður heims, Ivano Balic, fór á kostum. EKKI LENGRA Vörn íslenska liðsins var ágæt lengst af leik en hún réð engan veginn við Ivano Balic, sem sést á litlu myndinni. NORDICPHOTOS/AFP
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.