Fréttablaðið - 02.02.2006, Blaðsíða 6
6 2. febrúar 2006 FIMMTUDAGUR
P
B
ár
a
Lj
ós
m
yn
da
ri
H
öd
di
B
om
ba
D
www.joiogfelagar.is
OPIÐ HÚS MILLI 16 & 18
LAUGARDAGINN 4. FEBRÚAR Á SKÓLAVÖRÐUSTÍG 8
JÓI & FÉLAGAR 18 ÁRA
Á SKÓLAVÖRÐUSTÍG (10 ÁRA)
10 ÁRA Á ÍSLANDI
SIMBI 45 ÁRA
VELKOMIN/N
SAMGÖNGUR Síðustu íslensku kaup-
skipin, sem skráð eru hér á landi,
fara á skrá í Færeyjum í næsta
mánuði. Færeyingar, líkt og aðrar
nágrannaþjóðir, endurgreiða
kaupskipaútgerðum skatta til að
mæta áhafnarkostnaði. Endur-
greiðslan nemur 27 af 35 prósenta
skatti í Færeyjum.
Guðmundur Hallvarðsson,
Sjálfstæðisflokki, tók málið upp
utan dagskrár á Alþingi í gær og
sagði að Eimskip, óskabarn þjóð-
arinnar, hefði ákveðið af þessum
sökum að flytja síðustu kaupskip-
in til Færeyja líkt og Samskip og
Olíudreifing hefðu þegar gert.
„Það er umhugsunarefni
þegar svo er komið að athafna-
leysi íslenskra stjórnvalda hefur
leitt til þess að áhafnarkostnaður
íslenskra kaupskipa milli megin-
lands Evrópu og Íslands svo og
olíuflutningaskip sem dreifa
olíu til stærri hafna landsins er
niðurgreiddur af Færeyingum.
Guðmundur taldi víst að þjóð-
in væri að glata þekkingu og
reynslu íslenskra farmanna úr
landi og þjóðin yrði öðrum háð
um flutninga með skipum sem
sigldu undir þægindafánum með
erlendar áhafnir. „Síðast en ekki
síst gæti álfan orðið varnarlaus
um aðdrætti ef til ófriðar kæmi,“
sagði Guðmundur.
Árni Mathiesen fjármálaráð-
herra sagði efnislega að meta
yrði árangurinn af aðgerðum í
nágrannalönunum. „Eins þarf að
hafa í huga hvort aðgerðir séu í
samræmi við þau almennu sjónar-
mið sem gilda um skattlagningu
hér á landi. Hagsmunaaðilar hafa
ekki heldur verið sammála um það
til hvaða aðgerða eigi að grípa,“
sagði Árni en taldi að nú væri að
skapast samhljómur milli þeirra.
„Ef unnt væri að skrá um 60 flutn-
ingaskip þriggja kaupskipaútgerða
hér á landi gæti ríkissjóður fengið
um 200 milljónir króna í kassann
vegna þeirra umsvifa,“ sagði Kristj-
án Möller, Samfylkingunni. Hann
vitnaði til samþykkta landsfundar
Sjálfstæðisflokksins sem ályktaði í
fyrra um lagfæringar á skattaum-
hverfi íslenskra kaupskipa.
Hjálmar Árnason, þingmaður
Framsóknarflokksins, minnti á
að þótt Evrópusambandið legðist
gegn ríkisstyrkjum hefði hefði
það nú gert undantekningar vegna
evrópskra kaupskipa til að halda
flotanum innan sambandsins.
johannh@frettabladid.is
GOÐAFOSS Síðustu tvö skip Eimskips verða skráð í Færeyjum í næsta mánuði.
Farskipalaus þjóð
eftir nokkrar vikur
Þingmenn allra flokka saka stjórnvöld um þunglamaleg viðbrögð við brott-
hvarfi íslenska kaupskipaflotans úr landi. Síðustu skip Eimskips verða skráð í
Færeyjum í næsta mánuði en þar eins og víðar fást skattar endurgreiddir.
��������������������
������������
��������
������������
������������
������������
SKIPULAGSMÁL Jón Kristjánsson,
heilbrigðis- og tryggingamálaráð-
herra, undirritaði í gær samning
við vinningshafa samkeppninnar
um skipulag nýja Landspítalans,
danska fyrirtækið CF Møller, um
gerð deiliskipulags og þarfagrein-
ingar. Undirritunin fór fram á upp-
hafsfundi framkvæmdanefndar
um byggingu nýs hátæknisjúkra-
húss sem Alfreð Þorsteinsson
stýrir.
Á fundinum voru um 250 full-
trúar heilbrigðisstétta, háskóla-
fólks og hagsmunafélaga sjúklinga,
Hjartaverndar og Krabbameinsfé-
lagsins. Þeir munu starfa í 44 not-
endahópum vegna þarfagreining-
arinnar og taka strax til starfa.
Fulltrúar CF Møller kynntu
vinningstillöguna og fjölluðu um
þá vinnu sem framundan er og á að
vera lokið 30. júní næstkomandi.
Miðað er við að framkvæmdir geti
hafist eftir tvö ár. Þegar þarfa-
greiningu lýkur hefst endurskoðun
vinningstillögunnar á grundvelli
þess sem greiningin leiðir í ljós.
Leyfilegt byggingarmagn nýja
spítalans er rúmlega 170 þúsund
fermetrar og mun verkið taka til
lóðar Landspítalans sem markast
af Eiríksgötu, Barónsstíg og nýju
Hringbrautinni vestur að Njarðar-
götu. - sdg
UNDIRRITUN SAMNINGA Jón Kristjánsson og fulltrúar CP Møller, Klavs Hyttel og Karl Gaub,
skrifa undir.
Undirbúningur fyrir byggingu nýs Landspítala hafinn:
Samið við danska hönnuði
KJÖRKASSI
Telurðu að íslenska landsliðið í
handbolta vinni til verðlauna á
EM?
Já 46%
Nei 54%
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Telur þú samkeppni á raforku-
markaði næga?
Segðu skoðun þína á Vísi.is
ORKUMÁL Forstjórar Norðurorku,
Hitaveitu Suðurnesja og Orku-
veitu Reykjavíkur gagnrýna nýju
raforkulögin en samkvæmt þeim
er sala á raforku gefin frjáls.
Orkuveiturnar bera allar hærri
gjöld vegna breytinganna, Orku-
veita Reykjavíkur þau hæstu eða
458 milljónir króna.
Orkuveitur hafa verið sakað-
ar um verðsamráð en forstjóri
Hitaveitu Suðurnesja, Júlíus Jóns-
son, segir það ekki rétt heldur
sé mestur hluti hækkunar á raf-
magnsreikningum vegna jöfnun-
ar á flutningskostnaði sem orku-
veitunum sé skylt að rukka og
greiða Landsneti, dótturfyrirtæki
Landsvirkjunar. Hann telji flutn-
ingskostnaðinn í raun skatt, því
hitaveitan greiði fyrir flutning
á orku sem fari aldrei um kerfi
dótturfyrirtækisins.
Forstjóri Orkuveitu Húsa-
víkur, Hreinn Hjartarson, segir
veituna þeirra greiða tvöfalt til
þrefalt hærra verð fyrir tenging-
una við kerfi dótturfyrirtækisins
en RARIK hafi fengið greitt fyrir
flutninginn. Upphæðin sé ótrú-
lega há, um tólf milljónir í stað
fimm.
Franz Árnason, forstjóri Norð-
urorku, segir að hann sjái engan
tilgang með nýju raforkulögun-
um. Hann þekki engan sem sé
ánægður með lögin: „Viðskiptavin-
irnir ættu að vera ánægðir en svo
er ekki. Þeir telja sig ekki koma
vel út úr þessu,“ segir Franz. - gag
Frjáls raforkumarkaður leiðir til hærra verðs hjá fyrirtækjum og einstaklingum:
Enginn hagur af raforkulögum
GUÐMUNDUR ÞÓRODDSSON Forstjóri Orku-
veitu Reykjavíkur tekur undir orð forstjóra
Norðurorku og þekkir heldur engan sem sé
ánægður með nýju raforkulögin. Hann og
forstjóri Hitaveitu Suðurnesja vöruðu við
breytingunum.FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA
VERSLUN Úrval í verslunum í Flug-
stöð Leifs Eiríkssonar verður ekki
takmarkað með reglugerð. Þetta
kom fram í máli Árna Mathiesen
fjármálaráðherra á Alþingi í gær.
Hjálmar Árnason, þingmaður
Framsóknarflokksins, spurðist
fyrir um málið í upphafi fundar
og taldi að fregnir um breyting-
ar hefðu getað raskað áformum
um tekjur flugstöðvarinnar en
stækkun hennar kostar fimm
milljarða króna. „Komuverslunin
er ein helsta tekjulind stofnunar-
innar. Ef þessar forsendur breyt-
ast kunna 50 til 60 störf að vera í
uppnámi.“
- jh
Verslun í Leifsstöð:
Engin breyting
á vöruúrvali