Fréttablaðið - 18.02.2006, Blaðsíða 50
14 ■■■■ { eurovision } ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■
DAGLEGT LÍF: Ég er framkvæmda-
stjóri Backbeat, sem er í raun ennþá
hernaðarleyndarmál því enn sem
komið er ég eini starfsmaðurinn.
Þetta á að vera fyrirtæki sem teng-
ist tónlist og verslun en meira verð-
ur ekki látið upp að svo stöddu.
DISKURINN Í SPILARANUM:
Catching Tales með Jamie Cullum.
AF HVERJU EUROVISION? Þetta
er kærkomið tækifæri til að koma
mér á framfæri sem lagahöfundi
og flytjanda. Keppnin er tilvalin
vettvangur enda er íslenska þjóðin
þekkt fyrir Eurovision-veiki sína.
MYNDIR ÞÚ GERA HVAÐ SEM ER
TIL AÐ SIGRA? Nei, alls ekki. Ég
er ekki í þessu til þess að sigra að
þessu sinni en hver veit hvað fram-
tíðin ber með sér í skauti.
HVAÐ ÆTLAR ÞÚ AÐ GERA
ÞEGAR ÞÚ VINNUR KEPPNINA Á
GRIKKLANDI? Ég
ætla að fara á stað
sem ég fór á í fyrra
en það er gríska
eyjan Korfuna. Þar
ætla ég að taka mér
frí frá frægðinni í
tvær vikur.
EFTIRLÆTIS EUROVISION-LAG:
Það eru tvö lög sem ég hef allt-
af verið hrifin af. Annars vegar
Johnny Logan-lagið Hold Me Now
sem vann keppnina 1987 og hins
vegar sænska lagið Främling sem
Carola söng 1983 og hafnaði í
þriðja sæti.
Framkvæmdastjóri
hernaðarleyndarmáls
DAGLEGT LÍF: Ég stunda nám við
almennu tónlistardeildina í Listahá-
skólanum og læri þar á píanó. Ég
kann æðislega vel við mig þarna.
DISKURINN Í SPILARANUM?
Það er diskurinn hans Garðars
Thórs Cortes. Það er svo óskaplega
þægilegt að hlusta á hann í græjun-
um mínum inni í eldhúsi.
AF HVERJU EUROVISION?
Ég söng þetta demó fyrir nokkrum
árum og svo það komst það áfram
hjá honum Trausta Bjarnasyni. Mér
fannst því sjálfsagt að fylgja því
eftir, þetta er svo fallegt lag.
MYNDIR ÞÚ GERA HVAÐ SEM ER
TIL AÐ SIGRA?
Nei, ekki hvað sem er, ég myndi til
dæmis ekki koma nakin fram.
HVAÐ ÆTLARÐU AÐ GERA
ÞEGAR ÞÚ ERT BÚIN AÐ VINNA
KEPPNINA Í GRIKKLANDI?
Anda djúpt, koma heim og taka
sumarið með stæl með stráknum
mínum. Hafa það huggulegt eftir
allt erfiðið.
EFTIRLÆTIS EUROVISION-LAG:
Mér fannst Ruslana alveg ótrúlega
skemmtileg og held mikið upp á
hennar lag. Svo er það náttúrlega
Abba með Waterloo, æ þau eru svo
mörg.
Hlustar á plötu Garðars kynnis
LAG: Strengjadans
HÖFUNDUR: Davíð Þ. Olgeirsson
FLYTJANDI: Davíð Þ. Olgeirsson
SÍMANÚMER: 900 2008
LAG: Andvaka
HÖFUNDUR: Trausti Bjarnason
FLYTJANDI: Guðrún Árný
Karlsdóttir
SÍMANÚMER: 900 2009
DAGLEGT LÍF: „Ég er starfandi
söngkona og söngkennari hjá tón-
listarskóla Þorvalds Bjarna. Ég hef
verið að syngja í sýningum og er
meðal annars í söngsýningunni
Nína og Geiri.“
DISKURINN Í SPILARANUM:
„Fisher man‘s Woman með Emilíönu
Torrini. Hann er búinn að vera ansi
lengi en það verður að viðurkenn-
ast að hann eldist bara ansi vel.“
AF HVERJU EUROVISION? „Mér
finnst þetta alveg ferlega skemmti-
legt og þetta er frábært tækifæri
fyrir alla tónlistarmenn að koma
sér á framfæri. Eurovision er bara
mikið stuð.“
MYNDIR ÞÚ GERA HVAÐ SEM ER
TIL AÐ SIGRA? „Nei - ég er svo lítil
keppnismanneskja. Er svona meira
„bara - með“ stelpa. Ég veit bara
að ég ætla að gera mitt allra, allra
besta.“
HVAÐ ÆTLAR ÞÚ AÐ GERA
ÞEGAR ÞÚ VINNUR EUROVISION
Í GRIKKLANDI? „Ég hef nú ekki
hugsað svo langt. Ætli ég myndi
ekki bara knúsa hana mömmu mína
og láta síðan bjóða mér í eitt heljar-
innar partí.“
EFTIRLÆTIS EUROVISION-LAG:
Ég held að Gleðibankinn og Nína
komi alltaf til með að standa upp
úr.
Knúsa mömmu
ef ég vinn
LAG: 100 % Hamingja
HÖFUNDUR: Sveinn Rúnar Sigurðsson
FLYTJANDI: Heiða Ólafsdóttir
SÍMANÚMER: 900 2007
Ísland hefur oftast lent í 16. sætinu í Eurovision-söngva-
keppninni. Árið 1986, í fyrsta sinn sem Ísland keppti,
lenti lagið „Gleðibankinn“ í 16. sæti. Næstu tvö ár á
eftir vermdu Íslendingar aftur 16. sætið, með lögunum
„Hægt og hljótt“ sem Halla Margrét söng og „Sókrates“
sem Stefán Hilmarsson söng. Íslendingar hafa þó ofast
lent ofan við þetta ágæta sæti, eða alls níu sinnum. Selma
Björnsdóttir rifjaði þó upp kynnin á síðasta ári þegar lagið
sem hún söng, „If I Had Your Love“ lenti í 16. sæti í und-
ankeppninni.
Ísland í Eurovision