Fréttablaðið - 18.02.2006, Side 2

Fréttablaðið - 18.02.2006, Side 2
2 18. febrúar 2006 LAUGARDAGUR ... og mundu eftir ostinum! BAUGSMÁL Framburður Jóns Garð- ars Ögmundssonar, fyrrverandi maka Kristínar Jóhannesdóttur og tengdasonar Jóhannesar Jóns- sonar í Bónus, rekst í meginatrið- um á við framburð Jóns Geralds Sullenbergers í Baugsmálinu. Jón Garðar bar vitni í tengslum við aðalmeðferð málsins í Héraðs- dómi Reykjavíkur í gær og sagði framburð Jóns Geralds í lögreglu- skýrslum um reikninga Nordica Inc á fyrirtækið Pönnu Pizzur furðulegan. Jón Garðar gat skorast undan því að bera vitni þar sem sambúð hans og Kristínar er lokið en hann kaus að bera vitni engu að síður. Á þeim tíma sem Kristín Jóhannesdóttir, einn sakborning- anna í Baugsmálinu, flutti inn bifreið frá Bandaríkjunum rak Jón Garðar Pönnu Pizzur ehf sem var í eigu fjölskyldu Jóhannesar Jónssonar í Bónus. Um bílakaup Kristínar og 1,7 milljóna króna reikning Nordica Inc segir Jón Gerald í lögreglu- skýrslum að umræddur reikning- ur sé efnislega rangur og gefi til kynna ráðgjafarþjónustu fyrir Pönnu Pizzur en ekki kostnað vegna kaupa á bifreiðum. Jón Ger- ald segir jafnframt í skýrslu lög- reglu að hann hafi aldrei átt nein viðskipti við Pönnu Pizzur. Þetta áréttar hann í lögregluskýrslum og segir engin viðskipti hafa legið að baki reikningum sem Nordica Inc hafi gefið út á Pönnu Pizzur ehf. Jón Garðar sagði í réttinum í gær að þessi framburður væri óskiljanlegur og hreinn spuni. Hann og Jón Gerald hefðu þekkst lengi og verið í tveggja til fjög- urra mánaða viðskiptasambandi um hugsanlegan innflutning á hráefni og umbúðum fyrir Pönnu Pizzur síðla ársins 1999. Jón Ger- ald hefði iðulega fengið lánaðan bíl hjá sér og fyrirtækinu og jafnvel kona hans einnig á ferðum þeirra til Íslands. Störfum Jóns Geralds fyrir Pönnu Pizzur hefði lokið án þess að af viðskiptum yrði. Vinna Jóns Geralds hefði verið umtals- verð og samist hefði um að reikn- ingur Nordica Inc vegna vinnu Jóns Geralds yrði sem næst 1,7 milljónum króna eða 23.970 doll- arar. Bar Jón Garðar að það hefði verið sanngjörn upphæð. johannh@frettabladid.is Vitni segir framburð Sullenbergers spuna Framburður Jóns Geralds Sullenbergers og fyrrverandi maka Kristínar Jóhann- esdóttur, sakbornings í Baugsmálinu, stangast algerlega á. Hreinn spuni hjá Jóni Gerald sagði vitnið þegar réttað var í Baugsmálinu í gær. JÓN GERALD SULLENBERGER Segist engin viðskipti hafa átt við Pönnu Pizzur ehf og reikningur sinn stílaður á fyrirtækið hafi ranglega verið sagður fyrir ráðgjafarþjón- ustu en ekki kostnað vegna bílainnflutn- ings Kristínar. ÁSTRALÍA, AP Talsmenn lyfjarisans CSL í Ástralíu lýstu því yfir í gær að rannsóknir þeirra á bóluefni gegn fuglaflensu lofi mjög góðu. Bráðabirgðaniðurstöður sýna að lyfið geti hugsanlega komið í veg fyrir fuglaflensu hjá fullorðnum. Næstu rannsóknir munu kanna viðbrögð barna og eldra fólks við lyfinu. Vonast yfirmenn CSL að fá lyfið samþykkt fyrir lok þessa árs. Ekkert bóluefni er til við fuglaflensu, en margir telja að lyfið Tamiflu geti hjálpað fólki að verjast flensunni. Mannskæða veiruafbrigðið H5N1 hefur vald- ið dauða 91 manns í Tyrklandi og Asíu frá árinu 2003. - smk Bóluefni við fuglaflensu: Rannsóknir lofa góðu FUGLAFLENSA Ítalskir rannsóknarmenn skoða lifandi hegra. FRÉTTABLAÐIÐ/AP Útafakstur í slæmu veðri Bíll lenti út af í slæmu veðri í Langadal í gær. Tveir voru í bílnum en hvorugur þeirra slasaðist. Lögreglan á Blönduósi kom fljótt á vettvang og aðstoðaði mennina við að ná bílnum upp á veginn að nýju. LÖGREGLUFRÉTT JÓN GARÐAR ÖGMUNDSSON Segir fram- burð Jóns Geralds óskiljanlegan og hreinan spuna. Greiðlega hefði samist um að greiða 1,7 milljónir fyrir vinnu Jóns Geralds fyrir Pönnu Pizzur. ������ ��������� ���� ������ ��������� �� ���������� ������ �� ������������������������������ ������������������������������ ���� ������ ������ ������ ����� ����������������������������� �������� ���� ��������� ������� ��� ������� ��� ������� ������ ���� ���� ����� �������� �������� ��� ���������������������� ����� ������������������������������ ��� ��� ������ ����������� ������ ������� �������������� ��� ���� ���������������������������������� �������� ��� ���������� ���� ���� ��������������������������������� ������������������������������ �� ����� ��������� ����������� ����� ������ �������������� ����� ������������������ ����� ���� �������� ��������� KRÓATÍA, AP Óttast er að kúariða hafi stungið sér niður í norðvest- urhluta Króatíu, að sögn land- búnaðarráðherra landsins, Petar Cobankovic í gær. Reynist grun- urinn á rökum reistur, er þetta fyrsta tilfelli kúariðu í Króatíu. Fimm ára gamalli kú á litlu fjölskyldubúi var slátrað eftir að hún fór að haga sér undarlega, og bentu bráðabirgðarannsóknir til að um kúariðu hefði verið að ræða. Staðfestu frekari kannanir rann- sóknarstofu Evrópusambandsins á Englandi gruninn, verður allri hjörðinni slátrað. Yfirvöld segja kúna upprunalega frá Austurríki en yfirvöld neita því. - smk Veik kýr í Króatíu: Grunur leikur á kúariðu Fuglaflensa finnst Fuglaflensa var staðfest í Egyptalandi í gær, að sögn talsmanna Alþjóðaheilbrigðisstofnunar- innar. Mannskæði veirustofninn H5N1 fannst í dauðum fuglum á þremur stöð- um í landinu. Ekki er vitað til að smitið hafi borist í menn þar í landi. EGYPTALAND LÖGREGLUMÁL Tveir karlmenn og ein kona hafa játað að hafa brot- ist inn í verslunina Skóga á Egils- stöðum í fyrrinótt. Lögreglan á Egilsstöðum fékk tilkynningu um að brotist hefði verið inn í verslunina um klukk- an fjögur aðfaranótt föstudags. Nokkrum mínútum seinna kom lögreglan á staðinn og kom þá í ljós að töluvert af fatnaði og lítil- ræði af peningum hafði verið tekið ófrjálsri hendi. Lögreglan á Akureyri stöðvaði þjófana með þýfið daginn eftir ránið. Lögreglan á Egilsstöðum vann að málinu með lögreglunni á Akureyri. Málið telst nú upplýst. - mh Innbrot á Egilsstöðum: Fötum og pen- ingum stolið SPURNING DAGSINS Böðvar, er verið að leika á tónlistarnema eins og fiðlu? Já, með þungum trommukjuðum. Böðvar Reynisson, formaður Félags tónlistar- nema, segir tónlistarnema notaða sem vopn í deilu milli sveitarfélaga og ríkis. SVÖRIN ERU Á BLS. 54 VERÐLAUN Fjöldi tilnefninga til Sam- félagsverðlauna Fréttablaðsins fór fram úr björtustu vonum aðstand- enda. Vel á þriðja hundrað tilnefn- inga bárust. „Þessi mikli fjöldi til- nefninga kom mér skemmtilega á óvart og líka hve fjölbreyttar þær eru,“ segir Steinunn Stefánsdóttir, ritstjórnarfulltrúi á Fréttablaðinu og formaður dómnefndar. Dómnefnd hittist í fyrsta sinn í gær til að fara yfir tilnefningarn- ar og verður helginni varið í lest- ur þeirra. Vegna þess hve margar tilnefningar bárust hefur afhend- ingu Samfélagsverðlaunanna verið frestað um eina viku. Verða þau veitt fimmtudaginn 2. mars. -bþs Samfélagsverðlaun Fréttablaðsins verða afhent fimmtudaginn 2. mars: Á þriðja hundrað tilnefningar GLUGGAÐ Í GÓÐVERK Dómnefnd Samfélagsverðlaunanna, Davíð Scheving Thorsteinsson, Guðjón Friðriksson, Steinunn Stefánsdóttir og Svanfríður Jónasdóttir. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN VERSLUN Skrifstofuhúsgögn, sem Ríkisútvarpið keypti í útvarps- stjóratíð Vilhjálms Þ. Gíslasonar, eru til sölu á antíkmarkaði í Perl- unni fyrir eina og hálfa milljón króna. Húsgögnin eru skrif- borð, bókaskápur, sex stólar og tvö smærri borð. Hægt er að fá skrifborðið og bókaskápinn fyrir 800.000. Vilhjálmur keypti húsgögnin í Kaupmannahöfn 1959 og hafði Hjalta Geir Kristjánsson, hús- gagnahönnuð og kaupmann, með sér utan til aðstoðar við valið. Húsgögnin voru hönnuð og smíð- uð hjá Lysberg, Hansen og Therp. Ari Magnússon, kaupmaður í Antikmunum, sem stendur að markaðnum í Perlunni, segist telja að sé kaupverð húsgagnanna á sínum tíma uppfært til dagsins í dag nemi það um þremur til fimm milljónum króna. Hann segir hús- gögnin í góðu ásigkomulagi og að þeim fylgi merk saga. Skrifborðið er úr hnotu en skrifflötur þess er klæddur leðri. Þá er bronsskraut á köntum og fótum. Húsgögnin voru sérsmíðuð fyrir Ríkisútvarpið og telur Ari að aðeins séu örfá önnur slík til í heiminum. -bþs Hálfrar aldar gömul húsgögn af skrifstofu útvarpsstjóra til sölu á antikmarkaði: Föl fyrir eina og hálfa milljón ÚTVARPSSTJÓRAHÚSGÖGNIN Vilhjálmur Þ. Gíslason keypti húsgögnin í Kaupmannahöfn 1959 og naut aðstoðar Hjalta Geirs Kristjánssonar við valið. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR Nálægt níu milljörðum Á árinu 2005 var fluttur út óunninn afli á erlenda fiskmarkaði að verðmæti 8.578 milljónir króna. Árið 2004 var verðmæti þessa útflutnings 8.316 milljónir króna. Þetta er 3 prósenta hækkun á milli ára. SJÁVARÚTVEGUR

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.