Fréttablaðið - 18.02.2006, Blaðsíða 42
6
Milljónamiðar
leynast enn á sölustöðum.
Finnur þú þann næsta?
Varaborgarfulltrúinn, spjallþáttastjórnand-
inn og Eurovision-nördið Gísli Marteinn
Baldursson er sá sem hefur fylgt keppend-
um oftast. Hann fór fyrst út með Selmu
Björns þegar hún hirti annað sætið en
hann sá vinkonu sína einnig sitja eftir með
sárt ennið í fyrra. Frá árinu 1999 hefur Gísli
aðeins misst úr einni keppni.FRÉTTABLAÐIÐ / PJETUR
Það var kannski hálfgerð refsing fyrir Pál
Óskar Hjálmtýsson að hann fékk að kynna
fyrstu keppnina sem við vorum ekki með
í. Íslenskir sjónvarpsáhorfendur komu þó
ekki að tómum kofanum hjá Páli enda
hafsjór af fróðleik um keppnina.
Menningarfulltrúinn í London, Jakob Frí-
mann Magnússon, naut góðs af velgengni
Johnny Logan og félaga en þrjú ár í röð
fór keppnin fram á Írlandi. Lífið var þó
ekki endalaust dans á rósum því Jakob
neyddist til að tilkynna okkur að við yrðum
ekki með að ári þegar atriði Páls Óskars
hneykslaði hina siðavöndu Evrópu.
Með keppendum í för hafa yfirleitt
verið íslenskir þulir sem hafa fært
okkur keppnina. Það hefur hins
vegar verið svo mikið stuð að fæst-
ir muna hver var hvar og listinn er
því ekki alveg 100 prósent öruggur.
Hvernig á maður að bregðast við
þegar Danir svíkja okkur og gefa
okkur ekkert stig? Þegar við sjáum
fram á að hið ómögulega muni
gerast, sigur gæti náðst? Lýsendur
í útsendingum frá Eurovision hafa
verið ótrúlega ólíkt fólk: Útvarps-
maður, þingkona, þýðandi, stuð-
maður, Idol-dómari, varaborgar-
fulltrúi og fréttaþulur.
Fréttaþulurinn geðþekki og Meistarastjórn-
andinn Logi Bergmann Eiðsson var sendur
til Eistlands eftir að Two Tricky tókst ekki að
tryggja okkur sæti. Logi fór vel með hlut-
verkið þrátt fyrir augljóslega vankanta á því
að vera eini Íslendingurinn á svæðinu.
FRÉTTABLAÐIÐ / VALLI
Þau færðu okkur
Eurovision
Frá árinu 1986 hafa Íslendingar tekið þátt í Söngva-
keppni evrópskra sjónvarpsstöðva og þurft að ferðast
vítt og breitt um álfuna til að koma landi og þjóð á
framfæri.
Hinn þýskumælandi Arthúr Björgvin Bolla-
son vann hug og hjörtu þjóðarinnar þegar
hann fylgdi okkur í þriðja sinn í sextánda
sætið. Árið eftir brást hann við eins og
sönn hetja þegar við fengum ekkert stig og
höfnuðum í síðasta sæti. Samkvæmt heim-
ildum blaðsins fékk hann einnig heiðurinn
af því að sjá Stjórnina hreppa fjórða sætið.
FRÉTTABLAÐIÐ / HARI
Kolbrún Halldórsdóttir kynnti keppnina hér
heima enda ætluðum við Íslendingar að
hefna fyrir ófarirnar frá árinu áður. Evrópa
virtist þó ekki tilbúin fyrir Höllu Margréti og
sextánda sætið var staðreynd.
FRÉTTABLAÐIÐ / VILHELM
Þorgeir Ástvaldsson fór með Icy-tríóinu til
Noregs og ætlaði að koma heim með doll-
una enda var nokkuð öruggt að við værum
búin að vinna keppnina. Við tókum 16.
sætið með stæl og sátum þar sem fastast
næstu tvö árin.
■■■■ { eurovision } ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■
Lögin í Söngvakeppni Sjónvarpsins
hljóta töluverða athygli á Rás 2.
Ólafur Páll Gunnarsson, verkefnis-
stjóri tónlistar á Rásinni, segir lögin
í undankeppninni einmitt prýða
næstu íslensku plötu vikunnar.
„Við höfum markvisst spilað
lögin eftir undankvöldin,“ segir Óli
Palli sem telur þau eiga eftir að lifa
eftir keppnina: „Við eigum eftir að
tína þau lög úr sem fólkið vill heyra
og spila. Það á eftir að koma í ljós
hver þau verða en sigurlagið verður
spilað í drep.“
Óli Palli fylgist með Eurovision
og segir að hann hafi aldrei sleppt
úr kvöldi síðan hann var smástrák-
ur. „Músíklega gerir keppnin ekki
mikið fyrir mig en ég hef gaman af
henni. Þetta er skemmtilegt kvöld.
Fjölskyldur og vinir hittast og það
verður svona hátíð í bæ. Ég velti
úrslitunum samt ekki fyrir mér.“
Hann á þó sitt uppáhaldslag úr
keppnunum, Gleðibankann: „Af því
að það var fyrst og fremst, eins og
Rás 2,“ segir Óli Palli á léttu nót-
unum. Hvattur til að nefna erlent
lag segir hann Abba-lagið Waterloo
best.
Tónlistarsérfræðingurinn Óli Palli segir að töluvert sé beðið um að lögin úr Söngvakeppni Sjónvarpsins verði spiluð á Rás 2.
Ólafur Páll Gunnarsson verkefnisstjóri tónlistar á Rás tvö:
Sigurlagið margspilað