Fréttablaðið - 18.02.2006, Blaðsíða 82
18. febrúar 2006 LAUGARDAGUR42
utlit@frettabladid.is
Ungu hönnuðirnir Michael Herz og Graeme Fidler kynntu nýjustu línu Aquascutum nýlega á tísku-
vikunni í London en þetta er þriðja
línan sem þeir hanna fyrir merkið.
Hönnuðirnir blönduðu saman áhrifum
frá sjöunda áratugnum við nútímalegan
stíl og sýndu að það er alls ekki nóg að
taka flíkur sem
e i n k e n n d u
sjöunda ára-
tuginn og
skella þeim
á tískupall-
ana heldur
er nauð-
synlegt að
gefa þeim
e i t t h v a ð
meira, smá
gróf leika
og slettu
af nýjum
hugmynd-
um.
H e r z
og Fidler
v irðast
einmitt afar snjallir í að
taka klassískar flíkur og
gefa þeim örlítið hrátt og
töff bragð og raunin er að
þeir notuðu einmitt gaml-
ar flíkur frá Aquascutum
í innblástur. Þarna mátti
því sjá kápur sem minntu
á sjöunda áratuginn en voru
þó pokalegar að neðan, klass-
ískan rykfrakka sem gerður
var nútímalegur með skrítnum
útfærslum, dásamlegan kjól sem
virtist samsettur úr tvíhneppt-
um frakka og skyrtu, stóran og
þykkan prjónabol með belti í
mittið og miklu fleira spennandi
eins og myndirnar sýna. Inn á
milli voru svo venjulegri flík-
ur og í mörgum útfærslunum
klæddust fyrirsæturnar svört-
um beinum buxum og klassískum
háhælaskóm við óvenjulegri efri-
hluta.
hilda@frettabladid.is
MÓÐUR VIKUNNAR
> MARTA MARÍA FER YFIR MÁLIN
Spáir þú mikið í tískuna?
Mér finnst gaman að fylgjast með því
sem er að gerast. En tískan stjórnar ekki
lífi mínu né því sem ég er að hanna
sjálf.
Hvernig myndirðu lýsa stílnum
þínum?
Persónulegur.
Uppáhaldshönnuðir eða fatamerki?
Ég er mjög hrifin af belgískri hönnun,
sérstaklega Martin Margiela og Dries
van Noten. Svo finnst mér margir jap-
anskir hönnuðir skemmtilegir.
Flottustu litirnir?
Allir.
Hverju ertu veikust fyrir?
Ég er algjör skófíkill og er endalaust að
sjá skó sem ég „verð“ að eignast.
Hvaða flík keyptir þú þér síðast?
Skó úr 38 þrepum á Laugavegi.
Hvað finnst þér flottast í tískunni
núna?
Að það er allt leyfilegt.
Hvað finnst þér nauðsynlegt að eiga
í vetur?
Góðar Woolworth ullarsokkabuxur.
Uppáhaldsverslun?
Búðin Martin Margiela í París, 13 rue
Grenelle í 7 hverfi og 38 þrep á Lauga-
vegi.
Hvað eyðir þú miklum peningum í föt
á mánuði?
Það er misjafnt.
Hvaða flíkur gætir þú ekki verið án?
Skónna minna.
Uppáhaldsflík?
Allar flíkurnar mínar eftir japanska
hönnuðinn Isshi hjá Feralflair...sem
eru nokkrar.
Hvert myndir þú fara í verslunar-
ferð?
Ég myndi fara til New York og Berlínar.
Ljótasta flík sem þú hefur keypt þér?
Ég man ekki eftir neinni ljótri flík þessa
stundina.
SMEKKURINN RAGNA FRÓÐADÓTTIR FATAHÖNNUÐUR
Hrifin af belgískri og japanskri hönnun
> Leggings...
eða aðeins of
víðar sokka-
buxur, hæfilega
krumpaðar og
hrikalega töff
á furðulegan
hátt eru eitt af
því sem mest
er áberandi á
tískupöllunum.
Þessar eru úr
sumarlínu
Prada.
Konudagurinn er á morgun. Auðvit-
að ætti ég að vera nærri því dauð úr
spenningi yfir væntanlegu blómahafi
og gjöfum frá mínum manni en ég verð
að viðurkenna að líðanin stefnir ekki
í þá átt. Mér leiðist konudagurinn og
svona dagar almennt þar sem almenn-
ingur er skikkaður til að gefa blóm og
vera sérstaklega rómantískur. Það er
bara ekki innbyggt inn í allar týpur að
leika Rómeó eftir pöntun. Það fer í taug-
arnar á mér að blómabúðir og aðrir sem
hugsanlega geta grætt svolitla peninga
á þessum dögum notfæri sér það. Hvern
langar að fá gjafakörfu frá ástinni sinni
sem er valin af starfsfólki verslana með
nokkrum hjartalaga súkkulaðimolum,
ilmspreyi og handklæði eða „þokkafull-
um“ undirfötum? Ég yrði brjáluð ef mér yrði fært eitthvað slíkt.
Eini dagurinn sem virkilega á rétt á sér er bolludagurinn, en það
er bara því mér finnst heimatilbúnar bollur gómsætar og svo minnir
mig að það hafi verið stuð á öskudaginn.
Ég skil heldur ekki pælinguna með afskorin blóm. Hvað er róm-
antískt við þau? Auðvitað eru túlípanar krúttlegir og ógurlega fal-
legir þegar þeir eru komnir í sætan blómavasa. Tala nú ekki um
þegar heimilið er nýskrúbbað. Ég held að flestar konur kaupi sér þó
blóm sjálfar ef þær vantar að krydda heimilisdekkóið. Ég held að
afskorin blóm hafi ekkert með raunverulega ást eða tilfinningar að
gera frekar en styttur, kertastjakar og „þokkafull“ undirföt.
Nú veit ég að vinkonur mínar eiga eftir að verða óhressar með
mig því margar af þeim eru sérlega pakkaóðar. Vilja að þeim sé
komið á óvart mánaðarlega með glaðningi og pökkum sem innihalda
fínerí sem er hægt að skarta við sérstök tækifæri. Gott og vel fyrir
þær en ég veit ekki hvernig ég myndi bregðast við ef minn maður
færi skyndilega að bera í mig gjafir vikulega. Ég held að það myndi
framkalla vantraust í hans garð. Þótt gjafir geti glatt mann í smá
tíma þá lækna gjafir ekki andlega líðan og þær framkalla heldur
ekki ást. Þetta er svipað með gjafirnar og alla peningana. Það er
alveg sama hvað við reynum, hvorki gjafir né peningar koma í stað-
inn fyrir andlegt jafnvægi og innri gleði. Þetta fæst nefnilega ekki
gefins þótt það sé auðvitað skárra að vera grenjandi í BMW en í
strætó.
Sérpantaður Rómeó
Nútímaleg klassík