Fréttablaðið - 18.02.2006, Blaðsíða 46
10 ■■■■ { eurovision } ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■
DAGLEGT LÍF: Ég er menntaður
snyrtifræðingur en vinn ekki við
það núna. Er á kafi í að læra söng í
Nýja tónlistarskólanum og stefni á
að klára áttunda stigið í klassískum
söng í vor.
DISKURINN Í SPILARANUM? Það
hljómar kannski klisjulega en ég hlusta
mikið á lagið mitt, Eldur nýr. En svo er
ég líka að hlusta á disk sem Diddú gaf
út fyrir nokkrum árum og inniheldur
nokkrar aríur sem ég er að læra.
AF HVERJU EUROVISION? Örlygur
Smári hringdi í mig og spurði hvort
ég hefði áhuga. Ég ákvað að slá til
enda hefur það verið draumur hjá
mér síðan ég sá Gleðibankann þegar
ég var lítil að taka þátt í Eurovision.
MYNDIR ÞÚ GERA
HVAÐ SEM ER TIL AÐ
SIGRA? Nei ekki hvað
sem er. Ég myndi ekki
koma nakin fram. En
við höfum lagt okkur
öll fram og ég held að þetta verði
glæsilegt opnunaratriði hjá okkur,
en okkar lag verður flutt fyrst.
HVAÐ ÆTLARÐU AÐ GERA
ÞEGAR ÞÚ ERT BÚIN AÐ VINNA
KEPPNINA Í GRIKKLANDI? Ég veit
það ekki. Ég er ekki búin að hugsa
svo langt en ég myndi örugglega
bara hrópa húrra.
BESTA EUROVISIONLAGIÐ? Mér
finnst Nína alltaf alveg ofboðslega
flott. Það er manni svo hugleikið.
Dreymdi um
Eurovision
DAGLEGT LÍF: Ég æfi mig, fer út
með hundinn og elda mat. Þess á
milli kenni
ég söng og
syng sjálf.
S ö n g u r -
inn er því
l if ibrauðið
mitt.
DISKURINN
Í SPILAR-
ANUM? Best
Of Stevie Wonder er alltaf vinsæll,
hvað sem er með U2 og svo óper-
una M.Butterfly.
AF HVERJU EUROVISION? Hún er
svo töff þessi keppni. Hún er ekki
bara hallærisleg heldur eru hallær-
islegu hlutirnir bara hluti af keppn-
inni sjálfri.
MYNDIR ÞÚ GERA HVAÐ SEM
ER TIL AÐ SIGRA? Nema kannski
koma nakin fram.
HVAÐ ÆTLARÐU AÐ GERA
ÞEGAR ÞÚ ERT BÚIN AÐ VINNA
EVRÓVISION? Drekka kampavín og
fagna alveg gríðarlega. Svo kem ég
heim og læt bjóða mér heim í svaka
partí.
EFTIRLÆTIS EVRÓVISIONLAG?
Það myndi vera Romeo frá Nor-
egi og La det Swinge frá sama
landi.
Töff keppni
DAGLEGT LÍF: „Ég er tónlistar-
kennari,“ segir Þóra: „Ég kenni á
flautu og saxófón og mikill tími
fer í kennsluna. Svo hef ég verið
að semja tónlist og spila á hljóm-
borð og hef einnig glamrað á
gítar síðan ég var þrettán. Er
í gospelkór og útset og syng
bakraddir fyrir Þorvald Bjarna.“
Edgard vaknar og fer í skólann:
„Fer síðan að vinna í Securitas í
Orkuveitunni til klukkan níu og
er í músíkinni þess á milli.“
DISKURINN Í SPILARANUM:
Edgard hlustar á Hjálma. „Nýi
diskurinn þeirra er ótrúlega góður.
Maður nær að chilla svo vel.“ Þóra
nefnir disk með Bessamy Dillan
sem kallast Revolutionaries: „Ung
stúlka sem enginn þekkir en er
svakalega góð.“
AF HVERJU EUROVISION? Þóra
segir að hún hafi ekki verið mik-
ill Eurovision-aðdáandi og oft gert
grín að keppninni: „En mér finnst
ótrúlega gaman að vera með. Ég var
með í undankeppninni fyrir þrem-
ur árum. Stemningin var svo mikil.
Aðalástæðan er samt að mér finnst
mjög gaman að fá tækifæri til að
syngja fyrir þjóðina.“ Edgard segir
ekki það mikið úrval af atburðum
fyrir alla þá tónlistarmenn sem séu
á landinu: „Ef manni býðst eitthvað
þá tekur maður það.“ Hann segir
Ómar, höfund lagsins, einnig frá-
bæran. Ekki sé hægt að segja nei
við hann.
MYNDUÐ ÞIÐ GERA HVAÐ SEM ER
TIL AÐ SIGRA? „Nei,“ segir Þóra:
„Ég myndi alltaf standa á mínu. Ég
hef skýra línu sem ég fer ekki yfir.“
Edgard hefur einnig sín prinsipp,
konuna sína, sem kemur í veg fyrir
að hann geri hvað sem er: „Ég
myndi ekki koma nakinn fram.“
BESTA EUROVISIONLAGIÐ? Þóra
nefnir lagið sem Sandra Kim flutti:
„J‘AIME LA VIE.“ Edgard segir
ísraelska lagið Halleluja sem vann
keppnina 1979 það besta: „Það er
svo sérlega gott að muna textann.“
Í tónlist allan sólarhringinn
LAG: Eldur nýr
HÖFUNDUR: Örlygur Smári
FLYTJANDI: Ardís Ólöf
SÍMANÚMER: 900 2001
LAG: Útópía
HÖFUNDUR: Sveinn Rúnar
Sigurðsson
FLYTJANDI: Dísella
Lárúsdóttir
SÍMANÚMER: 900 2003
LAG: Stundin - staðurinn
HÖFUNDUR: Ómar Þ. Ragnarsson
FLYTJENDUR: Þóra Gísladóttir og
Edgard S. Atlason
SÍMANÚMER: 900 2002
Allir sem eru nægilega gaml-
ir til að muna eftir keppninni
1974, sem haldin var í Brighton
á Englandi, ættu að hafa upplif-
að dálítið sérstakt. Á meðal hina
hefðbundu og látlausu listamanna
sem stigu á sviðið það árið, (þar á
meðal Olivia Newton-John), kom
Abba fram og gjörsamlega tryllti
lýðinn. Klædd eins og Gary Glitt-
er og David Bowie, sungu þau
lagið Waterloo, sem leiddi þau til
sigurs. Lagið þekkja allir og hefur
það jafnframt verið kosið besta
Júróvisjón lag allra tíma.
Manstu eftir....