Fréttablaðið


Fréttablaðið - 18.02.2006, Qupperneq 38

Fréttablaðið - 18.02.2006, Qupperneq 38
2 ● DANIR... Hin sautján ára gamla Sidsel Ben Semmane fer til Aþenu. Sidsel syngur lagið Twist of Love í aðalkeppninni. Lagið er rokkað kántrílag. ● EISTLAND... sendir hina sænsku Söndru til keppn- innar í Aþenu. Tíu manna alþjóðleg dómnefnd valdi lagið úr tíu laga hópi. Lagið var þó ekki það vin- sælasta heima fyrir. Höfundur lagsins hefur tvisvar sinnum áður keppt í Eurovision. Hann samdi lagið Once in a Lifetime, sem Ines söng árið 2000 í Stokkhólmi, og Runaway, sem önnur sænsk stúlka, Sahléne, söng í Lettlandi fyrir fjórum árum. Lag Söndru rétt marði lag sem Ines flutti nú í keppninni. ● FINNAR... eiga enn eftir að velja úr tólf flytjendum sem keppa í undankeppni um framlag Finna. Sigurvegarinn fær plötusamning. Lokakvöldið verður 10. mars. ● GRIKKIR... völdu Önnu Vissi. Hún flutti átta ára frá Kýpur þar sem foreldrar hennar vildu auka möguleika hennar á frægð í tón- listarheiminum. ● ÍRAR... Brian Kennedy var val- inn úr hópi fjögurra. Einu laganna var vísað úr keppni þar sem það hafði verið gefið út árið 2002. ● MALTA... Fabrizio Faniello keppir í annað sinn. Hann söng lagið Another Summer Night á sviðinu í Parken í Kaupmanna- höfn fyrir fimm árum. Hann syng- ur nú lagið I do í aðalkeppninni enda lenti hin íturvaxna Chiara í öðru sæti í fyrra. ● NORÐMENN... eiga fast sæti í aðalkeppninni 20. maí vegna góðs gengis Wig Wam í Úkraínu. Þeir lentu í 9. sæti. Lagið í ár kallast á norsku Alvedansen og Christine Guldbrandsen flytur. ● PÓLVERJAR... senda hljóm- sveitina Ich Troje will sem syngur lagið Follow my Heart. Hljóm- sveitin tók einnig þátt fyrir þrem- ur árum í Ríga í Lettlandi með laginu Keine Grenzen - Zadnych Granic. ● SVÍAR... velja lagið 18. mars. ● SVISSLENDINGAR... leituðu að sex flytjendum í blandað stráka og stúlknaband til að keppa í Eur- ovision. Unga fólkið þurfti að hafa sterka og mikla rödd og mikið sjálfstraust. Hljómsveitin kallast Six4one og er skipuð hinni sex- tán ára Liel frá Ísrael, sem sungið hefur á 100 tónleikum í Banda- ríkjunum og Þýskalandi og er talin arftaki Celine Dion, Andreasi Lundstedt, frá Svíþjóð, sem er í Alcazar-hljómsveitinni frægu sem gerði lagið Crying at the Discot- heque þekkt, Tinku Milinovic, sem er sautján ára þáttastjórnandi í útvarpi í heimalandinu Bosníu og Hersegóvínu, Keith Camilleri, sem er frá Möltu, Marco Matias, sem hefur portúgalskar rætur og svo hinni svissnesku Claudiu D‘Addio, einni bestu söngkonu í Sviss þessa stundina. Keppnin hörð í Grikklandi „Hvernig föt á ég að kaupa fyrir ferðina til Íslands?,“ spurði Hanne Krogh þegar Eurovision-blaðið náði tali af henni. „Er kalt hjá ykkur?“ hélt hún áfram og var samviskusam- lega frædd um að það væri frekar kalt uppi á klaka. Hanne og Elisa- beth Andreassen skipuðu dúettinn Bobbysocks sem vann Eurovision- keppnina 1985 með hinu gríðarvin- sæla lagi La det svinge. Árið eftir var þessum geðþekku norsku stelp- um boðið hingað til lands og voru þær viðstaddar þegar lag Magnúsar Eiríkssonar, Gleðibankinn, var valið framlag Íslands í fyrstu keppnina sem við tókum þátt í. Nú, tuttugu árum síðar, mæta þær stöllur til að sjá hvert framlag okkar til keppninnar í Grikklandi verður. Það er ekki annað að heyra en að Hanne hlakki mikið til að koma aftur og hún mærir landann í bak og fyrir. „Ég naut þess í botn að vera á Íslandi fyrir tuttugu árum,“ segir hún og tekur skýrt fram að þetta segi hún ekki vegna þess að hún sé í viðtali við íslenskt blað. „Það var frábært að hitta íslenskt fólk, sem mér finnst yndislegt,“ bætir hún við og rifjar upp kynni sín við Eirík Hauksson sem í dag er hennar besti vinur. „Þið eruð félagslynd, fyndin og fróð,“ heldur hún áfram en staðnæmist svo til þess að þetta verði ekki of mikið. „Þetta verður að vera trúverðugt,“ segir hún og hlær. Hanne og fjölskylda hennar hafa ákveðið að vera hér í nokkra daga eftir að keppni lýkur og ætla að skoða landið í vetrarlitunum. Þegar talið berst að Eurovision er ljóst að Hanne þykir mjög vænt um keppn- ina þó hún viðurkenni að hún hafi ekkert fylgst allt of vel með síðustu ár. „Þessi keppni gerði mikið fyrir mig. Ég var fimmtán ára þegar ég tók fyrst þátt heima fyrir. Hún kom mér í sviðsljósið þar sem ég hef verið allar g ö t u r síðan,“ útskýrir H a n n e og bætir við að þetta hafi gert það að verk- um að hún hafi getað haft atvinnu af því að syngja. „Ég fékk að ferðast til landa sem mér að öðrum kosti hefði ekki gefist tækifæri til að sjá,“ segir hún. Hanne var 29 ára þegar hún vann keppnina og var fjölskyldumann- eskja á þessum tíma, átti þriggja ára gamlan son. „Euro- vision stal mömmu hans frá honum,“ segir Hanne og hlær. „Við e r u m s a m t g ó ð i r vinir enn þann dag í dag,“ heldur hún áfram en nú er dreng- urinn að læra í San Francisco og er auk þess atvinnupókerspilari í Evrópu. Sam- kvæmt Hanne er hann ekki mikill Eurovision-fíkill en hún segist hafa óstaðfestar heimildir fyrir því að hann hafi einhver lög úr keppninni á iPod-spilara sínum. Það er því greinilega að einhver heppni fylgir Krogh - fjölskyldunni þegar Eur- ovision er annars vegar því sonur- inn er víst Evrópumeistari í póker. Hanne syngur enn þann dag í dag og hefur í nógu að snúast. Sömuleiðis á Elisabeth Andreassen einnig farsælan feril að baki í heimalandinu. „Við erum enn á lífi og í fullu fjöri,“ segir þessi geð- þekka söngkona og heldur áfram að reyna að finna hlý föt fyrir komuna til landsins.Enn í fullu fjöri Þær Hanne Krogh og Elisabeth Andreassen eru enn í fullu fjöri í tónlistarlífinu og hafa náð góðum árangri eftir fárið í kringum keppnina. Bobbysocks hlakkar mikið til Fyrir tuttugu árum kom norski dúettinn Bobbysocks hingað og krýndi fyrsta framlag okkar til Eurovision. Bobbysocks- stúlkur snúa núna aftur og segjast eiturhressar. Bobbysocks Sungu sig inn í hug og hjörtu Evrópubúa með laginu La det svinge sem sigraði árið 1985. ■■■■ { eurovision } ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■ Sigríður Bein- t e i n s d ó t t i r hefur þrisvar sinnum farið fyrir Íslands hönd í Eur- ovision. Fyrst sungu hún og Grétar Örvars- son lagið „Eitt lag enn“, árið 1990. Slógu þau held- ur betur í gegn og náðu 4. sæt- inu, og var það í fyrsta sinn sem Ísland komst upp fyrir 16. sætið. Í annað sinn sungu hún og Sigrún Eva ásamt hljómsveitinni Heart 2 Heart, árið 1992, lagið „Nei eða já“. Lentu þær í 7. sæti. Í þriðja sinn söng hún lagið „Nætur“, árið 1994 og lenti þá í 12. sæti. Nú er bara að bíða og sjá hvort Sigga fari aftur í keppnina en hún syng- ur bakraddir hjá Silvíu Nótt. Ísland í Eurovision Starfsfólkið á skemmtistaðnum Players verður klætt upp í anda Silvíu Nætur í kvöld vegna úrslita í Söngvakeppni Sjónvarpsins. Þrettán sjónvarpsskjáir og fjögur breiðtjöld fanga gleðina á skemmtiklúbbnum. Hallur Johansen rekstrarstjóri segir að stuðið verði þar. „Við setjum stjörnur í andlitið á stelpunum á barnum og ætlum að reyna að smella þeim í netasokka- buxur og þær verða með grifflur,“ segir Hallur: „Þetta er allt gert í gamni.“ Hallur segir dyraverðina þá einu sem sleppa við búningana en síðar um kvöldið spilar hljómsveitin Vinir vors og blóma fyrir dansi. Hall- ur segir söngvarann Bergsvein Arelí- usson, sem er í fararbroddi bandsins, einnig verða færðan í stílinn. Söngvakeppnin verður ekki eini stórviðburður dagsins á staðnum. Leikur ensku knattspyrnuliðanna Liverpool og Manchester Utd. er einnig á dagskránni. Hallur á síður von á að sami hópurinn verði á báðum skemmtununum. „Annars hafa allir gaman af Eurovision þó þeir viðurkenni það ekki,“ segir Hallur. Hvað hann sjálfan varðar segir hann keppnina fara inn um eitt eyrað og út um hitt: „Úrslitakvöldið fer samt ekkert framhjá mér.“ Hann er ánægður með framtak Sjónvarpsins að halda keppnina. Fjöldi fólks hafi gaman af henni og geri sér dagamun á úrslitakvöldun- um: „Þetta er tvöföld gleði,“ segir Hallur og bíður eftir keppninni í Aþenu, enda fyllast skemmtistað- irnir af fólki eftir úrslitakvöldið þar. Tvöföld gleði á Players SPORTBAR RESTAURANT ���������� á Holtakránni Föstudagur Laugardagur - Kl. 12:20 Liverpool - Man. Utd Þriðjudagur - Kl. 19:35 Benfica - Liverpool Miðvikudagur - Kl. 19:30 Chelsea - Barcelona á risaskjá ������� í beinni Pizza & öl 1.500,- Alla daga! Grill / Samlokur / Pizzur / Hamborgara / Hlaðborð á föstudögum / Heimilismatur virka daga á 750,- Öl og skot Frá kl. 20-22 ������� ������� trúbador heldur upp fjörinu að loknu Idol Frítt inn! ������������ ������� Laugardagur Spilar frá kl. 23:30 fram á rauðanótt! Aðgangs eyrir kr. 500,- Kirkjustétt 2-6, Grafarholti, S. 567 8197Húsið opn ar kl. 23:0 0 Eurovisionball Hallur Johansen Rekstrarstjórinn á Players með allt á hreinu fyrir kvöldið. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR Lagið sem vinnur í Söngva- keppni Sjónvarpsins í kvöld verður nítjánda framlag Íslands í Eurovision-keppninni í Grikk- landi. Það keppir í forkeppninni 18. maí um þátttökurétt í úrslita- kvöldinu tveimur dögum síðar. Aðeins tíu lög komast áfram. Ísland tók fyrst þátt fyrir tut- tugu árum. Vegleg söngvakeppni var haldin hér heima þar sem norsku sigurvegararnir Bobby- socks heimsóttu okkur rétt eins og í kvöld. Ísland hefur best náð öðru sætinu, þegar Selma söng All out of Luck í keppninni í Ísrael 1999. Stjórnin náði einnig frá- bærum árangri í fyrrum Júgó- slavíu fyrir sextán árum. Hún flutti lag eftir Hörð G. Ólafsson, Eitt lag enn. Hörður á einnig lag í keppninni í kvöld og kallast það 100%. Fimmtán lög taka þátt í kvöld og kjósa landsmenn sigurlagið með símakosningu. Nítjánda lagið valið
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.