Fréttablaðið - 18.02.2006, Side 8

Fréttablaðið - 18.02.2006, Side 8
 18. febrúar 2006 LAUGARDAGUR Sævarhöfða 2 Sími 525 8000 www.ih.is Opið: Mánudaga – föstudaga kl. 9.00-18.00 og laugardaga kl. 12.00-16.00 SKIPT_um væntingarPATROL NISSAN ENDIST ENDALAUST Veiðikortið 2006 fylgir öllum 4x4 Nissan bílum Patrol Luxury Beinskiptur 3.990.000 kr. Patrol Luxury Sjálfskiptur 4.090.000 kr. Patrol Elegance Beinskiptur 4.390.000 kr. Patrol Elegance Sjálfskiptur 4.490.000 kr. Tegund Verð Rúmgó›ur og árei›anlegur vinnufljarkur sem hefur s‡nt og sanna› a› hann á heima á Íslandi. Nissan Patrol er einfaldlega alvöru jeppi fyrir alvöru fólk! 33" dekk, toppbogar og dráttarbeisli 250.000 kr. kaupauki Bíll á mynd er 35" breyttur 1 dálkur x 100mm Allt til ferðalaga ���������������������������� Hjólhýsi vagnar ����������� BERLÍN/AP Þýsk heilbrigðisyfir- völd sögðust í gær hafa fundið tíu dauða fugla til viðbótar sem drepist hefðu úr fuglaflensu á eyjunni Rügen í norðurhluta Þýskalands. Jafnframt fannst fuglaflensu- veirustofninn H5 í Suðaustur- Frakklandi, og talið er líklegt að hann flokkist undir mannskæða stofninn H5N1. Þetta er fyrsta smitið sem finnst þar í landi. Eins var H5N1 smit staðfest í Ungverjalandi. Hins vegar hefur fuglaflensa ekki fengist staðfest í tugum dauðra svana sem fundist hafa víðs vegar um Danmörku. Rann- sóknir halda þó enn áfram þar í landi. - smk Fleiri dauðir fuglar finnast í Evrópulöndum: Frakkar finna smit SVANSFÆTUR Þessi svanur stóð í mestu makindum á frosinni tjörn í miðborg Danmerkur í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/AP ÍRAK, AP Vopnaðir menn íklæddir lögreglubúningum rændu auðug- um bankaeiganda og syni hans og drápu fimm lífverði þeirra í borginni Basra í Írak á fimmtu- dag, samkvæmt upplýsingum írösku lögreglunnar. Ættingjar feðganna telja að um glæpamenn sé að ræða sem ætli sér að krefjast lausnar- gjalds. Innanríkisráðuneyti Íraks kannar nú hvort lögregla lands- ins hafi gert út vígasveitir, eða hvort einhverjir innan lögregl- unnar útvegi óprúttnum öfga- mönnum lögreglubúninga sem þeir síðan klæðast við morð á súnní-múslímum. Talið er líklegt að vígamenn- irnir sem komu við sögu í ráninu á bankaeigandanum og syni hans komi úr röðum sjía-múslíma. Menn í lögreglubúningum: Bankastjóra rænt í Basra FJÖLMIÐLAR Ekki hefur mikil breyt- ing orðið á lestri dagblaðanna hér á landi frá því fjölmiðlakönnun var gerð í október. Uppsafnaður lestur, það er hjá þeim sem eitthvað hafa lesið í dagblöðum í vikunni, hefur minnkað um tæp tólf prósent á DV en uppsafnaður lestur á Morgun- blaðinu og Blaðinu hefur aukist lítillega. Uppsafnaður lestur á Fréttablaðinu minnkaði lítillega um helgar en stendur í stað á virk- um dögum. Fréttablaðið er ennþá langmest lesna blað landsins. Lestur fólks á aldursbilinu 12 til 49 ára, sem er sá hópur í þjóð- félaginu sem auglýsendur reyna öðrum fremur að ná til, er næstum þriðjungi meiri á Fréttablaðinu en á öðrum blöðum. Morgunblaðið mælist meira lesið í könnuninni sem gerð var í janúar á þessu ári heldur en í okt- óber og þá mælist lestur á Blaðinu einnig nokkuð meiri en í október. Uppsafnað áhorf á Ríkissjón- varpið mælist í könnuninni vera tæp 95% sem er aðeins meira en í könnuninni í október. Sá þáttur sem hafði mest áhorf var Söngva- keppni Sjónvarpsins, undan- keppni Eurovision, en það mæld- ist 56 prósent en Spaugstofan er með um 53 prósent áhorf í öðru sæti. Uppsafnað áhorf á Stöð 2 minnkar lítillega frá könnun- inni í október en þó ber að nefna að uppsafnað áhorf á Stöð 2+, sem sendir út dagskrá Stöðvar 2 klukkutíma síðar en Stöð 2, er 23,3 prósent. Áhorf á Skjá einn er rúmlega sextíu prósent og munar þar mikið um endursýningar á þáttum stöðvarinnar. magnush@frettabladid.is Fréttablaðið mest lesið Lestur fólks undir fimmtugu á Fréttablaðinu mælist næstum þriðjungi meiri en lestur sama aldurshóps á öðrum blöðum. Þetta kemur meðal annars fram í nýrri fjölmiðlakönnun Gallup. FRÉTTA- BLAÐIÐ 62,7% 85,2% MBL 50,2% 71,5% DV 14,7% 30,7% BLAÐIÐ 32,4% 52,8% Uppsafnaður lestur janúar 2006 Meðallestur á tölublaði janúar 2006 LESTUR DAGBLAÐA Á ÍSLANDI 94,7% 23,3% 73,7% 16,9% 19,6% 64,5% RÚV STÖÐ 2 STÖÐ 2+ STÖÐ 2 BÍÓ SKJÁR 1 SKJÁR 1+1 SIRKUS27,6% UPPSAFNAÐ ÁHORF Á SJÓNVARPSSTÖÐVAR Uppsafnað áhorf í viku

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.