Fréttablaðið - 25.02.2006, Síða 4
NFS ER Á VISIR.IS
Bein útsending á VefTV og
upptökur þegar þér hentar
BANGLADESS, AP Að minnsta kosti
54 fórust og yfir 150 slösuðust
þegar eldur kom upp í textílverk-
smiðju í suðausturhluta Bangla-
dess á fimmtudagskvöld.
Um 1.000 starfsmenn, aðallega
konur, voru við störf í verksmiðj-
unni þegar eldurinn kviknaði og
tókst flestum þeirra að komast út
af sjálfsdáðum, að sögn yfir-
valda.
Björgunarsveitarmenn leituðu
í allan gærdag að eftirlifandi fólki
í rústum hússins, sem var á þrem-
ur hæðum og eingöngu með einn
útgang. Eldurinn er talinn hafa
átt upptök sín í neista úr raf-
magnsverkfæri. - smk
Bruni í Bangladess:
Tugir fórust í
eldsvoða
ELDSVOÐI Leitarmenn fundu fjölmörg lík í
rústum textílverksmiðju sem brann í Bang-
ladess á fimmtudagskvöld. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
GRÆNLAND, AP Grænlenska heima-
stjórnin setti í vikunni veiðikvóta
á hvítabirni til að vernda þá, en
birnirnir eru taldir vera í útrým-
ingarhættu vegna hækkandi hita-
stigs jarðar.
Þetta er í fyrsta sinn sem slíkar
formlegar hömlur eru settar á
ísbjarnarveiðar Grænlendinga. Í
ár mega Grænlendingar með gilt
veiðileyfi veiða 150 dýr en sein-
ustu árin hefur meðalveiðin verið
250 dýr. Veiðikvótinn verður þó
endurskoðaður árlega og útlend-
ingar fá ekki veiðileyfi. Um 7.500
hvítabirnir finnast á Grænlandi,
aðallega á norður- og austurhlut-
anum, og sækjast Grænlendingar
eftir dýrunum fyrir kjötið og feld-
inn. - smk
Veiðar á Grænlandi:
Kvóti settur á
ísbjarnaveiðar
HVÍTABIRNIR Um 100 færri ísbirnir verða
veiddir á Grænlandi í ár en undanfarin ár.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Misþyrmdi í tuttugu ár Fertugur
þriggja barna norskur faðir hefur verið
dæmdur í tveggja og hálfs árs fangelsi
og greiðslu 4,5 milljóna króna bóta fyrir
að hafa misþyrmt fjölskyldu sinni líkam-
lega og andlega í tuttugu ár.
NOREGUR
Hvatvísi í ásökunum Hvatvísi kom
grænlenska sjávarútvegsráðherranum
Finn Karlsen í koll þegar hann ásakaði
forstjóra ríkisfyrirtækisins Great Green-
land um fjárdrátt því nú er komið í ljós
að forstjórinn er saklaus af þeim áburði,
að sögn skip.is.
GRÆNLAND
GENGIÐ
GENGI GJALDMIÐLA 24.2.2006
Gengisvísitala krónunnar
Bandaríkjadalur 66,16 66,48
Sterlingspund 115,67 116,23
Evra 78,7 79,14
Dönsk króna 10,545 10,607
Norsk króna 9,753 9,811
Sænsk króna 8,355 8,403
Japanskt jen 0,5663 0, 5697
SDR 95,11 95,67
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
KAUP SALA
110,7183
EVRÓPA, AP Frakkar hafa fundið
fuglaflensu í alifuglum á búgarði í
suðausturhluta landsins.
H5-fuglaflensuveira fannst í kalk-
únum á fimmtudag, en enn var
óljóst síðdegis í gær hvort veiran
væri af mannskæða stofninum
H5N1.
Alifuglabúið er nálægt staðnum
þar sem H5N1-veirustofninn
fannst í tveimur dauðum villtum
öndum í síðustu viku. Í kjölfar þess
var alifuglabændum bannað að
hleypa fuglum sínum út. Fleiri en
11.000 kalkúnum var slátrað á
búinu í gær og íbúum bannað að
fara af bæ nema í ítrustu nauðsyn.
Auk þess voru fyrstu tvö til-
fellin af H5N1-fuglaflensunni
staðfest í Slóvakíu í gær, að sögn
yfirvalda þar í landi.
Heilbrigðisráðherrar Evrópu-
sambandsins funduðu í Vín í gær
og ákváðu að hefja víðtæka upp-
lýsingaherferð um fuglaflensu.
Ráðherrarnir samþykktu að
þörf væri á samhæfðri upplýs-
ingastefnu um áhættu og hvernig
alifuglabændum og almenningi
bæri að bregðast við hættunni, að
sögn Mariu Rauch-Kallat, heil-
brigðisráðherra Austurríkis.
Jafnframt fannst fuglaflensa í
gær á tveimur stöðum til viðbótar
í norðvesturhluta Þýskalands.
Þýska stjórnin ákvað að komið
yrði upp birgðum af Tamiflu-
flensubólusetningarlyfinu fyrir
um fimmtung þjóðarinnar, en
talið er að Tamiflu geti haft fyrir-
byggjandi áhrif á fuglaflensu líkt
og flensusprautan sem margir fá
á haustin.
Indónesísk yfirvöld tilkynntu í
gær um afar víðtæka herferð þar
í landi gegn flensunni. Nítján
manns hafa látið lífið úr
fuglaflensu í Indónesíu á síðustu
níu mánuðum og ætla yfirvöld þar
í landi að safna Tamiflu-lyfinu
fyrir um 700.000 manns.
Minnst 92 manns hafa látist
úr fuglaflensu síðan árið 2003 í
Asíu og Tyrklandi. Enn sem
komið er virðist fólk þurfa að
handfjatla sýkta fugla til að smit-
ast af veirunni, en heilbrigðis-
yfirvöld óttast að veiran stökk-
breytist svo hún geti borist frá
manni til manns og valdið heims-
faraldri. Samkvæmt tölum
Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinn-
ar hefur meira en helmingur
hinna sýktu látist en líklegt þykir
að fleiri lifi af en stofnunin telur,
þar sem starfsmenn hennar taka
sýni úr fæstum þeirra sem lifa af
smit.
Fuglaflensa hefur fundist í níu
aðildarlöndum Evrópusambands-
ins, auk fjölda annarra Evrópu-
og Asíulanda. smk@frettabladid.is
Grunur um smit í
frönskum alifuglum
Fuglaflensan heldur áfram að dreifa sér um allan heim. Frakkar óttast að hún
sé komin í alifugla þeirra og heilbrigðisráðherrar Evrópusambandsins hafa
ákveðið að hefja upplýsingaherferð um flensuna.
FRANSKIR ALIFUGLAR Í HÚS Franskur heilbrigðisstarfsmaður flytur taminn hana úr almenn-
ingsgarði í Toulouse inn í hús, en yfirvöld hafa skipað Frökkum að halda öllum sínum
alifuglum inni vegna fuglaflensunnar þar í landi. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
VERÐLAUN Sigurður Örn Aðalgeirs-
son og Jón Steinar Garðarsson
hlutu Nýsköpunarverðlaun for-
seta Íslands fyrir þróun á nýrri
tækni til að lina þjáningar eftir
íþróttameiðsl.
Aðferð tvímenninganna bygg-
ist á að kæla slík meiðsl með raf-
stýringu og vinna þannig á bólgum
hvers konar sem eru algengar
meðal keppnismanna.
Verðlaunin hafa verið veitt
árlega frá 1996 þeim námsmönn-
um sem unnið hafa framúrskar-
andi starf við úrlausn ýmissa
verkefna. - aöe
Nýsköpunarverðlaun 2006:
Kæla meiðsl
með rafmagni
BÆJARMÁL Niðurgreiðslur til dag-
foreldra á Seltjarnarnesi verða
hækkaðar um fjörutíu til áttatíu
prósent, samkvæmt samþykkt
fjárhags- og launanefndar bæjar-
ins. Áður hafði félagsmálaráð lagt
til að þjónustusamningur yrði
gerður við dagforeldra um að
tryggja foreldrum sæmbærilegt
gjald og fyrir leikskóla.
Dagforeldrum hugnaðist ekki
að lækka gjöldin og því ákvað
bærinn að hækka krónutölu niður-
greiðslna. Bæjaryfirvöld vonast
til að niðurgreiðslan komist til
skila sem lægri gjöld fyrir for-
eldra en hærri tekjur fyrir dag-
foreldra. - sts
Niðurgreiðslur á Nesinu:
Hækkaðar um
40-80 prósent
VIÐSKIPTI Byggðastofnun hefur
tapað tæpum 658 milljónum króna
á síðustu tveimur árum. Á nýliðnu
ári nam tapið um 272 milljónum
króna.
Eignir stofnunarinnar lækkuðu
úr 14,5 milljörðum í árslok 2004 í
rúma 11,7 milljarða króna, sem
stafar meðal annars af samdrætti
útlána. Útlán minnkuðu um 1.367
milljónir króna á milli ára.
Fyrirtæki og aðrir viðskipta-
vinir hafa fært viðskipti sín frá
stofnuninni til viðskiptabanka sem
bjóða betri vaxtakjör.
Hreinar vaxtatekjur drógust
saman úr 269 milljónum króna í
140 milljónir, um 48 prósent. Þær
hafa dregist verulega saman á
undanförnum árum.
Niðurfært hlutafé og framlag
til afskriftarreikning útlána voru
340 milljónir króna samanborið
við 463 milljónir árið áður.
Eigið fé Byggðastofnunar var
1.041 milljón króna í árslok og
lækkar sem nemur tapi ársins. Til
samanburðar var eigið fé stofnun-
arinnar yfir tveir milljarðar króna
árið 2001.
Handbært fé lækkaði um 1,4
milljarða á síðasta ári. - eþa
Samanlagt tap Byggðastofnunar um 658 milljónir króna á tveimur árum:
Útlán drógust mikið saman
BYGGÐASTOFNUN Hefur tapað rúmum
650 milljónum króna á tveimur árum.
4 25. febrúar 2006 LAUGARDAGUR