Fréttablaðið - 25.02.2006, Blaðsíða 28
Það hefur margt breyst frá því að deildin var stofnuð,“ segir Nína Magnúsdóttir, deildar-
stjóri nýbúadeildar Austurbæjar-
skóla. „Þegar við byrjuðum var lítil
meðvitund um þennan hóp í þjóðfé-
laginu en nú hefur umræðan og
skilningurinn á starfi okkar aukist.“
Erlendum nemendum hefur fjölgað
hratt milli ára og nú eru rúmlega
hundrað nemendur í nýbúadeildinni
en um 130 nemendur Austurbæjar-
skóla tala íslensku sem annað tungu-
mál og samanlagt tala þeir nemend-
ur á þriðja tug mismunandi
tungumála.
Nýir nemendur sem flytja til
Reykjavíkur hafa um þrjá móttöku-
skóla að velja en Austurbæjarskóli
er einn þeirra. Nína segir að krakkar
á aldrinum 6-8 ára fari beint í heima-
skólana en eldri nemendur koma í
móttökudeildir og stunda hluta af
sínu námi þar á meðan þeir eru að
aðlagast nýju landi og nýju skóla-
kerfi. Í nýbúadeildinni er námið ein-
staklingsmiðað og eftir því sem
nemendurnir ná betri tökum á
íslenskunni sækja þeir fleiri bóklega
tíma með sínum bekk en þeir fá
aðstoð frá nýbúadeildinni eins lengi
og þörf krefur.
Um þessar mundir er verið að
breyta skipulagi á móttöku nýbúa í
grunnskólum Reykjavíkur því nú
verður ekki um ákveðin stöðugildi
að ræða í móttökudeildunum heldur
mun ákveðin fjárhæð fylgja með
hverju barni og því geta allir skólar
tekið á móti nemendum. Nínu finnst
þessi ráðstöfun góð: „Við erum móð-
urskóli í fjölmenningarlegri kennslu
og ég myndi vilja líta á okkur sem
ráðgefandi aðila en mér finnst samt
að skólarnir eigi að hafa tækifæri til
þess að taka við sínum nemendum
og reyna að gera vel við þá, sinna
þeim og aðlaga sína kennsluhætti að
breyttum nemendahóp. Mér finnst
það vera réttindi þessara nemenda
að geta farið í skóla í sínu hverfi, að
geta í það minnsta valið um það. Það
er þægilegra upp á að geta samlag-
ast umhverfinu.
Við höfum alltaf að leiðarljósi að
nemandinn sé eins mikið með bekkn-
um og hægt er. Allt frá fyrsta degi
eru nýju nemendurnir með sínum
bekk en við bjóðum í staðinn upp á
það að lesa námefnið með þeim. Við
einföldum íslenskuna og hjálpum
þeim við skilning á efninu sem er
kennt inn í almennu bekkjunum,“
segir Nína.
Nú er stefnan sú að kenna
íslensku í „gegnum fögin“ það er að
segja að nemendur læra nýja málið í
gegnum allar námsgreinar en nem-
endur á fyrsta og öðru ári í nýbúa-
deildinni læra íslensku sem annað
tungumál og fá um það bil 20 stunda
íslenskukennslu á viku. „Krakkarnir
fara allir í stærðfræði frá fyrsta
degi því margir þeirra hafa góðan
grunn í stærðfræði þegar þeir koma.
Stærðfræðin er alþjóðleg og því góð
byrjun til að læra bóklega grein inn í
almennum bekk,“ segir Nína. „Við
reynum líka að leggja fyrir þau
sömu próf eins og aðra í bekknum en
við einföldum íslenskuna svo þau
skilji örugglega fyrirmælin.“
Allt of mikið brottfall í framhalds-
skólum
Nína segir að flestir erlendu nem-
endanna taki samræmd próf. Ef þeir
séu búnir að dveljast hérlendis í ein-
hvern tíma taki þeir yfirleitt jafn
mörg próf eins og íslensku krakk-
arnir. „Það er allur gangur á því
hvernig nemendum reiðir af í fram-
haldsskólunum. Það er auðvitað allt-
of mikið brottfall og framhaldsskól-
arnir hafa ekki komið nægilega til
móts við þennan hóp. En mörgum
gengur líka vel og það er ekki allt
neikvætt,“ segir Nína og bendir á að
brottfallið sé mest meðal þeirra
nemenda sem hafa búið hér í stuttan
tíma. Hún tekur einnig dæmi af
ungri stúlku sem er að ljúka námi af
tveimur brautum í Fjölbrautaskól-
anum við Ármúla þrátt fyrir að
hafa aðeins verið tvö ár í íslensk-
um grunnskóla. Nína bendir á að
25. febrúar 2006 LAUGARDAGUR28
Að læra
hvert af öðru
JIMMY ANDREAS SALINAS MORENO
Er í tíunda bekk en flutti til Íslands
frá Kólumbíu síðastliðið haust. Hann
er nokkuð ánægður með skólann
og finnst hann ekkert leiðinlegur.
Jimmy talar spænsku og hefur lært
smá ensku. Uppáhaldsfögin hans eru
stærðfræði og íþróttir en honum finnst
erfitt að læra íslensku. Hann segir að
krakkar á Íslandi séu ekki mjög frá-
brugðnir krökkum í Kólumbíu. Jimmy
finnst gaman í íþróttum, sérstaklega í
fótbolta, en hann hefur einnig gaman
af því að dansa og fara á skauta og
spjalla við stelpur.
VUONG NU THI DONG Er frá Víetnam
en hefur búið á Íslandi í þrjú ár. Henni
finnst skemmtilegast að læra stærðfræði
og vildi gjarnan að meira af henni væri
kennt í skólanum. Vuong talar víet-
nömsku en henni finnst erfiðara að læra
ensku heldur en íslensku og er fegin
að þurfa ekki að læra dönsku líka. Hún
hefur gaman af íþróttum – öllum nema
körfubolta en stundar ekki svo mikið
félagslífið í skólanum. Hún vill læra
meira í framtíðinni og þegar hún er búin
með tíunda bekkinn segist hún ef til vill
ætla að sækja um framhaldsskólavist í
Verslunarskólanum.
Í Austurbæjarskóla er starfrækt nýbúadeild fyrir
börn af erlendum uppruna en skólinn er einnig
móðurskóli í fjölmenningarlegri kennslu. Deild-
arstjóri nýbúadeildarinnar, Nína Magnúsdóttir,
hefur starfað þar að málefnum ungra innflytj-
enda í rúman áratug og upplýsti Kristrúnu Heiðu
Hauksdóttur um áherslur og breytingar í skipulagi
námsins og hugsunarhætti fólks.