Fréttablaðið - 25.02.2006, Blaðsíða 13

Fréttablaðið - 25.02.2006, Blaðsíða 13
LAUGARDAGUR 25. febrúar 2006 13 1 dálkur x 100mm Allt til ferðalaga ���������������������������� Hjólhýsi vagnar ����������� Miðvikudaginn 22. febrúar birtist á blaðsíðu 14 í Fréttablaðinu umfjöll- un um fuglainflúensuna undir fyrir- sögninni „Veiðimenn gæti varúðar“. Í þessari stuttu grein eru lagðar fram þrjár spurningar er varða skotveiðimenn og vangaveltur um þær hættur sem þeim kynnu að vera búnar vegna útbreiðslu fuglainflú- ensunnar hér á landi. Fyrsta spurn- ingin af þremur hljóðar svo: „Eru skotveiðimenn sem veiða fugla í mikilli smithættu?“ Þessari spurn- ingu er svarað neitandi, en þó er skotveiðimönnum ráðlagt að forðast að skjóta fugla sem gætu verið veik- ir. Einnig er skotveiðimönnum ráð- lagt að vera með einnota hanska eða gúmmíhanska, sem auðvelt er að þrífa, þegar fuglarnir eru hand- leiknir og verkaðir. Að verkun lok- inni er skotveiðimönnum ráðlagt að fjarlægja hanskana, þvo sér síðan um hendur með sápu og vatni eða bera á hendurnar spritt. Önnur spurningin er: „Geta villt- ir fuglar smitað fólk?“ Þessari spurningu er svarað þannig, að líkur séu hverfandi á því. Í svarinu kemur einnig fram að það sé minna af veirum í villtum fuglum í náttúr- unni en alifuglabúum þar sem smit hefur átt sér stað og því stafi fólki einkum hætta af sýktum alifugl- um. Þriðja spurningin hljóðar þannig: „Er hættulegt að neyta fuglakjöts eða eggja í löndum þar sem fuglaflensan hefur verið staðfest?“ Þessari spurningu er svarað þannig, að það sé hættulaust að borða mat- reitt fuglakjöt, svo fremi sem kjötið sé rétt meðhöndlað og matreitt. Í lok svarsins við þriðju spurningunni er tekið fram, að allar hefðbundnar eldunaraðferðir dugi til að drepa fuglaflensuveiruna. Hins vegar beri að varast að smit frá menguðum matvælum berist með höndum eða verkfærum yfir í önnur matvæli. Undirrituðum þykir ofangreind umfjöllun með ólíkindum og nauð- synlegt að fá svör við eftirfarandi spurningum: Hvaðan hefur Fréttablaðið þær upplýsingar og ráðleggingar sem koma fram í ofannefndri grein? Með hvaða hætti er talið að skot- veiðimenn geti helst forðast það að skjóta sýkta fugla? Hvaðan eru þær upplýsingar fengnar sem liggja að baki þeirri staðhæfingu, að það séu hverfandi líkur á því að villtir fugl- ar geti smitað veiðimenn? Undirritaður veit ekki til þess að nokkurs staðar í heiminum séu til þess konar fordæmi, varðandi fugla- veiðar, að unnt sé að byggja á reynslu annarra þjóða hvað varðar ráðlegg- ingar um það, með hvaða hætti íslenskir skotveiðimenn skuli bregð- ast við hugsanlegu fuglaflensusmiti meðal íslenskra farfugla og þeirri áhættu, sem íslenskir skotveiði- menn kynnu að standa frammi fyrir við veiðar sínar. Undirrituðum þykir það hins vegar sjálfsagt og eðlilegt að banna hreinlega alla skotveiði á villtum fuglum um leið og ástæða þykir til að halda, að fuglaflensu- veiran hafi borist til Íslands. Það er ekki mikill fórnarkostnaður að stöðva – um óákveðinn tíma – allar sportveiðar á villtum fuglum, þó ekki væri til annars en að koma í veg fyrir óþarfa smitleiðir veirunnar úr villtum fuglum í menn, en það er einmitt þannig sem menn óttast að sú stökkbreyting kunni að verða, sem gæti síðar valdið alvarlegum heimsfaraldri. Undarleg ráðgjöf til veiðimanna UMRÆÐAN FUGLAFLENSA GUNNAR INGI GUNNARSSON
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.