Fréttablaðið - 25.02.2006, Blaðsíða 68

Fréttablaðið - 25.02.2006, Blaðsíða 68
 25. febrúar 2006 LAUGARDAGUR52 Stóri háskóladagurinn er haldinn í Borgarleikhúsinu í dag. Þar kynna sjö háskólar námsframboð sitt fyrir verðandi nemendum og öllum þeim sem hafa áhuga á starfsemi háskólanna. „Þetta er einstakt tækifæri fyrir þá sem vilja kynna sér háskólanám því þessir sjö háskólar bjóða upp á alls 98 námsleiðir. Þá má til dæmis nefna viðskiptalögfræði, listnám, hrossarækt, fjölmiðlafræði, landslagsarkitektúr, sálfræði, kennaranám, hagfræði, iðjuþjálf- un og miklu fleira,“ segir Álfrún G. Guðrúnardóttir, kynningar- stjóri Listaháskóla Íslands og tals- maður skólanna, en einnig verður veitt ráðgjöf um ýmislegt eins og nám erlendis, stúdentaíbúðir, námslán og annað. „Fulltrúar frá skólunum, kenn- arar, námsráðgjafar og nemend- ur kynna námið og það er sérstak- lega gott að geta spjallað við þetta fólk til aðglöggva sig betur á því námi sem viðkomandi þykir spennandi. Það er að sjálfsögðu mikill munur á því hvernig kenn- arar og nemendur sjá sinn skóla,“ segir Álfrún. Háskólarnir sjö eru Háskólinn á Akureyri, Háskólinn í Reykja- vík, Háskólinn á Hólum, Kenn- araháskóli Íslands, Landbúnaðar- háskóli Íslands, Listaháskóli Íslands og Viðskiptaháskólinn á Bifröst. „Húsið verður opið frá klukk- an ellefu til fimm og fólk getur því annaðhvort skotist og tekið bæklinga frá öllum skólum eða þá bara einfaldlega sest niður og fengið ráðgjöf. Hin ólíku háskóla- samfélög skipta líka mjög miklu máli því fólk er ekkert síður að leita eftir því. Sumum finnst gott að vera í litlu háskólasamfélagi eða öfugt og einhverja langar kannski að prófa að búa á Akur- eyri.“ Að sögn Álfrúnar ættu allir sem eru að íhuga háskólanám að leggja leið sína í Borgarleikhúsið. „Hvort sem fólk er í vafa um hvað það vill læra eða langar einfald- lega að kynna sér betur það fag sem stefnan er tekin á ætti það að líta við. Þetta er frábært tækifæri til að koma og kynna sér námið á einum degi í staðinn fyrir að fara á milli allra skólanna eða þurfa að láta sér heimasíðurnar nægja. Háskóladagurinn er umfram allt hugsaður sem þjónusta við verð- andi nemendur.“ hilda@frettabladid.is Allt frá viðskiptafræði til hrossaræktar STÓRI HÁSKÓLADAGURINN Þeir sem hyggja á háskólanám ættu að leggja leið sína í Borgarleikhúsið í dag og kynna sér málið. Trúbadorinn Halli Reynis valdi sér þrjár bækur á bókamarkaði í Perlunni. „Ég valdi mér Pétur poppara. Mig var búið að langa í hana. Pétur var skemmtilegur karl og litríkur karakter. Þetta var maður sem var poppari alla leið og mér fannst þessi bók vera skyldueign,“ segir Halli Reynis. „Síðan valdi ég Undir bárujárnsboga, sem fjallar um braggalíf í Reykjavík á árunum 1940 til 1970. Þetta er mjög heill- andi saga af samfélaginu í Reykja- vík upp úr stríði. Loks valdi ég Ævintýri Tinna – Leynivopnið. Ég var aðdáandi þegar ég var lítill og átti allar Tinnabækurnar. Ég hugs- aði að ég yrði að rifja það upp og þarna kom krakkinn aðeins upp í manni.“ Pétur er skyldueign Sóley Kristjánsdóttir, plötusnúður og nemi, valdi sér nokkrar bækur á bókamarkaðinum í Perlunni. „Ég valdi myndskreytta biblíu Fjölva. Það ættu allir að eiga svona, gaman fyrir krakkana að skoða þetta og þarna eru allar helstu sögurnar úr biblíunni. Svo valdi ég tvö söfn af Íslendinga- sögum. Þarna eru til dæmis Brennu-Njáls saga, Gunnlaugs saga Ormstungu, Egils saga og aðrar sem maður hefur kannski ekki heyrt um. Ég hafði alltaf gaman af Íslendingasögunum í menntó og það er gaman að glugga í þetta. Í þriðja lagi valdi ég sög- una Þrír litlir grísir. Þetta var uppáhaldssagan mín þegar ég var lítil og pabbi las hana oft fyrir mig.“ Þrír litlir grísir Sigurganga hljómsveitarinnar The Arctic Monkeys hélt áfram á nýafstaðinni NME-verðlaunaaf- hendingu og hrepptu strákarnir þrenn verðlaun. Þeir fengu verð- laun sem besta nýja hljómsveitin, besta breska hljómsveitin og lagið þeirra I Bet You Look Good on the Dance Floor var valið besta lagið. Það vakti athygli hversu hroka- fullir þeir voru þegar þeir tóku við verðlaununum. „Ég býst við að við ættum að vera þakklátir fyrir þetta, eða hvað?“ sagði söngvar- inn Alex Turner. „Við erum þakk- látir vegna þess að við vorum kosnir af fólkinu en í hreinskilni sagt, hvaða önnur hljómsveit gæti verið valin besta breska hljóm- sveitin? Það hefði verið fáránlegt ef við hefðum ekki unnið eftir allt sem hefur verið skrifað um okkur,“ sagði hann, ekki vitund hógvær. Aðrir sem fengu verðlaun voru Kaiser Chiefs sem hrepptu verð- laun fyrir bestu plötuna og auk þess var söngvari þeirra, Ricky Wilson, valinn best klæddi tónlist- armaðurinn. Kanye West var val- inn besti söngvarinn og The Strokes besta alþjóðlega hljóm- sveitin. Aðrir voru ekki svo heppn- ir og hljómsveitin Busted var valin versta hljómsveitin og plata söngvarans James Blunt var valin versta platan. Að lokum var Pete Doherty val- inn kynþokkafyllsti maðurinn. Hann kom öllum á óvart og mætti á hátíðina og tók á móti verðlaun- unum. ■ Arctic Monkeys með apastæla THE ARCTIC MONKEYS
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.