Fréttablaðið - 25.02.2006, Blaðsíða 72
56 25. febrúar 2006 LAUGARDAGUR
sport@frettabladid.is
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
FEBRÚAR
22 23 24 25 26 27 28
Laugardagur
■ ■ LEIKIR
13.15 Haukar og ÍBV mætast í
úrslitum SS-bikars karla í handbolta í
Laugardalshöllinni.
15.45 Haukar og ÍBV mætast í
úrslitum SS-bikars karla í handbolta í
Laugardalshöllinni.
■ ■ SJÓNVARP
09.15 Ítölsku mörkin á Sýn.
09.45 Ensku mörkin á Sýn.
10.15 Spænsku mörkin á Sýn.
10.55 Vetrarólympíuleikarnir á
RÚV. Bein útsending.
11.15 NBA á Sýn. Útsending frá leik
New York og New Jersey frá því í nótt.
13.10 SS-bikarinn á RÚV. Bein
útsending frá úrslitaleik kvenna á
milli Hauka og ÍBV.
15.25 SS-bikarinn á RÚV. Bein
útsending frá úrslitaleik karla á milli
Hauka og Stjörnunnar.
15.00 Enska knattspyrnan á
Enska boltanum. Bein útsending frá
leik Chelsea og Portsmouth.
17.15 Enska knattspyrnan á Enska
boltanum. Bein útsending frá leik
Newcastle og Everton.
17.25 Vetrarólympíuleikarnir á
RÚV. Bein útsending frá keppni í
svigi karla.
18.25 Vetrarólympíuleikarnir á
RÚV. Samantekt frá deginum.
20.50 Spænski boltinn á Sýn.
Bein útsending frá leik Real
Zaragoza og Barcelona.
22.50 A1 Grand Prix á Sýn. Bein
útsending frá tímatökunni.
00.25 Vetrarólympíuleikarnir á
RÚV. Samantekt frá deginum.
02.00 Box á Sýn. Bein útsending
frá bardaga Fernando Vargas og
Shane Mosley um WBA-titilinn í
léttmillivigt.
> Stutt gaman hjá Dagnýju
Skíðadrottningin Dagný Linda Kristj-
ánsdóttir frá Akureyri féll úr leik í fyrri
umferð stórsvigskeppninnar á vetrar-
ólympíuleikunum í gær. Hún hefur þar
með lokið keppni á leikunum og má vel
una við sitt enda varð hún í 23. sæti í
bruni og risasvigi, sem er fínn árangur.
Dagný sagði við Fréttablaðið í gær að
hún undi mjög vel við árangur sinn á
leikunum og gengi sátt í burtu frá Tórínó
en árangur hennar í brunkeppninni er
einn sá besti sem íslenskur
skíðakappi hefur náð á
Ólympíuleik- um.
KR Reykjavíkurmeistari
KR varð í fyrrakvöld Reyjavíkurmeistari
kvenna í níunda skipti þegar liðið sigraði
Valsstúlkur í úrslitaleik 2-1. Guðný Björk
Óðinsdóttir kom Val yfir en Hólmfríður
Magnúsdóttir jafnaði fyrir KR áður en
Katrín Ómarsdóttir tryggði KR titilinn.
Jón Arnar Magnússon frjálsíþróttakappi hefur tekið að sér
að þjálfa leikmenn í knattspyrnuliði Fram í nokkrar vikur. Jón
Arnar ætlar sér að taka strákana í gegn og fara sérstak-
lega aftur í grunnatriðin, hvernig eigi að hlaupa og
teygja.
„Það skemmir að minnsta kosti ekki að æfa
frjálsar með fótboltanum,“ sagði Jón, sem
sameinar sínar eigin æfingar æfingum Framara.
„Ég ætla að láta þá hlaupa og sprikla mikið
samhliða lyftingum. Það eru kannski engin ný
sérstök vísindi í þessu, þetta er bara það sem
frjálsíþróttamenn hafa verið að gera síðustu fimm-
tíu ár, en menn eru orðnir opnari fyrir öðruvísi
æfingum,“ sagði Jón, sem kemur með nýjar
víddir inn í æfingaáætlun Safamýrarpilta.
Jón segir að menn beiti sér oft
vitlaust í grunnatriðunum og hann
ætli að ráða bót á því. „Menn
hlaupa yfirleitt vitlaust, þeir
hlaupa oft ekki beint, en með því að kenna þeim að beita
fótunum rétt í hlaupunum sem og höndunum er hægt að
auka hraða þeirra umtalsvert. Frjálsar og fimleikar eru und-
irstaða fyrir hvaða íþrótt sem er, ef menn geta blandað
þessu saman ætti að nást góður árangur,“ sagði Jón.
„Fótboltamenn eru oft fljótir fyrstu metrana en
missa svo hraðann eftir smá stund. Það má ekki
gerast og ég stefni á að laga það,“ segir Jón, sem
hefur áhyggjur af teygjum knattspyrnumanna. „Það
er mjög mikilvægt að teygja rétt. Teygjur eru oft
vanmetnar en ég ætla að passa upp á að þær séu
réttar.“ Jón fylgist lítið með boltanum en gefur sig út
fyrir að vera stuðningsmaður Selfoss.
Hann hefur áður þjálfað íþróttakappa og gerði
garðinn frægan þegar Guðjón Valur Sigurðsson
handboltakappi bætti sig gríðarlega mikið
eftir æfingar með Jóni. Meðal annars jók Guð-
jón stökkhæð sína um fimmtán sentimetra.
JÓN ARNAR MAGNÚSSON TUGÞRAUTARKAPPI: LIÐSINNIR KNATTSPYRNULIÐI FRAM
Frjálsar og fimleikar eru undirstaða alls
HANDBOLTI „Þetta er stærsti leikur
ársins og allir vilja spila þennan
leik. Það er mikil tilhlökkun og þar
sem þetta eru jöfn lið má búast við
hörkuleik. Úrslitin gætu hæglega
ráðist á því hvort liðið er með átt-
unda manninn með sér og ég tel að
við séum með betri stuðnings-
menn, sem mun vega þungt í dag,“
sagði Arnar Theódórsson, fyrirliði
Stjörnunnar, fyrir leikinn en liðið
hefur tvívegis orðið bikarmeist-
ari, árin 1987 og 1989.
Arnar telur að Haukar séu ekki
sigurstranglegri þrátt fyrir að
þeir séu Íslandsmeistarar. „Liðin
eru mjög jöfn og áþekk stöðu fyrir
stöðu. Styrkur Haukanna felst
helst í frábærum markmanni og
hraðaupphlaupum,“ sagði Arnar
og bætti við að Stjarnan hygðist
spila sinn leik og sjálfstraustið
væri mikið eftir gott gengi undan-
farið.
„Ég er hungraður í þennan titil
enda hef ég ekki unnið hann áður,“
sagði Birkir Ívar Guðmundsson,
fyrirliði Hauka, fyrir leikinn. „Ég
býst fyrst og fremst við mjög
hörðum leik, bæði lið leggja
eflaust áherslu á að spila góða og
fasta vörn og spila þannig hraðan
leik. Þeir eru með stórskyttur á
borð við Tite Kalandadze og
Patrek Jóhannesson en það væri
ljúft að taka bikarinn og vera
þannig handhafi beggja titlanna,“
sagði Birkir, en hann hefur samið
við þýska liðið Lubecke og er á
leið í atvinnumennskuna eftir
tímabilið á Íslandi.
Páll Ólafsson, þjálfari Hauka,
býr liðið af kostgæfni undir leik-
inn. „Ég bý mitt lið undir sextíu
mínútna slagsmál. Þetta eru jöfn
lið og baráttan verður í hávegum
höfð en ég vonast bara til að laða
fram það besta í hverjum og
einum. Ef menn leggja sig alveg
hundrað prósent fram get ég ekki
kvartað þó við töpum,“ sagði Páll
en bætti við að hann byggist engan
veginn við því.
Sigurður Bjarnason, þjálfari
Stjörnunnar, var kokhraustur fyrir
leikinn, sem hann segist snúa um
að mæta einbeittur til leiks og að
halda því út leiktímann. „Ég býst
ekki við neinu öðru en sigri í þess-
um leik,“ sagði Sigurður í gaman-
sömum tón en liðin skildu jöfn í
eina leik þeirra í vetur, 28-28.
„Fyrst og fremst ætlum við að
njóta þess að vera komin hingað,
njóta dagsins og njóta leiksins.
Vonandi náum við að njóta úrslit-
anna líka,“ sagði Guðmundur
Karlsson, þjálfari kvennaliðs
Hauka, fyrir leikinn gegn ÍBV.
„Þetta snýst mikið um að halda
spennustiginu réttu, það má ekki
vera of lágt en stelpurnar verða að
vera tilbúnar í þennan leik og
kannski rúmlega það. Þær vilja
allar ólmar vinna titilinn og ég
býst við skemmtilegum leik
tveggja frábærra handboltaliða,“
sagði Guðmundur.
Smári Jökull Jónsson, stjórnar-
maður úr ÍBV, bjóst ekki við mikl-
um breytingum frá spennuleikj-
um liðanna í vetur sem og
undanfarin ár en liðin hafa mæst í
úrslitum í þrígang á síðustu fimm
árum. ÍBV vann árið 2001 og lagði
svo Gróttu í bikarúrslitunum 2002,
Haukar hefndu sín á ÍBV árið 2003
en ÍBV endurheimti titilinn ári
síðar.
„Haukaliðið er gríðarlega
sterkt en það er ÍBV líka. Þrátt
fyrir smápústra er ljóst að allir
verða tilbúnir í öllum liðum fyrir
leikinn sem enginn ætlar sér að
missa af,“ sagði Smári, sem mun
láta til sín taka í Höllinni í dag.
hjalti@frettabladid.is
Það vilja allir spila þennan leik
Stærstu handboltaleikir ársins fara fram í dag þegar leikið verður til úrslita í SS-bikarkeppninni. ÍBV og
Haukar mætast í bikarúrslitaleik kvenna klukkan 13.15 og Stjarnan mætir Haukum í karlaflokki klukkan
15.45. Báðir leikirnir fara fram í Laugardalshöll og verður mikið um dýrðir fram eftir degi.
HINGAÐ OG EKKI LENGRA Eyjastúlkur verða
að stöðva Ramune Pekarskyte í dag ætli
þær sér sigur.
VILL KVEÐJA MEÐ TITLI Landsliðsmarkvörðurinn Birkir Ívar Guðmundsson er að spila sitt
síðasta tímabil fyrir Hauka og er staðráðinn í að kveðja með titli eða titlum.
FRÉTTABLAÐIÐ/OLE NIELSEN
HANDBOLTI Haukar, ÍBV og Stjarn-
an leiða saman hesta sína í bikar-
úrslitaleikjum í handbolta í dag,
Haukar og ÍBV í kvennaflokki og
Haukar og Stjarnan í karlaflokki.
Þetta er í þriðja sinn sem Haukar
fara með bæði liðin í bikarúrslit,
sem er einsdæmi.
ÍBV hefur þrisvar sinnum orðið
bikarmeistari en Haukar tvisvar.
Þetta er í fjórða sinn á síðustu sex
árum sem þessi lið mætast í bik-
arúrslitaleik. Í tvígang hefur ÍBV
hrósað sigri og Haukar einu
sinni.
Stjarnan hefur tvisvar orðið
bikarmeistari í karlaflokki, síðast
árið 1989, en þá vann kvennalið
félagsins einnig bikarinn. Haukar
hafa orðið bikarmeistarar fjórum
sinnum, þar á meðal árin 2001 og
2002. Stjörnumenn verða með
upphitun fyrir leikinn, sem hefst
klukkan 13:30 í Mýrinni, líkt og
Haukar sem hita upp á Ásvöllum
frá 10 um morguninn. Bæði lið
verða með fríar rútuferðir í Laug-
ardalshöllina.
Það verður kátt í Laugardals-
höllinni alla helgina en á sunnu-
daginn fara fram bikarúrslita-
leikir yngri flokkanna. - hþh
Bikarúrslitahelgi í Laugardalshöll:
Mikið um að vera
SIGURÐUR BJARNASON Stendur í ströngu
með sína menn í dag. FRÉTTABLAÐIÐ/E.ÓL.