Fréttablaðið - 25.02.2006, Blaðsíða 18

Fréttablaðið - 25.02.2006, Blaðsíða 18
 25. febrúar 2006 LAUGARDAGUR18 stjornmal@frettabladid.is nánar á visir.is UMMÆLI VIKUNNAR,, U MÆLI VIKUN AR ,, Stóru málin Tvö af umfangsmestu málum samtímans sem komið hafa inn á borð efnahagsbrotadeildar Ríkislögreglustjóra og Samkeppnisstofnunar eru Baugsmálið og olíusamráðsmálið. Þau eru lík að því leyti að þau hófust bæði með húsleit lögreglu. Rannsókn stóð lengi í báðum málunum og þau hafa fengið gríðarlega athygli fjölmiðla. Málin eru einnig ólík. Baugsmálið snertir fáa einstaklinga í afar stóru fyrirtæki. Olíusamráðsmálið snertir nokkur olíufélög og mikinn fjölda einstaklinga, strangt til tekið alla landsmenn. Í Baugsmálinu er meint fjárhagstjón afar lítið, má vera tvær milljónir króna í of lágum aðflutnings- gjöldum af fjórum bílum sem sakborningar eiga að hafa komið sér hjá að greiða. Ekki hefur verið sýnt fram á fjárhagstjón hluthafa eða annarra þó svo að dómarar komist að því að ársskýrslur hafi ekki verið rétt færðar hjá Baugi. Í olíusamráðsmálinu hefur hagur olíufélaganna af háttseminni verið áætlaður sex til sjö milljarðar króna. Samkeppnisyfirvöld hafa á grundvelli þessa sektað félögin um nokkra milljarða. Nokkur sveitarfélög, ríkið og jafnvel fyrirtæki hafa ákveðið að krefjast skaðabóta og sam- keppnisyfirvöld hafa vísað til meðferðar hjá Ríkislögreglustjóra málum liðlega þrjátíu starfsmanna olíufélaganna með það fyrir augum að höfða gegn þeim opinbert refsimál. Eitt tekur við af öðru Lögreglurannsókn og málaferli hafa að vísu bakað Baugi mikið fjárhags- tjón með öðrum hætti að sögn eigendanna. Jón Ásgeir Jóhannesson og hans fólk í Baugi Group áttu til að mynda þess kost að bjóða einir í fataverslunarkeðjuna Arcadia í Englandi veturinn 2001 til 2002 og hagnast um milljarða króna án mikillar áhættu eins og sannaðist þegar Peter Green yfirtók í raun tilboð Baugs Group í september 2002 og keypti hlut Baugs. Það var sömu daga og húsleit var gerð hjá Baugi. Einhver óöryggistilfinning greip íslenska banka í fyrstu atrennu Baugs að Arcadia veturinn 2001 til 2002. Sjálfsagt var það vegna þrálátrar umræðu um hækkandi matvöruverð og markaðsráðandi stöðu Baugs og orða Davíðs Oddssonar, þáverandi forsætisráðherra, um að stjórnvöld kynnu jafnvel að skipta fyrirtækinu upp í þágu almannahagsmuna. Nú er Baugsmálinu um það bil að ljúka, nema settur saksóknari höfði nýtt mál á grundvelli þeirrra 32 ákæruliða sem Hæstiréttur vísaði frá dómi. Olíusamráðsmálinu er á hinn bóginn hvergi nærri lokið. Forsprakkar þess kunna að verða ákærðir og skaðabótamálum gæti fjölgað ótt og títt. Úr bakherberginu... Þingflokkur Samfylk- ingarinnar hefur lagt til að stjórnarskránni verði breytt á þann veg að ætíð þurfi að liggja fyrir sam- þykki Alþingis áður en heit- ið er þátttöku eða stuðningi Íslands í stríði gegn öðru ríki. Helgi Hjörvar, þingmaður Sam- fylkingarinnar, er fyrsti flutings- maður frumvarpsins og hann fylgdi því úr hlaði á dögunum. Í greinargerð með því segir að höfundar stjórnarskrárinnar hafi ekki sett ákvæði í hana um stuðn- ing við eða aðild að stríðsrekstri, enda hafi það þótt þarflaust fyrir herlausa þjóð. En síðan hafi Ísland gerst aðili að alþjóðastofnunum og undirgengist skuldbindingar í þessu efni. Þarna er átt við Atl- antshafsbandalagið og Sameinuðu þjóðirnar auk herstöðvarsamn- ingsins við Bandaríkin. Írak er kveikjan Ekki þarf að hafa mörg orð um það að kveikjan að frumvarpinu er stuðningur íslensku þjóðarinnar við innrásina í Írak árið 2003. „Þótt ágreiningur sé meðal þingmanna um tilefni þessa frumvarps og rætur þess í aðild okkar að Íraks- stríðinu sýnist mér undirtektir við þetta vera býsna góðar,“ segir Helgi, en hann mælti fyrir því á Alþingi síðastliðinn þriðjudag. „Það má reyndar heita merkilegt að við höfum sett okkur lög og regl- ur um smæstu atriði eins og hvar eða hvernig eigi að ganga yfir götur. En þegar kemur að jafn afdrifaríkum ákvörðunum og þátt- töku í stríði gegn öðru ríki getur þjóðin hvergi flett upp neinum fyrirmælum hvernig við skuli bregðast.“ Í greinargerð með frumvapinu kemur fram að Ísland hafi stutt eða komið að stríðsrekstri umfram það sem alþjóðlegar skuldbinding- ar kveði á um. Nefndar eru aðgerð- irnar í Kosovo árið 1999 og stuðn- ingurinn við innrásina í Írak á vormánuðum 2003. „Um þessar aðgerðir var ekki tekin ákvörðun á Alþingi, en þó lá fyrir að ríkur þingmeirihluti væri fyrir aðgerð- unum í Kosovo. Engu er til að dreifa um stuðning Íslands við inn- rásina í Írak. Þessar langvinnu deilur um aðild okkar að þeirri innrás og veru okkar í hópi hinna viljugu stuðningsþjóða Bandaríkj- anna sýna að að lagaramminn um þetta er ekki afgerandi. Lög þurfa að vera skýrari um þetta efni,“ segir Helgi. Stjórnarskrárnefnd Í greinargerðinni er minnt á að í lögum um þingsköp Alþingis sé kveðið skýrt á um samráðsskyldu framkvæmdavaldsins, það er ríkis- stjórnarinnar, um meiri háttar utanríkismál við utanríkismála- nefnd Alþingis. „Nú hafa hins vegar einn eða tveir menn skuld- bundið Ísland til að styðja innrás- ina í Írak án samráðs við nefnd- ina,“ segir í greinargerðinni. Jafnframt er þess getið að ákvæðið eigi ekki við um skuldbindingar Íslands sem aðildarríkis Atlants- hafsbandalagsins en þar ber þjóð- inni að snúast gegn árásum á eitt eða fleiri aðildarríki. Helgi Hjörvar segir að verði þessu frumvarpi vel tekið megi búast við að það fari til meðferðar stjórnarskrárnefndar, sem fæst við endurskoðun stjónrnarskrárinnar. johannh@frettabladid.is Alþingi geti neit- að stríðsaðild BAGDAD Aðild að Íraksstríðinu hefði þurft að bera undir Alþingi ef ákvæði frumvarpsins væru stjórnarskrárbundin. HELGI HJÖRVAR, ÞINGMAÐUR SAMFYLK- INGARINNAR Við höfum reglur um atriði eins og að ganga yfir akbrautir en engar um afdrifaríkar ákvarðanir eins og að fara með stríði gegn einhverri þjóð. Þær fregnir bárust í vikunni að lækkandi gengi íslensku krónunnar og sömuleiðis lækkandi gengi hlutabréfa á íslenskum markaði hefði meðal annars komið fram á jarðskjálftamæl- um í Suður-Afríku og Mið-Ameríku. Stórblaðið Financial Times lagði út af þessu, sem og fleiri erlendir fjölmiðlar, og töldu blöðin hættu á harðri lendingu í íslensku efnahagslífi hafa aukist. Íslendingar ættu met í erlendri skuldasöfnun og viðskipta- halla sömuleiðis. Það væri nú eftir öðru að það kæmi öllum greiningar- deildum bankanna og sérfræðingum ríkisstjórnarinnar og Seðlabankans í opna skjöldu að íslenskt efnahagslíf gæti risið og hnigið í samræmi við eitt og annað sem gerist utan landsteinanna. Við teljum okkur nefnilega trú um að við sjálf getum stjórnað efnahagslífinu og fjármálum þjóðarinnar. Gott dæmi um að svo er ekki er vitanlega óvænt kaup útlendinga á verðbréfum í íslenskum krónum fyrir líkast til eina 160 milljarða króna síðan um mitt ár í fyrra. Annað gott dæmi er vaxtaákvarðanir Seðlabankans og meint áhrif þeirra á peningamálastjórnina í landinu. Allt er þetta ofmetið og áhrif EES-samningsins vanmet- in. Peningaflæðið milli landa er frjálst og þannig viljum við hafa það. Næsta skref er væntanlega að auka stöðugleik- ann með því að taka upp evruna, gera hana að okkar gjald- miðli, eins og Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, heldur að verði gert þar í landi á næstu árum. Við þekkjum öll útflutningsfyrirtæki hér á landi sem gráta það ekki að gengisvísitalan sér komin upp í 110 stig eða svo með samsvarandi lækkun krónunnar. Þetta er ágætt í bili, sagði fiskverkandi á landsbyggðinni í gær og taldi fleiri krón- ur fyrir evruna en fyrir viku. VIKA Í PÓLITÍK JÓHANN HAUKSSON Oft veltir lítil þúfa... „Við Íslendingar berum vegna þessarar löglausu, siðlausu ákvörðunar tveggja forystumanna íslensku þjóðarinnar, okkar siðferðilegu ábyrgð á þeim hörmungum sem innrásin hefur kallð yfir Írak.“ Össur Skarphéðinsson á Alþingi og var áminntur fyrir. „Ég vona að Chelsea vinni og ætli ég segi ekki bara að leikurinn fari 3-1. Er það nokkuð verri spá en hver önnur?“ Halldór Ásgrímsson reyndist ekki sannspár um úrslit leiks Chelsea og Barcelona.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.