Fréttablaðið - 25.02.2006, Side 20

Fréttablaðið - 25.02.2006, Side 20
 25. febrúar 2006 LAUGARDAGUR Í Dagbók Þráins Bertels- sonar er sagt frá dásemdum þess að fara í Laugardags- laugina og upplýst hvernig maður nær hámarkshraða í rennibrautum. Svo er gengið út í Gróttu, fjallað um nýjustu tísku í matar- gerð og spurt hvort kvenna- barsmíðar séu á niðursettu verði um þessar mundir, eða hvort þetta hafi alltaf verið svona ódýrt. ■ LAUGARDAGUR, 18. FEB. G-strengur eykur hraða í rennibrautum Fengum lánaða tvo stráka, Andra og Villa, og fórum með þá í Laugar- dalinn í sund í lauginni sem börn- in halda að heiti Laugardagslaugin af því hvað margir fara þangað í sund á laugardögum. Það er mjög skemmtilegt að umgangast svona unga menn sem kunna lagið á því að gera hina hversdagslegustu hluti að fersk- um og nýjum upplifunum, allt frá því að uppgötva að mestum hraða nær maður í rennibrautinni með því að draga til sundskýluna og sitja á berum rasskinnunum eins og pjattrófa á g-streng yfir í fræði- lega umræðu um hvort sesam-fræ á pylsubrauðum séu ættuð úr hell- inum Sesam í ævintýrinu um Alí- baba og ræningjana fjörutíu. Augun í svona ungu fólki sjá til- veruna í miklu sterkari og skraut- legri litum heldur en augun í okkur sem eldri erum og staðsetjum allt nema stóratburði einhvers staðar á grátónaskala. ■ SUNNUDAGUR, 19. FEB. Eltur uppi af tískunni Fórum í Gróttu og gengum yfir eiðið. Fleyttum skeljum. Skoðuð- um dauða krabba. Og enduðum á því að horfa á þátt frá Tógó í sjón- varpinu. Eldaði kjúkling í engifer með sveppasósu og kartöflumús. Sólveig var að segja mér að nú eru „skyndibitar“, „fast food“, ekki í tísku heldur „slow food“, það er að segja heimalagaður matur sem er eldaður af elsku og umhyggju- semi í miklum rólegheitum. Ég uni mér vel í eldhúsinu og get gleymt mér við eldamennsku tímunum saman. Svona kemst maður alltaf í tísku um síðir, því að þá sem forð- ast að eltast við tískuna eltir tískan uppi að lokum. ■ MÁNUDAGUR, 20. FEB. Breiðvarpsreikningur fyrir ekkert breiðvarp Pósturinn kom með rukkun frá einhverju sem heitir „Skjárinn - á þínu valdi!“ upp á 830 kr. Þegar ég lúslas seðilinn sá ég að raunveru- legur sendandi var Síminn og þarna stóð „Breiðvarpsreikning- ur“. Ég er ekki með neitt breið- varp. Ég lagði sjálfur ljósleiðara í húsið mitt, borgaði hann sjálfur og á hann sjálfur. Svo fékk ég mér svokallað breiðvarp og ætlaði að fara að horfa á 40 stöðvar. Svo sagði ég breiðvarpinu upp og hef ekki lengur aðgang að neinu nema Ríkissjónvarpinu. Ég átta mig ekki á þessum reikningi. Trúlega hefur Síminn fært mér einhvern afruglara til að skoða breiðbandið, en gleymt að sækja hann þegar ég hætti þeim viðskiptum. Það er góður bisniss fyrir Símann að geyma rykfallna afruglara hjá fólki úti í bæ og rukka það fyrir að geyma þessa hluti. 830 kall er kannski ekki mik- ill peningur - en safnast þegar saman kemur. Sendi Símanum tölvupóst og bað hann um að sækja þennan afruglara sem ég er ekki í stuði til að borga fyrir að geyma. Í dag lifnaði heldur betur yfir heimilinu. Barnabörnin, Andri og Sólveig Kristín, eru komin og ætla að dvelja hjá okkur næstu vikurn- ar að minnsta kosti. ■ ÞRIÐJUDAGUR, 21. FEB. Minnisgloppa Lenti í bobba þegar ég ætlaði að taka bensín því að ég lenti í minn- isgloppu, mundi ekki pin-númerið á debet-kortinu mínu. Sennilega fer að verða tímabært fyrir mig að láta tattóvera öll þessi pin- númer og aðgangsorð sem ég þarf að kunna í lófann á mér. En þá kemst tattómeistarinn að öllum mínum leyndarmálum og ég neyð- ist til að ryðja honum úr vegi. Í gamla daga var mér sagt að ef ég lærði margföldunartöfluna þyrfti ég aldrei að leggja fleiri tölur á minnið. Annað hefur heldur betur komið í ljós. ■ MIÐVIKUDAGUR, 22. FEB. Vitlaus draumaráðning Mig dreymdi hálf illa í nótt og í framhaldi af því fór að hugsa um baráttu góðs og ills í heiminum. Flestir segjast telja að Himna- ríki Group sé tryggasta fjárfest- ingin til lengri tíma litið. Hins vegar virðast eiginlega allir vera meira fyrir stundargróða og djarf- ir verðbréfamiðlarar hika ekki við að benda sálaráhættufjárfestum á Fjandann ehf. sem virðist vera að gera það mjög gott um þessar mundir. Var að hugsa um að tippa á Bar- celona á Lengjunni en guggnaði á því. Svo vann Barcelona að sjálf- sögðu. Þar með er draumurinn ráðinn. Svona er maður vitlaus. Ég sem hélt þessi draumur væri um baráttu góðs og ills og tengdi hann ekki við Barcelona og Chelsea. Ef ég væri glúrnari í drauma- ráðningum hefði ég getað grætt notalega summu á Lengjunni. Nú þarf ég að drífa í því að sækja um orlofshús um páskana. Það er sjálfsagt allt uppbókað. Kannski maður ætti að slá met í forsjálni og panta orlofshús fyrir páskana 2007. ■ FIMMTUDAGUR, 23. FEB. Ódýrt að misþyrma konum „Héraðsdómur Reykjaness hefur dæmt karlmann á þrítugsaldri í 50 þúsund króna sekt fyrir að ráðast á konu á sama aldri í október á síð- asta ári og slá höfði hennar í vegg, taka hana hálstaki, sparka í maga hennar og kasta henni í jörðina. Maðurinn játaði brotið. Konan hlaut mar og yfirborðsáverka á hnakka, mar og yfirborðsáverka á hálsi og mar á neðanverðu baki og mjöðm.“ Ég kalla það ekki dýrt að borga fimmtíu þúsund kall fyrir að ganga svona í skrokk á konu. Ætli kvennabarsmíðar séu á niðursettu verði hjá dómstólunum, eða hefur þetta alltaf verið á svona góðu verði? „Íslendingar eru ekki duglegir að kvarta við fyrirtæki ef þeim finnst þjónustan þar ekki nægjan- lega góð.“ Þetta segir Svala Rún Sigurðardóttir í Viðskiptablaði Morgunblaðsins. Þar kemur fram að um 96% viðskiptavina fyrir- tækja kvarta ekki og auk þess sé talið að um 60% þeirra sem eru óánægðir kvarti ekki. Formlegar kvartanir séu því í raun mjög fáar. Þetta er ábyggilega alveg hár- rétt hjá Svölu Rún en mér sýnist að sum fyrirtæki séu ekki heldur neitt sérlega snögg að svara kvört- unum. Ég hef ekki heyrt múkk frá Símanum þótt ég sendi þeim tölvu- póst á mánudaginn til að kvarta undan því að vera látinn borga fyrir ekkert - jafnvel þótt upphæð- in sem slík væri sanngjörn. Las upp í kvöld í Iðnó. Vetrar- hátíð Reykjavíkurborgar er að hefjast. Búinn að velta því fyrir mér dögum saman hvað ég ætti að lesa. Eitthvað þegar birt og öruggt? Eða eitthvað nýtt? Ákvað að lesa upp kafla úr bókinni sem ég er að reyna að skrifa og heitir í augnablikinu „Ýmiss konar ég“. Þegar ég ætlaði að leggja af stað kom mér í koll að geta ekki prent- að út gögn úr tölvunni svo að ég varð að mæta með tölvuna undir hendinni eins og ég væri með powerpoint-fyrirlestur. ■ FÖSTUDAGUR, 24. FEB. Heimskir kennarar og við snillingarnir Núna sýnist mér að allir séu búnir að kjafta sig frá hinni skuggalegu vetrareinkunn sem kom frá þess- um Fitch sem lækkaði lánshæfis- mat íslenska ríkisins niður úr öllu valdi. Sama gerði ég þegar kennar- ar gáfu mér lélega vetrareinkunn, þá hristi ég hausinn yfir því hvað kennararnir væru vitlausir, fór á Mokka og sat þar í hópi annarra snillinga sem voru líka svo stór- gáfaðir að þeim datt ekki í hug að taka mark á kennurum. Ekkert svar komið frá Símanum við skeytinu sem ég sendi á 8007000@simnet.is. Þeir halda sennilega að ég sé geðbilaður að vera að röfla við risafyrirtæki út af skitnum 830 krónum. Kvennabarsmíðar – er tilboð í gangi? – eða hefur það alltaf verið svona ódýrt? Kæra Dagbók Þráinn Bertelsson skrifar H blaelgar › Hefurflúsé› DV í dag? með Áhrifafólk skemmtir sér í LondonPartí á lúxusklúbbi í boði Baugs Heilsudrottning opnareldhúsið DAGBLAÐIÐ VÍSIR 48. TBL. – 96. ÁRG. – VERÐ KR. 295 LAUGARDAGUR 25. FEBRÚAR 2006 Sími • 5623244 Konur íkarlaveldi Bls. 32–33 Bls. 42–43 Bls. 54 Bls. 44–45 Bls. 6 FJÖLMIÐLAKONAN ANNA KRISTINE ÁSTFANGIN AFBRESKUM LÆKNI Lífsgáta Gunnar Eyjólfsson áttræður leikarans Ástin aldur spyrekkium Maturinn rak Ágústu í ræktina Helga Braga éturog étur Leikritið Hungrið fær fjórar stjörnur Bls. 34 Helgarblað „Við eigum ekki að lifa í fjötrumfortíðarinnar,” segir GunnarEyjólfsson sem varð áttræður ígær. Hann kaus að fara af landibrott á afmælisdaginn þótt hannkunni yfirleitt manna best við sigí margmenni og sé hrókur allsfagnaðar á gleðistundum. Þrátt fyrir háan aldur er fjarri aðGunnar hafi lagt árar í bát. Enntekst á hann á við burðarrullursem oft reynast ungum en reynd-um leikurum harla erfiðar. DVbirtir í dag umfjöllun um Gunnarog einstakan feril hans. Bls. 22–24 Áhrifafólk skemmtir sér í London Partí á lúxusklúbbi í boði Baugs helgar augl 24.2.2006 20:43 Page 3

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.