Fréttablaðið - 25.02.2006, Blaðsíða 66

Fréttablaðið - 25.02.2006, Blaðsíða 66
 25. febrúar 2006 LAUGARDAGUR50 utlit@frettabladid.is MÓÐUR VIKUNNAR > MARTA MARÍA FER YFIR MÁLIN Spáir þú mikið í tískuna? Ég skoða mikið fötin sem vinir og kunningjar mínir eru í og fæ hugmyndir frá ýmsum stöðum. Skoða stundum blaðið Eurowoman en ég pæli ekkert í hátískunni. Hvernig myndirðu lýsa stílnum þínum? Frekar afslappaður og ég er alltaf í flatbotna skóm en fer stundum í háa hæla þegar ég fer á djammið. Uppáhaldshönnuðir eða fatamerki: Mér finnst Kronkron vera með mörg flott merki og föt frá snjöllum hönnuðum. Linda vinkona mín er að sauma og prjóna rosa fínt og svo er ég mjög hrifin af fatamerkinu Tiger of Sweden. Flottustu litirnir: Ég er frekar litaglöð. Bleikur, grænn og ljósblár eru í uppáhaldi og svo bara svartur. Ég er ekki mikið fyrir glimmer og glamúr. Hverju ertu veikust fyrir? Ég er áberandi veikust fyrir skóm og sérstaklega skóm í sterkum litum. Hvaða flík keyptir þú þér síðast? Ég keypti mér svona tiger-íþróttapeysu í Rauða kross-búðinni. Ég er voðalega veik fyrir svona tiger-munstri. Hvað finnst þér flottast í tískunni núna? Það er margt flott í Trilogiu og til dæmis eru tveir ungir strákar að selja svona slár eða skikkjur með hettum sem ég er óskaplega hrifin af. Hvað finnst þér nauðsynlegt að eiga í vetur? Góða úlpu sem nær niður fyrir rass með góðri hettu og húfu eða eyrnaskjól til að verja eyrun fyrir vindi. Uppáhaldsverslun: Litla „secondhand“ búðin í Kaupmannahöfn sem heitir Kongens klæder. Hún er ógeðslega flott og geðveikt ódýr. Hvað eyðir þú miklum peningum í föt á mán- uði? Voða litlu og stundum engu. Ég reyni alltaf að vera sniðug og finna eitthvað ódýrt þar sem ég er á námslánum. Versla í Hjálpræðishernum eða hjá Rauða krossinum eða eins og núna fór ég á kílómarkaðinn í Spúútnik. Hvaða flíkur gætir þú ekki verið án? Hettupeys- unnar minnar, eyrnaskjólsins og pelsins. Uppáhaldsflík? Pelsinn sem ég keypti af vinkonu minni sem er dýraverndunarsinni. Hún höndlaði ekki að eiga ekta pels en keypti hann á markaði í New York. Ég fékk hann á þrjú þúsund kall og held mikið upp á hann. Hvert myndir þú fara í versl- unarferð? Ég myndi fara til Kaupmannahafnar því ég þekki hana svo vel og veit hvar allar góðu verslanirnar eru. Ljótasta flík sem þú hefur keypt þér? Buffaloskórnir eins og allir áttu í áttunda bekk. Ég var með mjög mjóar lappir og það fór mér hörmu- lega að vera í svona klossuðum skóm. SMEKKURINN RAKEL MCMAHON, NEMI Í MYNDLISTARDEILD LISTAHÁSKÓLANS Veik fyrir skóm í sterkum litum Síðasta mánuðinn hef ég horft svo svakalega mikið á Dallas-þættina að hugarfar mitt til tísku og útlits hefur tekið örlitlum breytingum. Í raun má segja að um hugarfarsbreytingu sé að ræða því fyrir mánuði fannst mér hár þurfa að vera annað hvort krullað eða slétt, en núna er annað uppi á teningnum. Ég er ekki frá því að mér finnist „greitt permanent“ svolítið kúl, sérstaklega ef hárið er klippt í svolitlar styttur og er örlítið tjásað svona eins og önnur hver kona var í Ameríku í kringum 1978. Þegar greitt er í gegnum permanent hár myndast sérstakur stíll sem er ekki svo arfaljótur. Þegar horft er á svona marga Dallas-þætti í einu síast kúrekatíska Texas-ríkis inn í undirmeðvitundina. Vinkona mín rak upp stór augu í vikunni þegar hún sýndi mér skyrtu sem hún hafði nýlega fjárfest í. Mín viðbrögð voru að hrósa skyrtunni og segja að hún væri ógurlega Pameluleg. Vinkona mín vissi ekki alveg hvort hún ætti að taka þessu sem hrósi eða ekki enda hélt hún að þetta Dallas-atriði væri löngu orðið úrelt. Skyrtan, sem er með leki að fram- an og rykktum pífum, minnti bara alltof mikið á skyrturnar sem Pamela Barnes Ewing klæddist í fyrstu og annarri seríu. Í vortískunni gætir þó furðu mikilla Dallas-áhrifa ef rauðbrúni lit- urinn er mínusaður frá. Pamela og Sue Ellen girða buxurnar mjög oft ofan í stígvélin og eru í rykktum skyrtum með pífum. Þær eru líka oft í alls konar kjólum þar sem mikið er lagt í snið, alls konar flóknar útfærslur og rykkingar á ótrúlegustu stöðum. Litla frænkan Lucy er líka oft í ótrúlegum fötum, þröngum gallabuxum sem ná alveg upp í mitti og í köflóttum skyrtum við. Eftir allar mjaðmabuxurnar er ég viss um að þetta verði næst á dagskrá í götutískunni. Við verðum örugglega allar komnar í svona buxur áður en við vitum af þótt það hljómi pínulítið skringilega núna. Dallas-förðunin er líka kapituli út af fyrir sig. En ég verð að viður- kenna að þessi rauðbrúni augn- skuggi sem settur er yfir allt augnlokið lítur nokkuð vel út á skjánum. Förðunarmeistarar þáttanna spara heldur ekki kinnalitinn. Ég held samt að ég verði að fara að skipta um spólu ef ég ætla ekki að festast í Texas-tískunni. Spurning um að fá fyrstu seríu af Beðmálun- um lánaða í næsta húsi til að rétta sig við, eða hvað? Texas-tíska og kúrekalíf NORDICPHOTOS/GETTYIMAGES Í vor- og sumarlínunni frá Puma leynast litlar gersemar sem krydda tilveruna þótt ekki sé hægt að meta þær í kílóum. Þetta eru nefnilega fislétt undirföt sem eru allt annað en íþróttaleg þótt þau séu frá þessu þekkta íþróttamerki. Efnisvalið er kvenlegt, bleikum og vínrauðum litum tvinnað saman en líka ljósbleikum á móti gylltum. Blúndur, sem búnar eru til úr merki Puma, gera undirfötin skemmtilega sjarmerandi enda sést það langar leiðir að nostrað hefur verið við hönnunina. Sum settin eru úr bómull meðan önnur eru úr lipru undirfataefni með örlítilli glansáferð. Þótt það sé löngu orðið úrelt að láta nær- buxnastrengi skoppa upp úr mittislágum gallabuxum gerir ekk- ert til þótt það gerist þegar undirfötin frá Puma eru annars vegar. Hlírabolirnir eru fallegir undir aðra boli og ekki er verra þótt það glitti í þá. Þeir geta jafnvel verið krúttlegir einir og sér þegar sól hækkar á lofti. Þetta er bara spurning um að litasinfonían sé í takt. martamaria@frettabladid.is Undurfögur, þétt og þægileg FR ÉT TA B LA Ð IÐ /P JE TU R > Ilmvatn ...með áherslu á blómailm er dásamlegt nú þegar vorar í veðri. Þessi eru úr línunni Les Fleurs Sublimes frá Guerlain.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.