Fréttablaðið - 25.02.2006, Blaðsíða 50

Fréttablaðið - 25.02.2006, Blaðsíða 50
 25. febrúar 2006 LAUGARDAGUR34 Það má segja að Hið íslenska vitafélag hafi orðið til í finnskum skógi á vordögum ársins 2003,“ segir Sigurbjörg Árnadóttir, leiðsögumaður og for- maður Hins íslenska vitafélags. „Þar var ég stödd ásamt góðvini mínum, Stein Malkenes, sem er formaður norska Vitafélagsins, en við vorum að vinna saman að Evrópusambandsverkefni. Stein var líka að skipuleggja ráðstefnu og leitaði til mín til að finna Íslendinga til að taka þátt í henni. Ráðstefnunni var hins vegar sleg- ið á frest og þá hugsaði ég með mér: „Fjandinn hafi það, nú stofna ég íslenskt vitafélag.“ Það eru til fjölmörg vitafélög um allan heim en Sigurbjörg segir það íslenska hafa þá sérstöðu að það einblínir ekki aðeins á vitana sjálfa, heldur strandmenningu í heild sinni. „Það hefur lengi farið í taugarnar á mér hversu lítið við höfum hlúð að þessari arfleifð okkar við ströndina. Ég fæ það stundum á tilfinninguna að þetta sé ein af birtingarmyndum hinnar íslensku minnimáttarkenndar. Ég held að sú menningararfleifð sem við eigum við ströndina minni okkur á hokur og lágstéttarmenn- ingu fyrri alda. Við eigum því til að horfa frá ströndinni til fjalla og beina augum okkar að einhverju sem við þurfum ekki að svara fyrir.“ Vitar í endurnýjun lífdaga Sigurbjörg telur að í þessum efnum ættu Íslendingar taka Noreg sér til fyrirmyndar. „Þeir eru langfremstir í varðveislu og stefnumörkun á strandmenningu sinni. Flestir vitar landsins eru í eigu ríkisins, sem og jörðin í kringum þá. Þeir vitar sem ekki eru nýttir eru ekki látnir drabbast niður. Stjórnvöld hafa friðað um 80 vita og leiga marga eða lána til starfsemi sem almenningur hefur aðgang að; víða um Noreg má því finna vita sem hafa verið gerðir upp og gengið í endurnýjun líf- daga sem kaffihús, gististaðir eða menningar- og listasetur. Á Íslandi eru um 120 vitar, sem áður voru í eigu ríkisins en það gerði þau mis- tök að selja flestar jarðirnar hæst- bjóðanda, ég held að ekki séu nema fjórar eftir í ríkiseigu. Það hefur spillt fyrir möguleikunum á að fólk geti haft opið aðgengi að þeim og byggt þjónustu sína í kringum þá.“ Á mörkum lífs og dauða Vitar njóta sívaxandi vinsælda sem gististaðir í Noregi, sérstak- lega í vesturhluta landsins, sem og gömul síldarhús sem gerð hafa verið upp. Sigurbjörg telur skýr- inguna vera að þessir staðir bjóði upp á sérstaka upplifun og návist við náttúruna. „Þeir standa yfir- leitt á svo dramatískum og hrika- legum stöðum og í mínum huga eru þeir alltaf á mörkum einhvers, til dæmis lands og sjávar, ljóss og birtu eða lífs og dauða. Þeir eru merkilegt tæki sem fjarstýrir vegfarendum og forðar þeim frá háska, en þeim sem hætta sér of nærri er voðinn vís. Það umlykur þá einhver þversagnakenndur kraftur sem ég held að fari ekki framhjá neinum sem dvelur þar um stund. Það sem við í vitafélag- inu viljum gera er að vekja fólk til umhugsunar um hvað við eigum mikil auðæfi bundin við ströndina og hafið, og vitarnir eru hinar sýnilegu vörður þeirrar menning- ar.“ Vantar heildstæða stefnu Þótt Hið íslenska vitafélag sé ungt að árum segir Sigurbjörg það hafa náð nokkrum árangri. „Húsafrið- unarnefnd tók vel í erindi okkar og hefur látið friða sjö vita. Þá fengum við styrk til að vinna svo- kallaða forverkefnisskýrslu þar sem við lögðum til hugmyndir um hvernig hægt er að nýta þessa arfleifð, bæði til nýsköpunar og atvinnuuppbyggingar um allt land. Þar nutum við aðstoðar Steins Malkenes, sem hefur mikla reynslu auk þess sem gests augað er glöggt, en við teljum að það liggi ófá tækifæri á þessu sviði.“ Sigurbjörg segir hins vegar að það vanti tilfinnanlega heildstæða stefnumörkun af hálfu ríkisins, bæði hvað strandmenningu snert- ir og almenna ferðaþjónustu. En sem betur fer eru líka menn í einkageiranum sem eru að vakna til vitundar um tækifærin, til dæmis við Gróttuvita.“ Þá hefur jörðin og húsakynnin við Galtarvita verið gerð upp, bæði fyrir gangandi ferðamenn og listamenn, en hljómsveitin Múm hefur meðal annars hljóðrit- að plötu þar. ■ Vitinn er vörður strandmenningarinnar Vitar eru ær og kýr Sigurbjargar Árnadóttur leiðsögumanns sem undir- býr samnorrænna ráðstefnu um strandmenningu sem haldin verður hér á landi í maí. Bergsteinn Sigurðsson ræddi við Sigurbjörgu um leiðarljósin á ströndunum. STABBEN Í Sunnefjörd í vesturhluta Noregs stendur vitinn Stabben umlukinn sjó á allar hliðar. Þennan vita er hægt að leigja til gistingar, en bærinn Flora er stutt undan. MYND/ BS VITINN Í KRÅKENES Vitinn í Kråkenes stendur á stórum veðurbörnum hamri sem brimið gengur yfir þegar verst lætur. MYND/ BS SIGURBJÖRG ÁRNADÓTTIR OG STEIN MALKENES Stein er formaður norska vitafélagsins og Sigurbjörg er formaður Hins íslenska vitafélags. MYND/ BS GALTARVITI Hljómsveitin Múm tók meðal annars upp plötu hér um árið. MYND/BRYNJAR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.